Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1959, Síða 154
1959
— 152 —
6. 2. febrúar. Karl, 51 árs. VarS und-
ir skipsskrúfu, sem datt af bíl.
Ályktun: Við krufninguna fannst
brot á XI. brjóstlið, og hafði mæn-
an marizt undir brotinu. Lifur
og milti var sprungið, þindin rifn-
uð og magi, milti og hluti af ristli
gengið upp í brjósthol af þrýst-
ingi á kvið. Mikil blæðing i brjóst-
holi.
7. 13. febrúar. Óskírt sveinbarn, 5
vikna. Móðirin lá ofan á barninu,
er hún vaknaði um morguninn, og
var barnið þá andað. Ályktun: Við
krufninguna fannst interstitielt
emphvsem i lungum og önnur ein-
kenni um köfnunardauða.
8. 23. febrúar. Karl, 67 ára. Fannst
örendur i herbergi sinu. Ályktun:
Við krufningu fannst stórt hjarta
og lítil nýru, enn fremur þrengsli
í vinstri kransæð og stífla i ann-
arri aðalgrein hennar (r. circum-
flexus). Hjartavöðvinn var að
miklu leyti eyddur í afturvegg v.
afturhólfs.
9. 26. febrúar. Kona, 4 ára. Barnið
dvaldist á hæli og dó þar skyndi-
lega. Ályktun: Við krufninguna
fannst vatnshöfuð (hydrocep-
halus), og hafði litli heilinn
þrýstst ofan í op mænugangs.
10. 12. marz. Karl, 33 ára. Hvarf
tveim vikum áður en lík hans
fannst í höfninni. Síðast var vit-
að til hans á dansleik að kvöldi
dags. Maðurinn hafði verið drykk-
felldur. Líkið var stirt, ekkert
rotnað, með „soðnar“ hendur, en
skinnflagningslaust og leit ekki út
fyrir að hafa verið lengur en 2—3
daga i sjó. Engin áverkainerki
fundust á líkinu og enginn sjúk-
dómur við krufninguna. Sjávar-
kuldi hafði verið mikill (0—2°C)
og þvi mögulegt, að litlar breyt-
ingar hafi orðið á líkinu i sjónum.
í blóði fannst 1.21%0 aíkohol.
Ályktun: Greinileg drukknunar-
einkenni fundust ekki i lungum.
Ekki var samt talið ómögulegt, að
maðurinn hefði drukknað, þar
sem drukknunareinkenni verða
oft lítil hjá ölvuðum mönnum.
11. 18. marz. Karl. Sjórekið lik, mjög
rotnað. Talið mögulegt, að líkið
hafa legið í sjó í fjóra mánuði.
12. 21. marz. Karl, Þjóðverji. Var grip-
inn af holskeflu á skipi og skol-
aðist fyrir borð. Ályktun: Drukkn-
un.
13. 24. marz. Kona, 38 ára. Fannst
látin á gólfinu heima hjá sér, en
dyr læstar að innan. Tæmd flaska
með upplausn af phenemalnatri-
um, g 1.6, og mebumalnatrium,
g 4, i 600 g af vatni, en þessi
flaska hafði verið afhent 17. marz.
Ályktun: Barbitur-eitrun.
14. 31. marz. Karl, 92 ára. Fannst
látinn i sjónum við Reykjavík.
Ályktun: Maðurinn hefur komið
lifandi í sjóinn og drukknað.
15. 4. apríl. Karl, 62 ára. Bóma féll á
hann, þar sem hann var við vinnu,
og lézt hann rétt á eftir. Ályktun:
Við krufninguna fannst brot á
kúpubotninum: Tyrkjasöðullinn
þverbrotinn og heiladinguilinn
rifinn frá. Mikið blóð hafði farið
ofan í lungun og valdið köfnun.
16. 20. apríl. Óskírt meybarn, 4 mán-
aða. Fannst látið í vöggu sinni að
morgni. Ályktun: Við krufninguna
fannst svæsin berkjubólga og
greinileg merki um beinkröm á
höfði, brjóstkassa og öklaliðum.
17. 15. mai. Karl, 64 ára, kaupmaður.
Steig út úr bíl og féll á hnakkann.
Var örendur, er læknir kom að.
Ályktun: Við krufninguna fannst
útbreidd æðakölkun i kransæðum.
í v. kransæð fannst gömul stífla,
sem hafði algerlega lokað annarri
aðalgrein hennar, einnig voru
mikil þrengsli i hinni aðalgrein-
inni. í h. kransæð fannst fersk
stífla, skammt frá upptökum, sem
lokaði þeirri æð, og mun það hafa
orðið manninum að fjörtjóni.
18. 21. maí. Karl, 86 ára, bóndi. Hné
út af í sæti sinu í strætisvagni í
Rvík og var þegar örendur. Álykt-
un: Við krufninguna fannst mjög
útbreidd æðakölkun í kransæðum
hjartans. Aðalstofn v. kransæðar
var gegnumkalkaður og mjög
þröngur við upptök, en önnur
aðalgreinin lokuð af ferskum blóð-
tappa, 2 cm frá upptökum. H.