Rit Mógilsár - 2014, Síða 51
Rit Mógilsár 31/2014 51
skyni að auka þekkingu í vistfræði, líkanagerð,
stjórnun og hagfræði annarra skógarnytja í
evrópskum skógum.
Markmið NWFPs eru að:
• Greina vistkerfi skóga í Evrópu með tilliti
til skógarafurða annarra en timburs.
• Kanna áhrif loftslagsbreytinga í Evrópu
á vistkerfi skóga með áherslu á aðrar
afurðir.
• Safna saman þeim gögnum og líkönum
sem til eru um nýtingu skóga, fylla í
eyður og finna nýjar leiðir í gagnasöfnun
og vinnslu þeirra.
• Skoða sérþarfir í tengslum við nýtingu
skóga og hvernig er hægt að tengja þær
við skipulag og stjórnun timburskóga.
• Skoða efnahagslega, félagslega, og
menningarlega þætti, umráðarétt, rétt-
indi og lög, heilbrigði og hlutverk skóga
fyrir grænt hagkerfi.
• Varpa ljósi á núverandi nýsköpun og
framleiðslukerfi hennar í Evrópu.
Til að auðvelda þessa þekkingarsöfnun og
skilgreiningu voru myndaðir vinnuhópar
(WG) eins og sést í 1. töflu.
Hver þátttakandi valdi sér hóp og við Lilja
ákváðum að vera saman í hópum,
annars vegar vinnuhópi 3 sem fjallar um
undirgróður og hins vegar í greiningarhópi 1,
greiningu vistkerfa. Þó að þátttakendum sé
skipað í hópa er ætlast til að allir vinni saman
og hjálpist að við upplýsingaöflunina. Okkur
er ætlað að vera tengiliðir við þá fræði-
menn sem starfa í okkar landi til að vinna
þennan gagnagrunn og gera hann sem trú-
verðugastan. Þessi vinna á að enda með
bókaútgáfu og gagnagrunni á netinu þar
sem hægt er að slá inn ýmis leitarorð og fá
upplýsingar um vistfræði, hagfræði, nýtingu
og fleira í evrópskum skógum.
Hvernig getum við nýtt okkur þetta?
Ef ég lít í eigin barm þá hef ég til dæmis
áhuga á að vita hvaða jurtir í skóglendinu
gefa rauðan lit. Ég gæti farið inn á vefinn og
fundið flokk fyrir litunarjurtir og þar gæti ég
til dæmis slegið inn „rautt“. Þá fengi ég upp
heiti á þeim plöntum sem gefa rauðan lit,
bæði á latínu og ensku. Einnig kæmu upp
heiti staða þar sem umræddar jurtir vaxa og
hvaða hluti þeirra er nýttur. Þarna væri því
komið mjög gagnlegt tæki fyrir mig.
Markhópurinn eða notendur
Hverjir geta nýtt sér þessar upplýsingar?
Það gætu verið t.d:
• Hagsmunaaðilar, t.d. skógareigendur
• Stjórnendur, skipuleggjendur, t.d. Lands-
hlutaverkefnin
WG1
Sveppir og jarðkeppir
WG2
Afurðir af trjám
t.d. korkur, harpix og
síróp
WG3
Undirgróður
t.d. ber, litunarjurtir
og lækningajurtir
WG4
Dýraríkið
t.d. veiði, hunang og
vax
TF1 Greining vistkerfa Greining vistkerfa Greining vistkerfa Greining vistkerfa
TF2 Gögn og líkön vistkerfa Gögn og líkön vistkerfa Gögn og líkön vistkerfa Gögn og líkön vistkerfa
TF3 Skógarumhirða Skógarumhirða Skógarumhirða Skógarumhirða
TF4 Markaðsfræði, hagfræði
og stjórnun
Markaðsfræði, hagfræði
og stjórnun
1. tafla. Vinnuhópar (Work Group) í verkefninu sem
hver skiptist í mismarga greiningarhópa (Task Force).