Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1952, Síða 147
— 145 —
1952
Af öðrum sérstökum hjúkrunar- og
líknarfélögum er auk sjúkrasamlaga og
annarra félagssamtaka, sem getið er í
umsögnum héraðslækna hér á eftir,
aðeins getið Hjúkrunarfélags Ólafsvik-
ur, sem rekur röntgentæki til skyggn-
inga.
Rvik. Stofnað var á árinu Styrktar-
félag lamaðra og fatlaðra. Heimili fé-
lagsins er í Reykjavík. Markmið fé-
lagsins er: „1) að koma á stofn og
starfrækja miðstöð til þjálfunar fyrir
lömunarsjúklinga. 2) að hjálpa löm-
uðu og fötluðu fólki til þess að læra
iðnir og aðrar menntir við þeirra hæfi
og gera þá færari til þess að sjá sér
farborða i lífinu. 3) að styrkja og
greiða fyrir lömuðu og fötluðu fólki
á hvern þann hátt annan, sem unnt
er og félagið hefur tök á.“ Sams konar
félög erlendis hafa gefið ágæta raun,
og má binda miklar vonir við samtök
þessi. Unnið var af kappi að bygg-
ingu heilsuverndarstöðvarinnar við
Barónsstig og Egilsgötu. Standa vonir
til, að hægt verði að taka einhvern
hluta hennar í notkun á næsta ári.
Hafnarfj. Rauðakrossdeild Hafnar-
fjarðar á sjúkrabifreið, sem notuð er
til sjúkraflutninga utan og innan hér-
aðs. Sér Rafveita Hafnarfjarðar um
rekstur hennar.
Flateyjar. Sjúkrasamlög eru í öllum
hreppum héraðsins.
Flateyrar. Ljósböð á vegum Maríu-
sjóðs sem áður. Sjúkrasamlög starf-
andi í öllum hreppunum. Sjúkrasam-
iög Suðureyrar-, Mosvalla- og Mýra-
hreppa bera sig illa, og greiðslur til
min dragast upp í 5—6 mánuði, þótt
þau greiði að jafnaði aðeins % af þvi,
sem sjúkrasamlag Flateyrar greiðir,
Undir eins og reikningi er framvísað,
og iðgjöld séu þar lægst. Þetta mun
fyrst og fremst eiga rót sína að rekja
til þess, að þurfi fólk að fara um tíma
að heiman, kýs það heldur að dveljast
j Reykjavik og útrétta ýmislegt um
leið, en mánaðarlæknishjálp þar er
oft kostnaðarmeiri en árs læknishjálp
er stundum hér.
ísafi. Starfsemi sjúkrasamlaganna
var með sama hætti og undanfarin ár.
Varð afkoma þeirra fremur bágborin,
þrátt fyrir takmörkun á þátttöku
þeirra í greiðslu lyfja, enda fer allur
tilkostnaður ört vaxandi. Sjúkrasam-
lagið hér á ísafirði kostar að verulegu
leyti viðhald og viðgerðir tanna ung-
linga, 14—18 ára, sem koma með við-
gerðar tennur úr barnaskóla. Er þetta
fyrirmynd. Á síðast liðnu ári fékk
samlagið hingað sérfræðing i háls-,
nef- og eyrnasjúkdómum, Eyþór Gunn-
arsson. Dvaldist hann hér tæplega
hálfan mánuð. Mun af þessu hafa orð-
ið mikið gagn. Berklavarnarstöðin var
rekin með sama hætti og áður. Rönt-
gentæki þau, sem stöðin hefur til af-
nota á sjúkrahúsinu, voru enn i lama-
sessi og ekki treyst til verulegs álags.
Hefur svo verið í nær 2 ár. Hinn nýi
lampi i tækið er nú sagður kominn í
hæinn (27. marz 1953). Hjúkrunarfélag
er ekkert starfandi hér, mér vitanlega.
Deild úr Rauðakrossi íslands á þó að
heita til, en mun ekki hafa haldið
fund, síðan ég kom i héraðið.
Árnes. Sjúkrasamlag er starfandi i
héraðinu, einnig læknisvitjanasjóður.
Ólafsfi. Iðgjald sjúkrasamlags á ár-
inu kr. 12,00. Fjárhagur góður. Heilsu-
verndarstörf, svo sem ónæmisaðgerð-
ir, eftirlit með vanfærum konum o. fl.
lief ég annazt jafnframt daglegum
störfum. Þó nokkrar gegnlýsingar.
Grenivíkur. Sjúkrasamlög starfa með
sama hætti og áður. Iðgjald sjúkra-
samlags Grýtubakkahrepps hækkaði á
árinu upp i kr. 72,00 hálfsárslega. Af-
koma þess sæmileg.
Seyðisfi. Segja má, að öll hjúkrun
fari fram i sjúkrahúsinu. 2 sjúkrasam-
lög eru í héraðinu, og hefur rekstur
þeirra gengið vel á árinu, þrátt fyrir
nokkra örðugleika. Heilsuvernd fram-
kvæmir héraðslæknir, svo sem við
verður komið. Fylgzt er með þunguð-
um konum, einkum seinni mánuði
meðgöngutímans. Starf heilsuverndar-
stöðvarinnar aðallega berklavarnir.
Nes. Iðgjald Sjúkrasamlags Nes-
kaupstaðar hækkaði úr kr. 18,00 upp
í kr. 25,00, og virtist ekki af veita.
Kirkjnbæjar. Fjárhagur sjúkrasam-
laga er góður og iðgjöld hófleg.
Vestmannaeyja. Félagið Krabbavörn
starfaði eins og undanfarið, Rauða-
krossdeild Vestmannaeyja sömuleiðis.
19