Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1952, Page 135
133
1952
anleg áfengislykt af honum eða merki
þess, að hann hefði verið undið áhrif-
um áfengis, þegar hann framdi skurð-
inn). Ruptura menisci 2 (19 ára
drengur slasaðist við leikfimisæfing-
ar).
Grenivíkur. Slysfarir frekar smá-
vægilegar. 6 ára telpa datt niður stiga
og brákaði fótinn. Barn á 3. ári var
að leika sér niðri á bryggju; engir
voru á bryggjunni, en úr næsta húsi
sást, að barnið gekk aftur á bak og
fram af bryggjunni. Var þegar kallað
á pilta, sem voru i trillubát við bryggj-
una. Tókst þeim að krækja i kjól
barnsins. Rann mikill sjór upp úr því,
er það náðist. Litlu munaði, að þarna
yrði hörmulegt slys. Kona datt á flór-
stokk og hjó sundur á sér olnbogann.
Maður, er var að vinna að aðgerð á
snjóýtu, klemmdist illa á hendi; hold
marðist og hálflosnaði af efra liluta
baugfingurs. 6 ára drengur datt ofan
af hlöðuþaki og brákaði olnbogann.
22 ára piltur var á rjúpnaveiðum.
Hafði hann með sér mjólk á pela, sem
hann hafði i rassvasa; á heimleiðinni
datt hann, pelinn brotnaði og skarst
maðurinn illa á rasskinn og læri.
Hann var orðinn slappur, er hann
kom heim til sín, vegna blóðmissis.
Auk framangetinna slysa 14 tognanir
og mör, 10 minna háttar brunasár, 28
skurðir, stungur og sár, rifbrot 6 og
fract. fibulae 1.
Breiðiunýrar. Engar meira háttar
slysfarir. Fract. costarum 1, Collesi 1,
patellae 1, claviculae 1, colli femoris
1, pollicis complicata 1. Corpora ali-
ena oculi 9, perforatio bulbi oculi 1.
Allmörg vulnera incisa og contusa, svo
og minna háttar bruna hef ég líka
haft til meðferðar, en ekkert svo, að
alvarlegt geti talizt eða örkuml hafi
hlotizt af.
Húsavíkur. Gamall maður beið bana
i bilslysi á Húsavik. Sat hann i aftur-
sæti í fólksbíl, sem var ekið fram hjá
vörubíl. Rakst hornið á vörupallinum
á hægri hlið fólksbílsins og reif hana
alla upp. Maðurinn fékk mikinn á-
verka i andlitið og komst aldrei til
meðvitundar. Annars allmiltið um
slysfarir, eins og sjúkrahússkýrslan
ber með sér.
Þórshafnar. Bóndi einn missti skot
úr haglabyssu í fót sér. Tók það af
II. tá alla og um helming af tánum
sitt hvorum megin. Honum heilsaðist
vel eftir saum og gips. Ungur sjómað-
ur var, ásamt fleirum, að taka snjó
undir Hrafnabjörgum á Langanesi.
Féll þá á hann steinn úr björgunum.
Hlaut hann fract. ulnae og marðist
mikið á læri og mjöðm. Má telja stór-
mildi, að ekki varð þarna dauðaslys.
Síldveiðimaður kom hingað með rup-
tura urethrae. Var sendur til Akur-
eyrar, eftir að gerð hafði verið
punctio vesicae urinariae. Auk þess
mikið um smærri slys, einkum á með-
an á sildveiðum stóð.
Vopnafj. Bóndi á Þorvaldsstöðum
varð úti 6. febrúar í norðan hriðar-
byl. Innsti bær, sem þá var í byggð,
i Selárdal, norðan árinnar. Fór að
morgni að heiman frá sér með hest
og sleða til að sækja fóðurbæti, sem
hann átti geymdan á Ljótsstöðum. Um
kl. 1 lagði hann af stað heim til sín
með ækið. Yfir allháan og breiðan
háls er að sækja, á að gizka 2 tima
ferð með æki. Bóndinn var þaulkunn-
ugur leiðinni og ratvís með afbrigð-
um. Sóttist honum greiðlega ferðin
upp liálsinn, meðan menn sáu til hans
frá Ljótsstöðum. Um kl. 2 var komið
norðan stórviðri og kafaldsbylur á
Ljótsstöðum. Skall veðrið á um há-
degisbilið á Þorvaldsstöðum. Morgun-
inn eftir fannst bóndinn helfrosinn
nokkra faðma frá fjárhúsi, sem er þar
skammt ofan við bæinn. Eftir að slysið
varð, gátu mótbýlishjónin ekki unað
því að búa þar lengur, og fór því
jörðin i eyði. Helztu áverkar og
meiðsli voru annars þessi: Fract. fe-
moris — osteopsatyrosis — 1, costae
7, radii typica 1, lux. antibrachii 1,
contusio 19, distorsio 15, vulnus in-
cisum 18, contusum 52, punctum 7,
corpus alienum corneae & conjunc-
tivae 13, subcutis 2, ambustio 1, con-
gelatio 2. Commotio cerebri 1.
Bakkagerðis. Fract. malleoli 1, radii
1, metatarsi 1, costarum 1. Önnur slys
ckki teljandi.
Seyðisfj. Slys á árinu voru einkum
á sjómönnum, sem hingað leituðu
vegna þeirra. Engin meira háttar slys