Rit Mógilsár - 2014, Page 82
82 Rit Mógilsár 31/2014
samanburð á áhrifum áburðarins miðað við
hefðbundinn áburð.
Efni og aðferðir
Tilraunirnar sem lýst er hér að neðan voru
settar út árin 2012 og 2013. Eins árs rússa-
lerkiplöntur (Larix sukaczewi), af kvæminu
Lassimaa, voru notaðar í báðum tilraun-
unum. Því var sáð vorið 2011 og 2012 í Sól-
skógum ehf. á Akureyri og ræktað í Hiko
40-hólfa bökkum (93 ml). Vorið 2012 var
arGrow® Support (70% N) blandað í vatn í
mismunandi styrkleikum (1. tafla) og
sprautað í rótarhnaus tilraunaplantna
daginn fyrir gróðursetningu. Þar sem
argrow® Support inniheldur aðeins N var
fosfór (Haifa KH2PO4) leystur upp í blönd-
unni. Magnið sem notað var samsvaraði
50,87 g í einn lítra arGrow® Support. Þann
18. júní voru allar meðferðir (2. tafla) gróður-
settar í mel á Espihóli í innanverðum Eyjafirði
(1. mynd). Gróðursett var í 4 blokkir með 10
plöntum í hverri endurtekningu. Ársvöxtur
allra meðferða var mældur í september
sama ár.
Vorið 2013 var önnur aðferð notuð til þess
að koma argrow® Support á plönturnar. Þá
var veikasta áburðarlausnin (20 ml) blönduð
samkvæmt 1. töflu og garðkanna notuð
til þess að vökva yfir plönturnar með
áburðinum, alls 1,12 l af blöndunni yfir 40
plöntur. Aðrir meðferðarliðir vorið 2013 voru
viðmið og svo var borið á þriðja meðferðar-
liðinn með 10 g af Sprett (Carrs Fertilisers,
Scotland, NP (20-10-10) eftir gróðursetningu.
Gróðursett var í tvenns konar landgerð vorið
2013, í sama mel og notaður var árið áður 10
júní og í jarðunnið (tætt) mólendi á Stóru-
Hámundarstöðum við Dalvík 12 júní.
Mólendið einkenndist af fjalldrapa og
bláberja lyngi (2. mynd). Í hvorri landgerð voru
6 blokkir með 10 plöntum í endurtekningu.
Ársvöxtur, mældur í september, var notaður
til þess að mæla áhrif áburðartegundanna
bæði árin sem tilraunirnar voru settar út.
Meðferðir Magn
arGrow®
Support
blandað
í vatn
Magn
vatns/
lítrar
Magn
blöndu sem
sett var í
rótarhnaus
20 ml 50 ml 5 28 ml
30 ml 50 ml 3,3 28 m
50 ml 50 ml 2 28 m
1. tafla. Blöndun arGrow® Support fyrir hverja
meðferð.
Ár 2012 2013
Landgerðir Melur Melur Mói
Fjöldi plantna Magn N/
plöntu
Viðmið,
enginn
áburður
40 60 60 0
arGrow 20 ml 40 60 60 20 mg
arGrow 30 ml 40 30 mg
arGrow 50 ml 40 50 mg
Hefðbundinn
áburður
60 60 2 g
Heildarfjöldi
plantna
160 180 180
2. tafla. Meðferðir og fjöldi plantna í mel og mólendi,
árin 2012 og 2013.