Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1952, Page 145
143 —
1952
rekstri sjúkraliússins. Flestar sjúkra-
stofurnar málaðar á árinu. Eins og
áður nutu allmargir ambúlant ljós-
lækninga á sjúkrahúsinu. Auk sjúk-
linga, sem komu reglulega til eftirlits,
og skyggninga á sjúklingum sjúkra-
liússins voru skyggndir 52 sjúklingar
og 36 röntgenmyndaðir.
Hofsós. Keypt ný skyggnitæki til
læknisbústaðarins. Þar sem röntgen-
tæki voru til, er loks skapaður þolan-
legur grundvöllur til eftirlits og loft-
brjóstsaðgerða á þeim berklasjúkling-
um, sem heima dveljast.
Ólafsfj. Undanfarin ár hef ég verið
að hugsa um, hvort ekki væri rétt að
taka svo kallað sjúkraskýli af skrá,
þar sem það hefur ekki verið rekið
í svo mörg ár og verður sennilega
ekki i næstu framtíð.
Húsavíkur. Sjúkrahúsið rekið með
sama hætti og áður. Allvel hefur geng-
ið að útvega starfsfólk, enda má telja
húsið að mörgu leyti gott, þó að nokk-
uð kveði að þrengslum. Alloft erfitt
að koma þar fyrir akút sjúklingum,
vegna þess að of mörg rúm eru skipuð
gamalmennum, sem að vísu eru sjúk-
lingar, en ættu ekki síður heima á
elliheimili. Góð röntgentæki eru til,
en vegna rúmleysis hefur ekki enn þá
verið hægt að taka myndir, og er það
stundum bagalegt. Ljóslampar eru
einnig til og eru mikið notaðir.
Seijðisfj. Sjúkrahúsið er rekið með
sama hætti og undanfarin ár. Aðsókn
er svipuð frá ári til árs. Rekstrarhall-
inn eykst. Fyrirhugaðar eru breyting-
ar á húsinu með það fyrir augum að
koma sjúkrahúsi og elliheimili undir
eitt þak. Á árinu var unnið að við-
gerð á sjúkrahúsinu. Gluggar voru
endurbættir og settir í þá tvöfaldar
rúður. Gólfið í gangi hússins var
einnig endurbætt. Steingólf steypt
ofan á gamla gólfið og það siðan dúk-
lagt. Margt er þó enn, sem endurbóta
bíður í húsinu. Fyrirhuguð er ný
klæðning innan á stofur og ganga,
ásamt endurnýjun á raflögn hússins.
A árinu eignaðist sjúkrahúsið ný rönt-
gentæki (Philips), og er það gjöf frá
Kvenfélagi Seyðisfjarðar. Voru þau
tekin i notkun 1. apríl og hafa reynzt
mjög vel. Þau eru léttbyggð, og má
fara með þau um allt húsið, ef þess
gerist þörf.
Nes. Lélegri læknisbústað þekki ég
ekki hérlendis.1)
Vestmannaeyja. Viðgerð hélt áfram
á sjúkrahúsinu á árinu, og er nú lokið
við málun innan húss, svo og dúk-
lagningu og margvíslegar endurbætur.
Nýtt skurðaðgerðarborð var keypt. Sú
breyting var gerð á starfsliði sjúkra-
hússins á árinu, að Einar Guttorms-
son, læknir hér, var ráðinn yfirlæknir,
og Ólafur Halldórsson læknir honum
til aðstoðar við aðgerðir í handlækn-
ingum. Var þar með úr sögunni það
fyrirkomulag, sem áður hafði tíðkazt,
að allir læknar hér hefðu aðgang að
sjúkrahúsinu til meðferðar sjúkrasam-
lagssjúklinga sinna. Héraðslæknir
hafði áður með bréfi til bæjarstjórnar
hvatt til þessara breytinga á starfs-
liáttum sjúkrahússins, og eigi löngu
siðar gerði ósamkomulag hjúkrunar-
fólks og eins læknisins breytinguna
óumflýjanlega.
Keflavíkur. Senn liðin 10 ár frá þvi,
að Sjúkrahús Keflavíkur var reist og
komið undir þak, en enn þá sér að-
eins hilla undir það, að fulllokið
verði og taki til starfa. Má nærri segja,
að þessi seinagangur á þessu nauð-
synjamáli sé orðinn héraðinu til
minnkunar. Málið var í upphafi tekið
upp á seinvirkum og nærri ófram-
kvæmanlegum grundvelli, en eftir að
því fékkst framgengt, að málið væri
rekið eins og í öðrum héruðum, að
allt læknishéraðið með aðstoð ríkisins
tæki það á sína arma, og héraðið, sem
er 7 hreppar, annist rekstur þess, má
sjá fram á, að það komist að lokum í
höfn, þó að seint hafi gengið. Það er
engum gert rangt til, þó að sagt sé,
að þessum miklu töfum á málinu hafi
valdið fjárskortur, og þá einkum
Keflavíkurbæjar. En Keflavík, þar sem
sjúkrahúsið er reist og þar sem þörfin
er mest, ætti af eðlilegum ástæðum að
hafa forustuna í því, að sjá því borg-
ið. En Iíeflavík er ört vaxandi bær,
eins og kunnugt er, enda hefur íbúa-
1) f Neskaupstað er ekki opinber læknisbú-
staður, og stendur ekki til, að sé. Héraðslækn-
ir, sem á að sjá sér fyrir íbúð sjálfur, á það
við sjálfan sig, hve fullkomin ibúð hans er.