Rit Mógilsár - 2014, Blaðsíða 49
Rit Mógilsár 31/2014 49
Söfnun og varðveisla ræktaðra íslenskra
víðiyrkja er yfirlit yfir öll innlend yrki víðis
sem í ræktun eru hérlendis, alls 46 yrki.
Samanburður á runnaklónum fyrir skjólbelti;
fyrstu niðurstöður. Hér er fjallað um æski-
lega eiginleika plantna til ræktunar í skjól-
beltum og samantekt um helstu tegundir
og yrki sem til greina kemur að rækta og í
þeim byggt á reynslu úr Yndisgörðum Yndis-
gróðurs.
Umræður
Verkefni Yndisgróðurs er nándar nærri
hvergi lokið og má segja að nú fyrst sé kominn
grundvöllur fyrir frekara rannsóknar starfi.
Plöntusöfn Yndisgróðurs, Yndisgarðarnir,
bjóða upp á ótal möguleika í rannsóknum á
íslenskum efniviði garð- og landslagsplant-
na. Nú þegar er hafið verkefni sem heitir
„Skjólbelti framtíðar“ sem m.a. gengur út á
að nýta niðurstöður verkefnisins við að velja
heppilegustu yrki í ræktun á blönduðum
skjólbeltum og samsetningu þeirra.
Yndisgróðursverkefnið hefur nú fengið
fjárhagsstyrk frá Framleiðnisjóði Land-
búnaðarins og Sambandi Garðyrkjubænda
til að halda starfinu áfram og verður það gert
með sama sniði og í fyrsta áfanga, þó með
sérstakri áherslu á vali á yrkjum og markaðs-
setningu á þeim í samstarfi við Félag garð-
plöntuframleiðaenda.
Heimildir
Heimasíða Yndisgróðurs http://yndisgrodur.
lbhi.is/
Samson Bjarnar Harðarson, 2012. Saman-
burður á runnaklónum fyrir skjólbelti: Fyrstu
niðurstöður úr Yndisgróðursverkefninu. Rit
Mógilsár 27: 79-85.
Samson Bjarnar Harðarson, 2011. Yrki af
Japanskvisti Spiraea japonica í safni Yndis-
gróðurs á Reykjum. http://yndisgrodur.lbhi.
is/pages/2406
Samson Bjarnar Harðarson, 2012. Rósir fyrir
alla. http://yndisgrodur.lbhi.is/pages/2359
Samson Bjarnar Harðarson, 2012. Tillaga að
stefnumótun um ræktun götutrjáa í þéttbýli
og val á tegundum. http://yndisgrodur.lbhi.
is/pages/2470
Samson Bjarnar Harðarson, 2013. Söfnun og
varðveisla ræktaðra íslenskra víðiyrkja. http://
yndisgrodur.lbhi.is/pages/2601