Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Page 146
1959
— 144 —
uð og áður. Mjólkurframleiðsla hér á
Grenivík má ekki vera minni til að
fullnægja þörfum fólksins.
SeyðisfJ. Mjólk er oftast næg, því að
þó að mjólkurframleiðsla í bænum sé
að hverfa, þá hefur hún aukizt til
muna í hreppnum, og mjólk er flutt úr
Héraði vetur sem sumar. Gerilsneydd
mjólk er enn þá ekki á boðstóJum,
en nú hefur Kaupfélag Héraðsbúa
komið á fót mjólkurvinnslustöð á
Egilsstöðum, svo að vonir standa til,
að Héraðsmjólkin komi hingað geril-
sneydd. Aftur á móti er mjólkurfram-
leiðslan hér i firðinum ekki svo mikil
jenn, að gerilsnetyðing á henni sé
framkvæmanleg kostnaðarins vegna.
Sýnishorn af neyzlumjólk hafa verið
send til rannsóknar til dýralæknis á
Egilsstöðum, og hafa l)au reynzt yfir-
leitt góð.
Nes. Mjólkurstöðin nýja tók til
starfa á árinu og reynist í alla staði
ágætlega. Er merkum áfanga náð í
heilbrigðis- og hreinlætismálum Norð-
firðinga með tilkomu hennar.
Djúpavogs. Mjólk framleiða flestir
sjálfir til heimilisþarfa.
7. Áfengisnautn. Kaffi og tóbak.
Rvík. Á árinu var selt áfengi í
Reykjavik fyrir 134,4 milljónir króna.
í þessari upphæð er talið áfengi, sem
selt var gegn póstkröfu út á land.
í húsakynni lögreglunnar í Reykja-
vík, „kjallarann“, komu 4687 menn,
flestir vegna ölvunar. Hjúkrunarstöð
og dvalarheimili Bláa bandsins að
Flókagötu 29 í Reykjavík starfaði allt
árið með sama hætti og undan-
farin ár, og má heita, að hvert rúm
hafi verið skipað hvern dag ársins.
Á árinu var tekið á móti 387 sjúkling-
um. Vistdagar voru samtals 12540.
Dvalartími vistmanna var sem hér
segir:
97 dvöldust 1— 2 vikur
50 — 3 —
30 — 4 —
74 — 5—8 —
21 — 9—12 —
13 — 13—15 —
2 — 15 — og lengur.
Akranes. Áfengissjúklingar 4, þeir
sömu og áður, en ég hef ekki treyst
mér til að fara að skrá þá, sem heyra
undir 1. og 2. stig, en þeir gætu orð-
ið allmargir.
Patreksfj. Hef ekki sinnt skráningu
áfengissjúklinga, þar eð slík skráning
verður kák eitt frá minni hendi.
Blönduós. Áfengisnautn og neyzla
kaffis og tóbaks mun vera með nokk-
uð svipuðu móti og undanfarin ár,
sizt vaxandi né meiri en i nálægum
héruðum. Ölvunaróspektir á almenn-
um samkomum koma miklu sjaldnar
fyrir en á fyrstu árum mínum, enda
löggæzla batnað.
Höfða. Litt áberandi, en þó ber
nokkuð á vínnautn á skemmtisam-
komum. Tóbaksnautn, sérstaklega
sígarettureykingar, mjög algeng.
Ólafsfí. Áfengisnautn verður alltaf
að sumu leyti matsatriði. Ég tel samt,
að enginn ofdrykkjumaður sé í hérað-
inu. Á skemmtunum, hátíðum og tylli-
dögum er talsvert vín um hönd liaft.
Það er öruggt, að eftir að tollvörzlu
var komið hér á, hefur smygl verið
mjög lítið. Neyzla áfengis hefur þó
ekki minnkað við það.
Akureyrar. Áfengisneyzla mun hafa
verið svipuð og áður. Engin tilfelli
eru skráð af delirium tremens, en 9
manns voru lagðir inn á Sjúkrahús
Akureyrar til „útvötnunar“ 93 daga
samanlagt, og voru sumir þarna oftar
en einu sinni á árinu.
Grenivikur. Áfengisnautn lítil, helzt
eitthvað í sambandi við dansleiki.
Breiðumýrar. Ekki get ég talið neinn
héraðsbúa áfengissjúkling. Næst því
kæmist einstaka ungur maður, sem
kemur allslaus heim eftir tekjumikla
vertíð í Sandgerði eða Eyjum, en
þeirra peningar hafa farið í fleira en
vín, þó að það hafi átt sinn þátt í þvi
öllu saman. Og miklu eru þeir fleiri
hér í bænda hópi, sem reykja sér til
fjárhagslegra vandræða en hinir, sem
tírekka svo, að sú eyðsla komi illa
við afkomu þeirra. Það þykir víst
fáum tiltökumál, þó að hjón reyki t. d.
IV2 pakka af sígarettum á dag. Það
kostar þó 5—6000 kr. á ári, og sú
upphæð er mikið atriði i afkomu lág-