Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 22

Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 22
Náttúrufræðingurinn 242 INNGANGUR Í grein þessari verður greint frá jarðfræði og skriðufallasögu Herjólfs- dals í Vestmannaeyjum og byggist hún á athugunum sem gerðar voru fyrir Veðurstofu Íslands þegar unnið var að ofanflóðahættumati fyrir dalinn.1 Þarna er stórt tjaldstæði og gistiaðstaða í smáhýsum undir bröttum hlíðum og klettaveggjum. Auk þess er dalurinn vettvangur mikillar árlegrar útiskemmt- unar. Af þessum sökum þótti nauðsyn- legt að gert yrði umrætt hættumat. Í hættumatsskýrslunni er jarðmyndunum dalsins lýst og rýnt í skriðufallasögu hans. Grafnar voru könnunargryfjur og jarðvegssnið mæld, stöðugleiki berg- laga í klettaveggnum yfir tjaldstæðinu var kannaður og metin hætta á skriðum og hruni. Hér verður greint frá jarð- gerð og skriðufallasögu Herjólfsdals en um hættumatið vísast til skýrslu Veðurstofunnar. Jarðsögukaflinn um uppbyggingu og tilurð Heimaeyjar er byggður á rannsóknum annarra. BERGGRUNNUR Nyrsti hluti Heimaeyjar státar af bröttum fellum og klettahöfðum sem kallast Norðurklettar og eru jafnframt elsti hluti eyjarinnar. Helstu fell og höfðar eru: Dalfjall (Blátindur 268 m y.s.), (1. mynd), Háin (~220 m y.s.), Klif (228 m y.s.), Heimaklettur (279 m y.s.), Mið- klettur (207 m y.s.) og Ystiklettur (207 m y.s.) (2. mynd). Jarðmyndunum Norðurkletta hefur verið rannsökuð allítarlega á síðari árum.2–4 Þrjár bergmyndanir koma mest við sögu í hlíðum Herjólfsdals, Háarmó- bergið, neðri hluti Dalfjalls ásamt Fílnum svokallaða og efri hluti Dalfjalls. Aldursgreiningar Ingvars A. Sigurðs- sonar og félaga benda til þess að allar þessar myndanir séu af svipuðum aldri eða 40–50 þúsund ára, það er að segja frá miðju síðasta jökulskeiði.5 Eftirfarandi umfjöllun um jarðsögu Heimaeyjar og jarðmyndanir í Herjólfs- dal er að mestu byggð á lýsingu Ingvars Sigurðssonar og Sveins P. Jakobssonar í Árbók FÍ 2009.4 Þeir telja að Háin og móbergið við Fiskhella séu með elstu bergmyndunum á Heimaey. Móbergið myndar hina þverhníptu hamra í aust- urhlíðum Herjólfsdals en er að mestu hulið skriðum í norður- og vestur- hlíðunum. Fjósaklettur er úr þessu bergi (1. mynd). Háin virðist vera gjóskugígur sem orðið hefur til við gos í sjó en ekki í jökli. Bergið er áberandi lagskipt og hallar lagskiptingunni frá Herjólfsdal, neðri hlutanum til suðausturs en efri hlutanum til norðausturs. Berggerðin er alkalí-ólivínbasalt og er tiltölulega hreint dílalaust túff. Háin rís hæst í um 220 metra y.s. þar sem heitir Moldi, en lækkar til suðurs og austurs. Brattasti hluti höfðans snýr til vesturs inn að Herjólfsdal þar sem þver- skorin klettabrúnin stendur í um 180 metra hæð yfir flatlendinu í botni dals- ins. Í bergstálinu í austurhlíð dalsins sér hvergi í bergganga eða æðar. 2. mynd. Jarðfræðikort af Herjólfsdal og Norðurklettum. Staðsetning Herjólfshaugs er sýnd þótt hann sé raunar horfinn með öllu – Geological map of the Herjólfsdalur valley and the Norðurklettar cliffs in the Heimaey island. The location of the disappeared Herjólfshaugur is indicated. Kort og kortvinnsla/Map and cartography: Árni Hjartarson og Albert Þorbergsson. Ritrýnd grein / Peer reviewed
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.