Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Side 122
1959
— 120 —
Fract. costarum 2, humeri 1, cruris 1,
claviculae 1, luxatio humeri 2.
Húsavikur. Öll meira háttar slys
koma til aðgeröa á sjúkrahúsinu, og
er þeirra þvi getið á sjúkrahússkránni.
Eitt sjálfsmorð varð á árinu. Aldrað-
ur maður, sem um áratugi hafði þjáðst
af þunglyndi og hafði áður gert til-
raun til sjálfsmorðs, skaut sig til bana
með haglabyssu.
Kúpaskers. Engin meira háttar slys.
Raufarhafnar. Mikið um smáslys alls
konar, einkum að sumrinu. Engin
alvarleg slys í héraðinu á þessu ári.
Þórshafnar. Fract. malleoli lateralis
2, antebrachii 1, femoris 1. Flest önn-
ur slys smávægileg, svo sem smá-
skurðir, tognanir, mör og minna hátt-
ar brunar, aðskotahlutir i augum og
holdi.
Seyðisfj. 33 ára karlmaður varð fyr-
ir voðaskoti úr haglabyssu. Illjóp skot-
ið i h. upphandlegg og h. axlarkrika,
og varð af mikill áverki. Sjúklingur-
inn lá í blóði sínu nær meðvitundar-
laus, er að var komið. Var hann þeg-
ar fluttur i sjúkrahúsið, gefin Mac-
rodex-transfusio og gert að skotsárun-
um. Síðar var sjúklingurinn sendur í
Landsspítalann, og lá hann þar lengi.
Hægri handleggur er máttlaus og vis-
inn. Mikið af höglum er í holdi sjúk-
lingsins.
Eskifj. Engin stórslys. Tvö bilslys,
þar sem þurfti að sauma allmikil sár
á hársverði. Fract. collesi 1.
Djúpavogs. 2 unglingspiltar hlutu
fractura claviculae, 1 gömul kona
fract. colli femoris og 11 ára gömul
telpa luxatio cubiti. Annað ekki frá-
sagnarvert.
liirkjubæjar. Ekkert dauðaslys.
Fract. cranii et nasi 1, radii 1, cruris
1, claviculae 1. Jeppi með 7 farþegum
steyptist ofan i árgil, og skárust flestir
og flumbruðust, en enginn brotnaði
eða meiddist á annan hátt alvarlega.
Vikur. Viðbeinsbrot 1. Maður féll af
bíl, varð undir hjólum með handlegg-
inn og hlaut slæmt framhandleggsbrot.
Sendur suður.
Vestmannaeyja. Mesta slysið varð,
þegar mótorskipið Hermóður fórst með
allri áhöfn við Reykjanes, er það var
á leið frá Vestmannaeyjum lil Reykja-
víkur i einu aftakaveðrinu á vertið-
inni. Enginn fiskibátur fórst á vertið-
inni né sjómaður við fiskveiðar, þrátt
fyrir umhleypingasama tið. Óveðrin
voru oftast svo eindregin, að ekki var
viðlit að róa, og eru sjómenn hér þó
ýmsu vanir. Mikið mun og veðurstof-
an hafa hjálpað til hér, því að veður-
spár reyndust áreiðanlegar á þessari
vertíð. Ungur maður hrapaði til dauða
i úteyjum um sumarið. í landi var
lítið um meira háttar slys, og engin
dauðaslys urðu. Til aðgerða á sjúkra-
húsinu komu 40 beinbrot, 3 liðhlaup
og 29 önnur meira háttar slys.
Hvols. 65 ára maður velti dráttar-
vél, viðbeinsbrotnaði og braut 4 rif,
og auk þess fékk hann haemothorax.
Var samdægurs fluttur á Landsspítal-
ann og heilsaðist vel. 3 ára drengur
datt og fékk fract. Collesi. 4 mánuðum
síðar datt hann enn og fékk þá fract.
tibiae. Móðir þessa drengs datt á hálku
og fékk fract. Collesi. Auk þessa fract.
radii 1, ossis nasi 1, luxatio humeri 1,
commotio cerebri 1, combustio 1. Var
það IV2 árs drengur, sem hellti á sig
heitu vatni úr fötu, sem stóð uppi á
stól. Brenndist á brjósti, handleggjum
og lærum. Greri vel, en með miklum
keloidmyndunum. Önnur slys minna
háttar, svo sem vulnera incisa og
corpora aliena.
Hellu. Fractura antebrachii 1, epi-
condyli lateralis humeri 1, subluxatio
perannularis radii 1. Bóndi í Þykkva-
bæ féll úr háum stabba í heyhlöðu.
Kom með herðar niður á steypta
gluggakistu, en kastaðist þaðan á höf-
uðið í hlöðugólfið. Er hann raknaði
úr rotinu eftir byltuna, gat hann ekki
hrært legg né lið og var rojög þungt
um andardrátt („spinal shock“). Eft-
ir um það bil klukkustund færðist
máttur aftur i fætur og vinstra hand-
legg að nokkru. Hyperaesthesia var
innanvert á handleggjum, einkum
liægri, sem dróst þétt að bolnum, fram-
handleggurinn krepptur um olnboga
og lófinn inn að brjóstinu, sýnilega
spastiskur samdráttur í pronatores
vegna sköddunar á plexus brachialis
(ertíng á Ce). Rannsókn í Reykjavík
leiddi i ljós sköddun á hálsrótum báð-
um megin, en hvergi brot á hryggjar-