Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1952, Side 174
1952
172 —
hvernig við var brugðið, og má sæmi-
lega við una eftir atvikum. Heilbrigð-
issamþykkt fyrir kaupstaðinn var
rædd á 2 fundum. Hafði málið verið
upp tekið í nefndinni 1944 af fyrr-
verandi héraðslækni og hlotið af-
greiðslu þar 1945, síðan farið á
vergang milli bæjarfulltrúa, en aldrei
komið til afgreiðslu i bæjarstjórn.
Frumvarpið fannst í fórum heilbrigð-
isfulltrúa. Var þetta hið myndarleg-
asta rit, langt á þriðja hundrað grein-
ar. Það þótti þó óþarflega viðamikið
og upp í það tekin ýmis atriði, sem
nægt hefði að vísa til í öðrum bók-
um, sem liafa eigi minna gildi en slík
samþykkt. Þannig varð samþykktin
154 greinar. Hefur hún nú hlotið sam-
þykki bæjarstjórnarinnar og verður
væntanlega staðfest á næstunni.
Sauðárkróks. Heilbrigðisnefnd leit
eftir þrifnaði eins og áður. Fékk hún
einnig framgengt endurbótum á fyrir-
komulagi fisk- og kjötsölu í bænum og
kjötvinnslu; er þessu fyrir komið í
gömlum húsum til bráðabirgða, en
leyfi til nýbygginga hefur ekki feng-
izt enn þá. Bærinn tók nú aftur upp
flutning á sorpi frá húsum, en það
hafði legið niðri undanfarin ár og
hver orðið að sjá um að flytja frá sér.
Ólafsfj. Haldnir 5 fundir á árinu, og
var aðallega fjallað um mjólkursölu-
málið. Séð um vorhreinsun á kaup-
staðnum.
Þórshafnar. Staðið fyrir hreinlætis-
viku á Þórshöfn á vorin. Hreinsa þá
húseigendur i kringum hús sín.
Bakkagerðis. Kosin var heilbrigðis-
nefnd á árinu, en umkvartanir hennar
og tillögur hafa fengið daufar undir-
tektir enn þá.
Vestmannaeyja. Heilbrigðissamþykkt
er í smíðum. Eins og venja er til,
komu á árinu margvísleg mál til kasta
heilbrigðisnefndar, sem óþarft er að
telja hér. Fyrir einu þrifnaðarmáli
hefur heilbrigðisnefnd sérstaklega
beitt sér á árinu, og það er að koma
á bættri sorphirðingu. Var farið fram
á það við bæjarstjórn, að nokkurt fé
væri áætlað til kaupa á yfirbyggðum
sorpbíl og til bráðabirgða að byggja
yfir hinn gamla. Einnig þótti ástæða
til að koma upp betri sorpílátum.
20. Ónæmisaðgerðir.
Tafla XIX, 1—6.
Framkvæmd kúabólusetningar er
ekki enn komin í æskilegt samræmi
við hin nýju ónæmisaðgerðalög. Hin
nýja skipun virðist þó engan veginn
ætla að draga úr aðsókn að kúabólu-
setningu (sbr. töflu XIX, 1). Af öðrum
ónæmisaðgerðum kveður mest að kik-
hóstabólusetningu (tafla XIX, 4) og þó
miklu minna en siðast liðið ár, og er
árangur þeirrar ónæmisaðgerðar enn
sem fyrri vanddæmdur. Nokkuð var
bólusett gegn barnaveiki (tafla XIX,
2) og allmargir gegn berklaveiki, eink-
um í Reykjavík og á Akureyri, en ann-
ars staðar ekki nema vegna beinnar
sýkingarhættu (XIX, 5). Aðrar ónæm-
isaðgerðir ekki tejandi, nema helzt
hin venjulega ginklofabólusetning i
Vestmannaeyjum (tafla XIX, 6). Þess
er þó að gæta, að ónæmisaðgerðir
Rannsóknarstofu Háskólans, sem aðal-
lega mun annast bólusetningar fólks
vegna utanferða, mun ekki koma á
ónæmisaðgerðaskýrslur.
Rvík. Kúabólusetningu í héraðinu
annaðist ég ásamt aðstoðarlækni mín-
um. Á vegum Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur voru börn bólusett gegn
barnaveiki og fólk gegn berklaveiki.
Heimilislæknar sjá um að bólusetja
gegn kikhósta, og mun jafnan talsvert
vera gert að því. Um flestar aðrar
bólusetningar, svo sem gegn tauga-
veiki, sér Rannsóknarstofa Háskól-
ans.
Hafnarfj. Ónæmisaðgerðir fóru fram
gegn bólusótt og barnaveiki. Endur-
bólusetningin fór fram, eins og lög
gera ráð fyrir, i skólunum. Eftirspurn
eftir fruinbólusetningu er litil. Aðeins
lítill hluti þeirra barna, sem eru á
frumbólusetningaraldri, kom til frum-
bólusetningar. Sama máli gegnir um
bólusetningar gegn barnaveiki. Þar
hefur aðeins náðst til fárra barna til
1. og 2. bólusetningar. Ef ekki má aug-
lýsa slikar ónæmisaðgerðir hæfilega,
verður aldrei hægt að ná til alls al-
mennings. Auk þess lit ég svo á, að
ekki verði hjá því komizt að þyrpa
fólki nokkuð saman til bólusetninga,