Rit Mógilsár - 2014, Side 22
22 Rit Mógilsár 31/2014
að koma upp býflugnabúum í seinni tíð og
þegar skógrækt er skipulögð fyrir býflugna-
bónda er um að gera að nota trjátegundir í
skógana sem býflugurnar eru hrifnar af, t.d.
ávaxtatré, en einnig eru víðirunnar í uppá-
haldi hjá býflugunum, sérstaklega snemma
á vorin þegar þær eru að fara á stjá eftir
veturinn (Egill R. Sigurgeirsson, á.á.). Býflugur
sækja í blómjurtir sem vaxa í skógum og
víðar, auk lauftrjáa og blómstrandi runna, og
hentar því býflugna rækt oft ágætlega sam-
hliða skógrækt.
Verð á íslensku hunangi er nokkuð hátt
eða um 10.000 kr/kg haustið 2013 (Egill R.
Sigurgeirsson, á.á.), en ljóst er að á Íslandi
er töluverður markaður fyrir hunang þar
sem árið 2013 voru flutt inn um 111 tonn af
því að verðmæti um 86 milljónir (cif-verð)
(Hagstofa Íslands, 2014).
Sala og markaðssetning afurða
Allir sem framleiða, pakka og selja matvæli
þurfa starfsleyfi og skal sækja um slíkt leyfi
á heimasíðu Matvælastofnunar, www.mast.
is. Mismunandi er hversu miklar kröfur eru
gerðar til vinnsluhúsnæðis eftir því hvaða
vara verður framleidd, en alltaf gilda almennir
hollustuhættir varðandi matvæli. Áhuga-
sömum er bent á að kynna sér reglur um
starfsleyfi til matvælaframleiðslu á heima-
síðunni, en þar er einnig að finna margs
konar nytsamlegar upplýsingar um hvernig
að leyfis umsókn og uppbyggingu á aðstöðu
skuli staðið.
Matís ohf. og önnur fyrirtæki aðstoða fram-
leiðendur við vöruþróun og rannsóknir á
vörum sínum svo sem innihaldslýsingar
og geymsluþol. Hjá Matís er starfandi fjöldi
sérfræðinga á sviði matvælaframleiðslu og
vöruþróunar og þar er hægt að fá ráðlegg-
ingar um uppbyggingu starfsaðstöðu og
meðhöndlun afurða úr skóginum, til að
gæði þeirra haldist sem best á leið sinni á
borð neytenda. Allar matvörur úr skógum
landsins ættu að vera framleiddar og seldar
af framleiðendum með fullgild starfsleyfi og
allir framleiðendur ættu að leggja metnað
í að koma sem bestri vöru á framfæri við
kaupendur.
Markaðssetning vöru er stór þáttur í fram-
leiðsluferli hennar, þar sem vörunni er komið
á framfæri við áhugasama kaupendur. Hér
á landi eru nokkrar verslanir sem sérhæfa
sig í matvöru frá smáframleiðendum, svo
sem Búrið – matarmarkaður og verslunin
Frú Lauga, báðar í Reykjavík, en auk þess er
töluvert um að framleiðendur selji vöru sína
heima á býlinu eða á mörkuðum sem oft eru
haldnir út um land.
Mikil vinna er fram undan í markaðssetningu
á vörum úr skóginum og nauðsynlegt að
kalla til samstarfs hönnuði og markaðs-
fræðinga og aðra þá sem geta liðsinnt
skógarbóndanum við að koma vöru sinni
á framfæri. Með slíku samstarfi fæst einnig
ný sýn á þá vöru sem í boði er og fjöldi
nýrra afurða mun líta dagsins ljós við slíkt
samstarf. Vel mætti hugsa sér að koma á fót
stefnumóti skógareigenda og blómaskreyta
til að auka framleiðslu á skreytiefni úr
skógunum. Stefnumót vöruhönnuða við
skógareigendur er einnig áhugaverður vett-
vangur til að fá fram nýjar hugmyndir að
vörum eða breyta framsetningu á eldri vöru.
Slík stefnumót hafa verið haldin milli bænda
og hönnuða og áhugaverðar vörur litu