Rit Mógilsár - 2014, Blaðsíða 42
42 Rit Mógilsár 31/2014
nægt rými er og öflugt rótarkerfi veldur ekki
vandræðum. Hún er harðgerðasta götutré
sem við eigum völ á hérlendis enn sem
komið er.
Aðrar tegundir sem fjallað er um í skýrslunni
eru:
Blæösp (Populus tremula), selja (Salix caprea)
og aðrar víðitegundir, skrautreynir (Sorbus
decora), silfurreynir (Sorbus intermedia),
gráreynir (Sorbus x hybrida), alpareynir
(Sorbus mougeotii), úlfareynir (Sorbus
x hostii), birki (Betula pubescens) o.fl.
birki tegundir, gráölur/gráelri (Alnus incana),
svartelri (Alnus glutinosa), garðahlynur (Acer
pseudoplatanus), álmur (Ulmus glabra),
askur (Fraxinus excelsior), lind (Tilia sp.), lerki
(Larix sp.), sýrenur (Syringa sp.), sitkagreni
(Picea sitchensis), stafafura (Pinus contorta)
og bergflétta (Hedera helix).
Niðurstöður í hnotskurn
1. Móta þarf skýra stefnu í garð- og
trjáræktarmálum hjá sveitarfélögum
með sérstakri áherslu á götutré. Það þarf
að vinna sem hluta af sérstöku grænu
skipulagi „Græna netinu“ eða „Græna
vefnum“.
2. Líf götutrjáa er erfitt og fáar trjátegundir
henta sem götutré hérlendis, t.d. með
tilliti til vaxtarlags og harðgervis. Reynslan
sýnir að:
• Alaskaösp er nokkuð góð, það besta
sem við höfum.
• Birki, reyniviður og selja eru almennt
slæm götutré.
• Reynsla af öðrum tegundum lítil og
ómarktæk (silfurreynir, gráreynir,
alpareynir, skrautreynir, stafafura,
álmur og garðahlynur).
• Garðahlynur, álmur, silfurreynir og
gráreyniyrkið ‘Bergur’ eru væn-
legastar af þeim sem götutré.
3. Gera þarf tilraunir með fleiri tegundir, s.s.
elri og linditré. Einnig að velja heppilega
klóna af alaskaösp sem götutré.
4. Planta þarf stórum plöntum (3+) með
a.m.k. 1,8 m stofnhæð í stór beð eða beð
með rótarvænu burðarlagi (80% gróf
möl/grjót og 20% mold).
5. Leita þarf leiða, með hliðsjón af reynslu
erlendis, að þróa rótarvænt burðarlag
úr íslenskum efniviði sem hentar við
aðstæður hérlendis.
6. Umhirðu og eftirlit með götutrjám þarf
að bæta.