Rit Mógilsár - 2014, Page 82

Rit Mógilsár - 2014, Page 82
82 Rit Mógilsár 31/2014 samanburð á áhrifum áburðarins miðað við hefðbundinn áburð. Efni og aðferðir Tilraunirnar sem lýst er hér að neðan voru settar út árin 2012 og 2013. Eins árs rússa- lerkiplöntur (Larix sukaczewi), af kvæminu Lassimaa, voru notaðar í báðum tilraun- unum. Því var sáð vorið 2011 og 2012 í Sól- skógum ehf. á Akureyri og ræktað í Hiko 40-hólfa bökkum (93 ml). Vorið 2012 var arGrow® Support (70% N) blandað í vatn í mismunandi styrkleikum (1. tafla) og sprautað í rótarhnaus tilraunaplantna daginn fyrir gróðursetningu. Þar sem argrow® Support inniheldur aðeins N var fosfór (Haifa KH2PO4) leystur upp í blönd- unni. Magnið sem notað var samsvaraði 50,87 g í einn lítra arGrow® Support. Þann 18. júní voru allar meðferðir (2. tafla) gróður- settar í mel á Espihóli í innanverðum Eyjafirði (1. mynd). Gróðursett var í 4 blokkir með 10 plöntum í hverri endurtekningu. Ársvöxtur allra meðferða var mældur í september sama ár. Vorið 2013 var önnur aðferð notuð til þess að koma argrow® Support á plönturnar. Þá var veikasta áburðarlausnin (20 ml) blönduð samkvæmt 1. töflu og garðkanna notuð til þess að vökva yfir plönturnar með áburðinum, alls 1,12 l af blöndunni yfir 40 plöntur. Aðrir meðferðarliðir vorið 2013 voru viðmið og svo var borið á þriðja meðferðar- liðinn með 10 g af Sprett (Carrs Fertilisers, Scotland, NP (20-10-10) eftir gróðursetningu. Gróðursett var í tvenns konar landgerð vorið 2013, í sama mel og notaður var árið áður 10 júní og í jarðunnið (tætt) mólendi á Stóru- Hámundarstöðum við Dalvík 12 júní. Mólendið einkenndist af fjalldrapa og bláberja lyngi (2. mynd). Í hvorri landgerð voru 6 blokkir með 10 plöntum í endurtekningu. Ársvöxtur, mældur í september, var notaður til þess að mæla áhrif áburðartegundanna bæði árin sem tilraunirnar voru settar út. Meðferðir Magn arGrow® Support blandað í vatn Magn vatns/ lítrar Magn blöndu sem sett var í rótarhnaus 20 ml 50 ml 5 28 ml 30 ml 50 ml 3,3 28 m 50 ml 50 ml 2 28 m 1. tafla. Blöndun arGrow® Support fyrir hverja meðferð. Ár 2012 2013 Landgerðir Melur Melur Mói Fjöldi plantna Magn N/ plöntu Viðmið, enginn áburður 40 60 60 0 arGrow 20 ml 40 60 60 20 mg arGrow 30 ml 40 30 mg arGrow 50 ml 40 50 mg Hefðbundinn áburður 60 60 2 g Heildarfjöldi plantna 160 180 180 2. tafla. Meðferðir og fjöldi plantna í mel og mólendi, árin 2012 og 2013.

x

Rit Mógilsár

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.