Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Side 100
1959
— 98 —
oftar en einu sinni. í fyrsta skiptið
var hún orðin svo útblædd, að gefa
varð henni blóð. Hormónameðferð
hefur ekki dugað.
Þórshafnar. Prolapsus uteri: 3 til-
felli hef ég séð. Stendur til að senda
2 í aðgerð fljótlega.
Seyðisfí. Metrorrhagia 2 konur. Gerð
abrasio.
Nes. Fibromyomata uteri: 41 árs
kona ól 9. barn sitt auðveldlega á
sjúkrahúsinu hér i mai, og var þó vit-
að, að hún gekk með mörg fibromyo-
rnata uteri. Hysterectomia supravag-
inalis, gerð i september, leiddi í ljós,
að legið var krökkt af æxlum þessum
hátt sem lágt, og voru sum mjög stór.
Laugarás. Graviditas extrauterina 1,
prolapsus uteri 4, fibromyoma uteri 1,
dysmenorrhoea 4, amenorrhoea 4,
menorrhoea 3, syndroma menopaus-
eos 3.
11. Meltingarfærasjúkdómar.
Patreksfí. Appendicitis 15, þar af 7
börn. Þrjú þeirra með perforatio. Af
þessum 15 voru 8 innan héraðs. Út-
lendingar voru 2. Engar komplika-
tionir eftir aðgerðir. Sex mánaða
drengur úr næsta héraði var lagður
i sjúkrahúsið vegna einkenna um
invaginatio. Kom i ljós pcrforatio á
Meckels diverticulum, og höfðu mynd-
azt samvextir, sem ollu stasis í garna-
lykkju og þess vegna vægum ileus-
einkennum með blóði í saur. Sam-
kvæmt histologiskri rannsókn var
einnig um appendicitis að ræða.
Drengnum heilsaðist vel eftir aðgerð-
ina. Þrir með utcus ventriculi, sem
sást á röntgen. Tveir þeirra gengu
undir uppskurð, og farnast báðum vel.
Eru miklu hraustari en áður, en báðir
eru búnir að hafa óþægindi í mörg
ár.
Þingeyrar. Appendicitis acuta 3.
Flateyrar. Appendicitis 3, hernia
inguinalis 2, umbilicalis 1.
Suðureyrar. Appendicitis: 1 sjúk-
lingur skorinn á ísafirði. Cholecysto-
pathia 1, ileus 1.
Súðavíkur. Appendicitis 4 tilfelli
typisk. Einnig hefur borið nokkuð á
vægum köstum, er ég hygg, að stafi frá
njálgi. Colitis chronica (spastica) 2,
cholecystitis et cholangitis 2, chole-
lithiasis 1, fissura ani 3, haemor-
rhoides 2, hernia 1, oxyuriasis 12,
flest börn. Ulcus ventriculi 1.
Hólmavíkur. Appendicitis 6, gastritis
10, haemorrhoides nokkur væg tilfelli.
Hvammstanga. Algeng kvörtun
mæðra, að börn þeirra séu lystarlaus.
Flest líta þau samt vel út og eru fjörug.
Stundum virðist lystin aukast við
vítamingjöf, ef börnin eru föl og gugg-
in, en oftast nær er um ímyndun móð-
ur að ræða. Virðist það vera metnað-
ur sumra mæðra að hafa börnin sem
allra feitust, og sýnast ýmsir nákomn-
ir ýta undir áráttu þessa. Fimm sjúk-
lingar skornir upp við botnlangabólgu,
1 sprunginn. Heilsaðist öllum vel.
Nokkur tilfelli af vægri botnlanga-
bólgu voru meðhöndluð með lyfjum.
Blönduós. Appendicitis var með
minna móti, þvi að ekki voru gerðir
nema 18 botnlangaskurðir, þar af á
utanhéraðsfólki 10 sinnum. Helmingur
sjúklinganna var börn. Tveir voru með
sprunginn botnlanga, annar barn, hinn
maður á sextugsaldri. Annars sér mað-
ur ekki eins oft sprungna botnlanga
með heiftugri kviðfellsbólgu og áður,
og eru til þess þrjár orsakir: Fólkið
er betur vakandi fyrir því að leita
læknis í tíma, samgöngur hafa batnað,
svo að fyrr næst til læknis, og anti-
biotica eiga sinn þátt i að draga úr
hættulegum afleiðingum. Aður fyrr
þurfti ég nokltrum sinnum að gera
ileostomia eftir á vegna kviðfellsbólgu,
og blessaðist það nema í 1 skipti, en
á siðari árum hefur þess ekki þurft,
nema hvað ég gerði hana um leið
prophylaktiskt fyrir 2 árum á roskinni
konu með sprunginn botnlanga, en
þeim fistli var hægt að loka innan
fárra daga.
Ólafsfí. Appendicitis 3, pancreati-
tis 1.
Grenivíkur. Appendicitis 4 tilfelli,
eitt vafasamt, hin þrjú send til Akur-
eyrar og þeir þar losaðir við botn-
langann. Meltingartruflanir alltíðar.
Gastritis 6, haemorrhoides 10. Ulcus
ventriculi: Roskin kona, sem aldrei
hafði haft óþægindi frá maga, fékk
skyndilega magablæðingu, en batnaði