Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1952, Blaðsíða 181
179
1952
Báðir höfðu þeir oröið mjög
drukknir. Á brúsanum, sem
fannst, stóð: „Methanol. Danger.
Inflammable. Vapor harmful. May
be fatal if swallowed. Cannot be
made nonpoisonous. Poison.“
42. 20. desember. A. S-son, 52 ára.
Drakk meS bræSrunum tveim,
sem aS framan er getið, og dó
með svipuðum hætti. Þessi mað-
ur var á ferli daginn eftir drykkj-
una. Morguninn eftir fann hann
lögg á flöskunni og þótti vissara
„að skella þvi i sig til að rétta
sig af“, af þvi að hann var timbr-
aður. Kl. 22 kvöldið eftir var
hann allsgáður að sjá og minntist
ekki á neinn lasleika. Eitthvað
hafði hann þó orð á því, að ljós-
ið í bragganum væri óvenju dauft.
Dó hann kvöldið eftir, 3 sólar-
hringum eftir að hann drakk lög-
inn. Þessir 3 menn hefðu senni-
lega ekki drukkið sig til bana
svo snemma, ef þeir hefðu skilið
ensku.
43. 31. desember. Á. M-son, 19 ára.
Veiktist í byrjun nóvember með
hita og liðaverkjum. Skánaði og
fór nokkru seinna í erfiða fjall-
göngu og sló niður á eftir með
hita og liðaverkjum. Hitinn jókst
stöðugt, og var loks afráðið að
flytja sjúklinginn til Reykjavíkur,
sem var löng sjóleið. Dró mjög af
sjúklingnum á leiðinni, og hann
andaðist eftir tæpan sólarhring á
sjúkrahúsi. Við krufningu fannst
bólga í báðum lungum og auk
þess nýrnabólga (glomerulone-
phritis).
22. Sótthreinsun samkvæmt
lögum.
Tafla XX.
Samkvæmt sótthreinsunarreikning-
um, er borizt hafa landlæknisskrif-
stofunni, hefur sótthreinsun heimila
farið 38 sinnum fram á árinu á öllu
landinu, þar af aðeins einu sinni utan
Reykjavíkur. Þegar tilefni er greint,
hefur það verið berklaveiki (79%),
og fer orðið lítið fyrir sótthreinsun
eftir bráðar farsóttir, sem einu mun
gilda.
23. Húsdýrasjúkdómar.
Flateyjar. Nokkuð gætti lambablóð-
sóttar um sauðburðinn. Mæðiveiki er
hér engin. 1 kýr veslaðist upp og dó
eftir 2 sólarhringa. Urethra hafði gró-
ið saman. Ekki hafði hún orðið fyrir
slysi, svo að vitað væri, og ekki sáust
ytri áverkar.
Flateyrar. Leitað ráða öðru hverju
vegna sauðfjár og nautpenings; eink-
um um að ræða lystarleysi, júgurbólgu
og doða í kúm. Tvisvar var ég sóttur
til að hjálpa kúm við burð og kom
að gagni. Hvað segja dýralæknar um
að gefa út handbók, okkur læknum og
bændum til hagræðis?
ísafj. Ekkert bar á húsdýrasjúkdóm-
um á árinu, en sulla varð þó vart í
fé frá 2 bæjum við slátrun í haust
Ólafsfí. Nokkuð ber á kvillasemi,
einkum í kúm, og er aðallega um doða
að ræða. Mikið notuð kalkglukonat-
upplausn og stundum til varnar fyrir
burð. Skyndidauði kemur fyrir.
Akureyrar. Á árinu varð vart „garna-
veiki“ í sauökindum víða í héraðinu.
Grenivikur. Síöast liðið haust var
gerð hér í héraðinu húðprófun á sauð-
fé vegna gruns um garnaveiki. Þótt
engrar sérstakrar óhreysti eða van-
halda hefði orðiö vart í fénu, reynd-
ust nokkrar kindur jákvæðar (2—7 á
bæ) á flestum bæjum, en á 3—4 bæj-
um þó frá 10—25. Þessum kindum
var öllum lógað. Við það kom í ljós,
að aðeins á einum bæ var um garna-
veiki að ræða. Húðprófaðar voru
einnig kýr fyrra part vetrar. 4—5
voru taldar jákvæðar, en þó eitthvað
vafasamar. Lifa þær enn. Eru menn
lítt trúaðir á, að um garnaveiki sé að
ræða.
Vopnafí. Fjárpestir — aðallega
garnaveiki — gerðu mikinn usla í
héraðinu, líkt og verið hefur mörg
undanfarin ár.
Bakkagerðis. MikiÖ er hér um garna-
veiki í sauðfé. Einnig ber töluvert á
votheyseitrun í sauðfé og hestum.
Doði í kúm nokkuð algengur.