Náttúrufræðingurinn - 2020, Side 43
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
263
hvaða hegðun hver einstaklingur sýnir,
samkvæmt hegðunarkortinu, á því
augnabliki sem augað nemur fuglinn
eða staðnæmist við hann. Ekki skiptir
máli hve stór hópurinn er heldur þarf
einungis að gæta þess að hegðun hvers
einstaklings sé skráð aðeins einu sinni í
hverri skimun. Þetta gerði ég á hverjum
skráningardegi á tilviljunarkenndan
hátt og einbeitti mér að því að skrá
hegðun fuglanna sem voru á jörðinni
nálægt hrossunum. Í sumum tilvikum
var fjöldi fugla það mikill (yfir 100) að
ég gat ekki lokið við að skima hann áður
en hann hafði dreift sér eða blandast
aftur. Ég ákvað því að nota gögn úr alls
22 skimunum þar sem hópstærðin var
á milli 10 og 70. Með því gat ég einnig
athugað hvort hópstærðin hefði áhrif á
hegðun þeirra.
5. mynd. Ung hryssa, Freyja, með áberandi berjaskít á bakinu. – Many berry dropp-
ings on the back of a young gray mare. Ljósm./Photo: Hrefna Sigurjónsdóttir.
Heiti
Category
Skilgreining/lýsing
Definitions
Pikkar (fæðuleit – foraging)
Picking
Setur gogginn ofan í svörðinn ótt og títt í leit að bráð, tekur skref á milli, höfuð alltaf neðan við baklínu.
Foraging on the ground by repeatedly picking the ground. Head below the back line.
Potar í skít (fæðuleit)
Probing
Hér borar fuglinn goggnum niður í skítinn og dregur bráðina upp.
The bird probes into the dropping with the bill, and pulls the prey out.
Flögrar (fæðuleit)
Hawking
Hoppar upp í loftið og breiðir úr vængjunum (flögrar), væntanlega til að ná í skordýr sem hefur flogið upp.
Jumps into the air with rapid movements of the wings and attacks the prey.2
Hoppar (fæðuleit)
Jumping
Hoppar jafnfætis upp í loftið
Jumps with both feet up into the air. Does not open the wings.
Hleypur (fæðuleit)
Running
Hleypur hratt og færir sig um set.
Runs: takes quick steps and moves some distance.
Gengur (fæðuleit)
Walking
Gengur rólega og er uppreistur.
Walks calmly with the head erect.
Stendur á jörðinni
Standing
Stendur kyrr í eðlilegri stöðu eða er reistur (árvakur).
Stands still and is erect and sometimes he extends its neck (is alert).
Snyrtir sig
Preening
Fuglinn stendur og snyrtir fjaðrirnar.
The bird preens its feathers while standing.
Sefur / kúrir
Resting*
Fuglinn sest niður og hvílir sig, stundum með höfuð undir væng.
The bird is sitting down with its belly to the ground.
Flýgur
Flying**
Fuglinn flýgur ákveðið, einn eða í hóp.
The bird is flying close to the ground.
Illindi
Aggression
Tveir eða fleiri fuglar takast á, hoppa upp, garga, pota í andstæðing.
Two or more birds squabble – attack each other, bite, jump up and make a noice.
Á baki hestsins (fuglinn getur sýnt
ýmiss konar atferli)
The bird is seen on the back of a horse
and can show different behaviours.
Fuglinn ýmist kúrir sig niður, stendur eðlilega, stendur með höfuð hátt (á verði), snyrtir sig, hefur samskipti við
aðra, pikkar í feld eða fax eða er að skella sér niður á jörðina.
The bird can rest, stand, stand alert, preen the feathers, communicate with others, eat from the skin/mane
of the horse or starting to take a plunge to the ground.
* Sást ekki þegar skimað var. / Not scored while instantanous scanning were done.
** Var ekki talið með þegar skimað var yfir hóp á jörðinni. / Not included in the scannings.
1. tafla. Hegðun staranna sem ég varð vitni að er hér skilgreind í nokkra þætti (atferlisgerðir). Þegar skimað er yfir hóp þá er miðað við þessar
skilgreiningar. – Ethogram for the behaviour of the starlings on the ground.