Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Side 84
1959
— 82 —
aldrinum %—7 ára höfðu fengið 2
stungur af D. T. P. bóluefni, er þau
smituðust, og tók sóttin þau yfirleitt
vægari tökum en óbólusett börn. All-
mörg börn höfðu nýlega fengið 4.
stungu (booster) við kikhósta, þegar
faraldurinn byrjaði, og urðu þau börn
undantekningarlítið lítið sem ekkert
veik.
Kirkjubæjar. Einhver algengasti
barnakvilli hér, og var heldur algeng-
ari þetta ár en undanfarið. Barst hing-
að i september, en veikin var frem-
ur væg.
Víkur. Kom í héraðið í september
og entist til áramóta. Veikin var ekki
þung, enda höfðu flest börn verið
vaccineruð rétt áður.
Vestmannaeyja. Aðeins 38 tilfelli
skráð, flest væg, svo að lengi lék vafi
á um sjúkdómsgreiningu. Einstaka til-
felli var þó allþungt á börnum, sem
ekki höfðu lokið bólusetningu. Veikin
gekk yfir 4 síðustu mánuði ársins.
Enginn dó.
Hvols. Varð vart.
Laugarás. Byrjaði um haustið og
hélzt fram í skammdegi.
Selfoss. Barst hingað í september,
líklega frá Reykjavík. Fengu hann
margir, þó að fjöldi barna hafi verið
sprautaður við honum, en hann var
vægur.
Eyrarbakka. Allmörg tilfelli í ágúst,
september og októbermánuðum.
Keflavíkur. Flest tilfelli, að ég hygg,
fremur væg. Allflest börn höfðu ver-
ið sprautuð gegn kikhósta.
Hafnarfj. í ágúst varð fyrst vart við
kikhósta, og færðist hann nokkuð í
aukana, er leið á haustið, og stóð fram
yfir áramót. Undanfarin ár hef ég bólu-
sett börn gegn veikinni og nú í vax-
andi mæli siðara hluta árs. Notað var
triimmunol og triple-vaccine. Börn,
sem náðist að bólusetja i tæka tíð,
veiktust alls ekki eða áberandi minna
en hin, sem ekki voru bólusett. Ný-
fædd börn fengu kikhósta, áður en
hægt var að bólusetja þau. Eitt þeirra
að minnsta kosti virtist í lifshættu.
Útvegaði Björn Guðbrandsson læknir
mér hyperimmunglobulin frá Ameriku.
Batnaði barninu fljótt og vel, eftir að
hafa fengið tvo skammta með nokk-
urra daga millibili. Reyndi ég þetta
í tveim öðrum tilfellum, er líkt stóð á.
Var um barn að ræða á 1. ævi-
mánuði, sem ekki var hægt að ein-
angra frá systkinum sínum með kik-
hósta eða bólusetja. Reyndist lyfið
ágætlega í þessum tilfellum einnig.
En geta verður þess, að lyfið er mjög
dýrt. Ekkert barn dó úr kikhósta í
héraðinu að þessu sinni.
Kópavogs. Faraldur í október—
desember, yfirleitt vægur, enda flest
börn bólusett. Engin dauðsföll, svo að
ég viti.
22. Hlaupabóla (varicellae).
Töflur II, III og IV, 22.
1955 1956 1957 1958 1959
Sjúkl. 873 525 1254 1279 1092
Dánir „ „ 1 „ „
Akranes. Verður alltaf vart við og
við.
Patreksf). Nokkur væg tilfelli, en
breiddist ekki út.
Súðavíkur. Hlaupabóla og ristill
gengu nokkuð um haustið, og fengu
flestir þeirra, sem hlaupabóluna fengu,
ristilinn á eftir, eða öfugt.
Hólmavíkur. 4 tilfelli, þar af eitt að
öllum líkindum upprunnið frá herpes
zoster-tilfelli á sama bæ.
Hvammstanga. Kom upp á nokkrum
bæjum í Miðfirði i ársbyrjun og árs-
lok.
Blönduós. Kom á barnmargt heimili
hér í nágrenninu og í 1 eða 2 hús hér
á Blönduósi, en breiddist ekki frekara
út.
Ólafsfj. Strjál tilfelli í apríl og októ-
ber—desember.
Raufarhafnar. Nokkur væg tilfelli
um vorið, og þrír unglingar fengu
samtímis ristil.
Seyðisfj. Þrír veiktust af hlaupabólu,
allir á sama heimili, móðir og tvær
dætur.
Víkur. Var að slæðast þrjá fyrstu
mánuði ársins.
Vestmannaeyja. Stakk sér niður síð-
ara helming ársins.
Hvols. Gekk talsvert fyrstu mánuði
ársins.