Rit Mógilsár - 2014, Side 20
20 Rit Mógilsár 31/2014
að gera að nýta furuna til sveppaframleiðslu
þar til hún gefur timburafurðir. Auk þessara
tegunda vaxa í skógum landsins margar aðrar
sveppategundir sem eru góðir og verðmætir
matsveppir, svo sem kóngssveppur,
kúalubbi og hneflur, svo nokkrar tegundir
séu nefndar. Hér á landi voru framleidd 575
tonn af matsveppum árið 2012 auk þess
sem flutt voru inn um 167 tonn árið 2013 að
verðmæti um 90 milljónir króna (cif-verð)
(Hagstofa Íslands, 2014). Það er því ljóst að
mikill markaður er hér á landi fyrir sveppi úr
skógum landsins og tækifæri fyrir skógar-
bændur að koma þessari vöru á framfæri.
Afurðir af og úr trjám
Þær afurðir sem koma af og úr trjám eru
margs konar, svo sem jólatré, könglar,
skraut greinar og birkisafi, svo nokkrar séu
nefndar. Mikið af þessum afurðum er notað
til skreytinga, svo sem greinar, könglar og
jólatré. Mikið af þessum vörum er flutt inn frá
útlöndum og var slíkur innflutningur árið
2013 alls um 220 tonn, að heildsöluverðmæti
um 91 milljón króna (Hagstofa Íslands, 2014).
Jólatré er hægt að framleiða hér á landi eins
og Else Møller hefur bent á (Else Møller,
2013) og hægt væri að framleiða hér meira
af skrautgreinum fyrir íslenskan markað en til
þess þarf aukið samstarf blómaheildsala og
skógarbænda (Steinar Björgvinsson, 2010).
Mikið af hráefnum úr skóginum er notað
í margs konar heilsuvörur, svo sem birki-
safi sem nýtur mikilla vinsælda sem heilsu-
drykkur, en er einnig soðinn í birkisíróp
(Svanberg o.fl., 2012). Laufblöð birkis og
birkibörkur hefur löngum verið nýtt til
heilsubótar (Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir,
1992) og í ljósi þeirrar þekkingar hafa verið
gerðar fræðilegar rannsóknir á áhrifum birki-
blaða (Gründemann o.fl., 2011) og birkibarkar
(Freysdottir o.fl., 2011). Erlendis eru hnetur
ýmissa trjáa vinsæl neysluvara en enn þá
eru slíkar afurðir ekki algengar hér á landi.
Við skipulagningu skóga með afurðir trjáa í
huga þarf fyrst og fremst að huga að aðgengi
að skóginum til að auðvelt sé að nálgast
afurðir hans árið um kring. Einnig þarf að
huga að skjóli fyrir jólatrjáarækt og aðgengi
að þeim reitum.
Undirgróður í skógum
Í þessum flokki eru jurtir, runnar og annar
undirgróður í skógum og eins og gefur að
skilja eru notin margvísleg. Alls konar berja-
runnar og berjalyng er líklega sá undir-
gróður sem flestir skógareigendur nýta sér.
Hér á landi vaxa sólber, rifsber, hindber og
jarðarber ágætlega í skjóli í skógarjöðrum og
skjólbeltum að ógleymdum villtum hrúta-
berjum, jarðarberjum, bláberjum, kræki-
berjum og aðalbláberjum. Við skipulagningu
skógræktar er um að gera að hafa í huga
fjölbreytt úrval af berjarunnum í skógar-
jaðra og með í skjólbelti þar sem það hentar.
Einnig er hægt að búa til rjóður í skóginum
þar sem krækiber, bláber og aðalbláber vaxa
fyrir og þau munu dreifa sér í skógarjaðrana
þar sem sólar nýtur. Skipuleggjendur
skógræktar ættu einnig að vera óhræddir
að prófa nýjar tegundir í slíka berjajaðra, svo
sem hafþyrni sem dafnar vel í rýru landi og
er með ein c-vítamínríkustu ber sem finnast
(Lindberg, 2011).
Margar rannsóknir hafa verið gerðar á hollustu
allra þessara berja og þau þykja öll afar góð
til matar og hvers konar matargerðar. Bláber