Rit Mógilsár - 2014, Page 42

Rit Mógilsár - 2014, Page 42
42 Rit Mógilsár 31/2014 nægt rými er og öflugt rótarkerfi veldur ekki vandræðum. Hún er harðgerðasta götutré sem við eigum völ á hérlendis enn sem komið er. Aðrar tegundir sem fjallað er um í skýrslunni eru: Blæösp (Populus tremula), selja (Salix caprea) og aðrar víðitegundir, skrautreynir (Sorbus decora), silfurreynir (Sorbus intermedia), gráreynir (Sorbus x hybrida), alpareynir (Sorbus mougeotii), úlfareynir (Sorbus x hostii), birki (Betula pubescens) o.fl. birki tegundir, gráölur/gráelri (Alnus incana), svartelri (Alnus glutinosa), garðahlynur (Acer pseudoplatanus), álmur (Ulmus glabra), askur (Fraxinus excelsior), lind (Tilia sp.), lerki (Larix sp.), sýrenur (Syringa sp.), sitkagreni (Picea sitchensis), stafafura (Pinus contorta) og bergflétta (Hedera helix). Niðurstöður í hnotskurn 1. Móta þarf skýra stefnu í garð- og trjáræktarmálum hjá sveitarfélögum með sérstakri áherslu á götutré. Það þarf að vinna sem hluta af sérstöku grænu skipulagi „Græna netinu“ eða „Græna vefnum“. 2. Líf götutrjáa er erfitt og fáar trjátegundir henta sem götutré hérlendis, t.d. með tilliti til vaxtarlags og harðgervis. Reynslan sýnir að: • Alaskaösp er nokkuð góð, það besta sem við höfum. • Birki, reyniviður og selja eru almennt slæm götutré. • Reynsla af öðrum tegundum lítil og ómarktæk (silfurreynir, gráreynir, alpareynir, skrautreynir, stafafura, álmur og garðahlynur). • Garðahlynur, álmur, silfurreynir og gráreyniyrkið ‘Bergur’ eru væn- legastar af þeim sem götutré. 3. Gera þarf tilraunir með fleiri tegundir, s.s. elri og linditré. Einnig að velja heppilega klóna af alaskaösp sem götutré. 4. Planta þarf stórum plöntum (3+) með a.m.k. 1,8 m stofnhæð í stór beð eða beð með rótarvænu burðarlagi (80% gróf möl/grjót og 20% mold). 5. Leita þarf leiða, með hliðsjón af reynslu erlendis, að þróa rótarvænt burðarlag úr íslenskum efniviði sem hentar við aðstæður hérlendis. 6. Umhirðu og eftirlit með götutrjám þarf að bæta.

x

Rit Mógilsár

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.