Rit Mógilsár - 2014, Síða 22

Rit Mógilsár - 2014, Síða 22
22 Rit Mógilsár 31/2014 að koma upp býflugnabúum í seinni tíð og þegar skógrækt er skipulögð fyrir býflugna- bónda er um að gera að nota trjátegundir í skógana sem býflugurnar eru hrifnar af, t.d. ávaxtatré, en einnig eru víðirunnar í uppá- haldi hjá býflugunum, sérstaklega snemma á vorin þegar þær eru að fara á stjá eftir veturinn (Egill R. Sigurgeirsson, á.á.). Býflugur sækja í blómjurtir sem vaxa í skógum og víðar, auk lauftrjáa og blómstrandi runna, og hentar því býflugna rækt oft ágætlega sam- hliða skógrækt. Verð á íslensku hunangi er nokkuð hátt eða um 10.000 kr/kg haustið 2013 (Egill R. Sigurgeirsson, á.á.), en ljóst er að á Íslandi er töluverður markaður fyrir hunang þar sem árið 2013 voru flutt inn um 111 tonn af því að verðmæti um 86 milljónir (cif-verð) (Hagstofa Íslands, 2014). Sala og markaðssetning afurða Allir sem framleiða, pakka og selja matvæli þurfa starfsleyfi og skal sækja um slíkt leyfi á heimasíðu Matvælastofnunar, www.mast. is. Mismunandi er hversu miklar kröfur eru gerðar til vinnsluhúsnæðis eftir því hvaða vara verður framleidd, en alltaf gilda almennir hollustuhættir varðandi matvæli. Áhuga- sömum er bent á að kynna sér reglur um starfsleyfi til matvælaframleiðslu á heima- síðunni, en þar er einnig að finna margs konar nytsamlegar upplýsingar um hvernig að leyfis umsókn og uppbyggingu á aðstöðu skuli staðið. Matís ohf. og önnur fyrirtæki aðstoða fram- leiðendur við vöruþróun og rannsóknir á vörum sínum svo sem innihaldslýsingar og geymsluþol. Hjá Matís er starfandi fjöldi sérfræðinga á sviði matvælaframleiðslu og vöruþróunar og þar er hægt að fá ráðlegg- ingar um uppbyggingu starfsaðstöðu og meðhöndlun afurða úr skóginum, til að gæði þeirra haldist sem best á leið sinni á borð neytenda. Allar matvörur úr skógum landsins ættu að vera framleiddar og seldar af framleiðendum með fullgild starfsleyfi og allir framleiðendur ættu að leggja metnað í að koma sem bestri vöru á framfæri við kaupendur. Markaðssetning vöru er stór þáttur í fram- leiðsluferli hennar, þar sem vörunni er komið á framfæri við áhugasama kaupendur. Hér á landi eru nokkrar verslanir sem sérhæfa sig í matvöru frá smáframleiðendum, svo sem Búrið – matarmarkaður og verslunin Frú Lauga, báðar í Reykjavík, en auk þess er töluvert um að framleiðendur selji vöru sína heima á býlinu eða á mörkuðum sem oft eru haldnir út um land. Mikil vinna er fram undan í markaðssetningu á vörum úr skóginum og nauðsynlegt að kalla til samstarfs hönnuði og markaðs- fræðinga og aðra þá sem geta liðsinnt skógarbóndanum við að koma vöru sinni á framfæri. Með slíku samstarfi fæst einnig ný sýn á þá vöru sem í boði er og fjöldi nýrra afurða mun líta dagsins ljós við slíkt samstarf. Vel mætti hugsa sér að koma á fót stefnumóti skógareigenda og blómaskreyta til að auka framleiðslu á skreytiefni úr skógunum. Stefnumót vöruhönnuða við skógareigendur er einnig áhugaverður vett- vangur til að fá fram nýjar hugmyndir að vörum eða breyta framsetningu á eldri vöru. Slík stefnumót hafa verið haldin milli bænda og hönnuða og áhugaverðar vörur litu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Rit Mógilsár

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.