Rit Mógilsár - 2014, Qupperneq 20

Rit Mógilsár - 2014, Qupperneq 20
20 Rit Mógilsár 31/2014 að gera að nýta furuna til sveppaframleiðslu þar til hún gefur timburafurðir. Auk þessara tegunda vaxa í skógum landsins margar aðrar sveppategundir sem eru góðir og verðmætir matsveppir, svo sem kóngssveppur, kúalubbi og hneflur, svo nokkrar tegundir séu nefndar. Hér á landi voru framleidd 575 tonn af matsveppum árið 2012 auk þess sem flutt voru inn um 167 tonn árið 2013 að verðmæti um 90 milljónir króna (cif-verð) (Hagstofa Íslands, 2014). Það er því ljóst að mikill markaður er hér á landi fyrir sveppi úr skógum landsins og tækifæri fyrir skógar- bændur að koma þessari vöru á framfæri. Afurðir af og úr trjám Þær afurðir sem koma af og úr trjám eru margs konar, svo sem jólatré, könglar, skraut greinar og birkisafi, svo nokkrar séu nefndar. Mikið af þessum afurðum er notað til skreytinga, svo sem greinar, könglar og jólatré. Mikið af þessum vörum er flutt inn frá útlöndum og var slíkur innflutningur árið 2013 alls um 220 tonn, að heildsöluverðmæti um 91 milljón króna (Hagstofa Íslands, 2014). Jólatré er hægt að framleiða hér á landi eins og Else Møller hefur bent á (Else Møller, 2013) og hægt væri að framleiða hér meira af skrautgreinum fyrir íslenskan markað en til þess þarf aukið samstarf blómaheildsala og skógarbænda (Steinar Björgvinsson, 2010). Mikið af hráefnum úr skóginum er notað í margs konar heilsuvörur, svo sem birki- safi sem nýtur mikilla vinsælda sem heilsu- drykkur, en er einnig soðinn í birkisíróp (Svanberg o.fl., 2012). Laufblöð birkis og birkibörkur hefur löngum verið nýtt til heilsubótar (Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir, 1992) og í ljósi þeirrar þekkingar hafa verið gerðar fræðilegar rannsóknir á áhrifum birki- blaða (Gründemann o.fl., 2011) og birkibarkar (Freysdottir o.fl., 2011). Erlendis eru hnetur ýmissa trjáa vinsæl neysluvara en enn þá eru slíkar afurðir ekki algengar hér á landi. Við skipulagningu skóga með afurðir trjáa í huga þarf fyrst og fremst að huga að aðgengi að skóginum til að auðvelt sé að nálgast afurðir hans árið um kring. Einnig þarf að huga að skjóli fyrir jólatrjáarækt og aðgengi að þeim reitum. Undirgróður í skógum Í þessum flokki eru jurtir, runnar og annar undirgróður í skógum og eins og gefur að skilja eru notin margvísleg. Alls konar berja- runnar og berjalyng er líklega sá undir- gróður sem flestir skógareigendur nýta sér. Hér á landi vaxa sólber, rifsber, hindber og jarðarber ágætlega í skjóli í skógarjöðrum og skjólbeltum að ógleymdum villtum hrúta- berjum, jarðarberjum, bláberjum, kræki- berjum og aðalbláberjum. Við skipulagningu skógræktar er um að gera að hafa í huga fjölbreytt úrval af berjarunnum í skógar- jaðra og með í skjólbelti þar sem það hentar. Einnig er hægt að búa til rjóður í skóginum þar sem krækiber, bláber og aðalbláber vaxa fyrir og þau munu dreifa sér í skógarjaðrana þar sem sólar nýtur. Skipuleggjendur skógræktar ættu einnig að vera óhræddir að prófa nýjar tegundir í slíka berjajaðra, svo sem hafþyrni sem dafnar vel í rýru landi og er með ein c-vítamínríkustu ber sem finnast (Lindberg, 2011). Margar rannsóknir hafa verið gerðar á hollustu allra þessara berja og þau þykja öll afar góð til matar og hvers konar matargerðar. Bláber
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Rit Mógilsár

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.