Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Side 88
1959
— 86 —
2. Eftir berklabókum (sjúkl. i árs-
lok): 1955 1956 1957 1958 1959
Thc. pulm. 736 669 614 501 402
Thc. al. loc. 88 88 109 104 93
AIls 824 757 723 605 495
Skýrslur um berklapróf hafa ekki
borizt úr eftirtöldum héruðum: Ólafs-
víkur, Stykkishólms, Reykhóla, Vopna-
fj., Bakkagerðis, Seyðisfj. og Djúpa-
vogs. Úr Blönduós- og Sauðárkrókshér-
aði bárust skýrslur, þar sem tekið var
fram, að berklapróf hefðu verið fram-
kvæmd, en engar tölur. í yfirliti því,
sem hér fer á eftir samkvæmt töflu
XI, er sleppt berklaprófum ársins i
Keflavik af sömu ástæðu og árið
áður. Að þeim slepptum taka prófin
til 25765 manns. Skiptist sá hópur
þannig eftir aldri og útkomu:
0— 7 ára: 648, þar af jákvæðir 13 eða 2,0 %
7—14 — : 18625,-— 645 — 3.5 —
14—20 — : 5826,-— 443 — 7,6 —
Yfir 20 — : 666,-— 157 — 23,6 —
Skýrsla berklayfirlæknis 1959.
Árið 1959 voru framkvæmdar berkla-
rannsóknir (aðallega röntgenrann-
sóknir) i 21 læknishéraði. Voru alls
rannsakaðir 20168 manns, á 6 heilsu-
verndarstöðvum 19017, aðallega úr 8
læknishéruðum (berklarannsóknir í
Hafnarfirði og Kópavogi eru stöðugt
framkvæmdar af Heilsuverndarstöð-
inni í Reykjavík), en með ferðarönt-
gentækjum 1151 maður, aðallega úr 13
læknshéruðum. Fjöldi rannsókna er
hins vegar nokkru meiri, þar eð
margir komu oftar en einu sinni til
rannsóknar, einkum á stöðvarnar.
Námu þær alls 24502.
Árangur rannsókna heilsuverndar-
stöðva er greindur sérstaklega (sbr.
bls. 128—131). Af 1151, sem rannsak-
aðir voru með litlum ferðaröntgen-
tækjum í 13 læknishéruðum, fundust
að þessu sinni 2 sjúklingar, sem taldir
voru með virka berklaveiki (1,74%»
hinna rannsökuðu). Aðeins annar
þessara sjúklinga var áður óþekktur
(0,87%» hinna rannsökuðu). Að þessu
sinni var heildarrannsókn eigi fram-
kvæmd í neinu héraði.
Hinn 23. april var gerð berklarann-
sókn á öllu heimilisfólki og nemend-
um að Hólum í Hjaltadal, 69 að tölu.
Enginn berklaveikur fannst við þessa
rannsókn. Tilefni rannsóknarinnar
var það, að í janúarmánuði veiktist
starfsstúlka að Hólum og um svipað
leyti einnig einn nemandi, er þar
hafði dvalizt. Bæði veiktust þau upp
úr mislingum, en reyndust jafnframt
hafa orðið fyrir berklasmitun. Var
stúlkan með hilusadenitis og erythema
nodosum, en pilturinn með lympha-
denitis tuberculosa mesenterica. Var
gerð á honum appendectomia á
Sjúkrahúsi Húsavíkur í janúar, en er
sjúkdómurinn varð kunnur, var hann
sendur á Kristneshæli, en þar hafði
stúlkan verið lögð inn nokkru áður.
Dvaldist hún þar til maímánaðarloka,
en hann til 21. desember. Vegna þess-
ara berklasmitana voru einnig gerðar
endurteknar berklaprófsrannsóknir á
öllum nautgripum skólabúsins. Svör-
uðu 12 gripir jákvætt af 66, sem voru
á búinu. Hin jákvæðu svör voru þó
eigi eins greinileg og vænta mátti, ef
um nautgripaberkla væri að ræða, en
þeir hafa aldrei fundizt hér á landi,
svo að vitað sé. Að tilhlutan héraðs-
læknisins voru prófin endurtekin i
apríl, og varð niðurstaðan sú sama.
í rannsóknarskyni voru þá felldir þrir
nautgripir. Við krufningu á þessum
gripum fundust ekki nautaberklar, en
innyfli voru tekin til frekari rannsókn-
ar. Endurteknum berklaprófum á naut-
gripum Hólabúsins var enn haldið
áfram, og annaðist Guðbrandur Hlíðar,
héraðsdýralæknir á Sauðárkróki, þau
eins og áður. Svöruðu nú fleiri gripir
jákvætt, en voru þó hraustlegir útlits
og í góðum holdum. Um árslok höfðu
57 nautgripir verið felldir af þessum
sökum. Við krufningu dýranna fund-