Þjóðmál - 01.06.2016, Page 42

Þjóðmál - 01.06.2016, Page 42
Þegar ræður og viðtöl við Davíð Oddsson fyrir og um síðustu aldamót eru skoðuð er greinilegt að hann var sannfærður um að rétt væri að setja lög um hámarks eignarhlut einstakra hluthafa í fjármálafyrirtækjum. Ekki sé„æskilegt að menn hafi á tilfinningunni að það séu einhver önnur sjónarmið, sem ráði stefnu banka, en almenn arðsemissjónarmið, eins og einhverjir þröngir hags- munir ráðandi hóps," sagði Davíð í viðtali við Morgunblaðið 8. ágúst 1998. Hann taldi að 3-8% hlutur væri hæfilegur. Síðar talaði hann um 5% eignarhlut. Davíð mislíkaði, með réttu eða röngu, þeir viðskiptahættir sem höfðu verið innleiddir á íslandi um og eftir síðustu aldamót. Honum ofbauð bónus- og kaupréttargreiðslur í bankakerfinu og vildi koma í veg fyrir samþjöppun viðskiptalífsins ekki síst á neytenda- og fjölmiðlamarkaði. Davíð hafði augljóslega verulegar og vaxandi áhyggjur af því að áhrifamiklir aðilar í viðskiptalífinu væru að skara eld að eigin köku á kostnað almenn- ings en í skjóli aukins frelsis sem hann hafði barist fyrir. Hann taldi sig hafa raunverulega ástæðu til að óttast að einskonar óligarka- veldi gæti myndast á íslandi. Hámark á eignarhlut í bönkum Þegar ræður og viðtöl við Davíð Oddsson, fyrir og um síðustu aldamót, eru skoðuð er greinilegt að hann var sannfærður um að rétt væri að setja lög um hámarks eignarhlut einstakra hluthafa í fjármálafyrirtækjum. Ekki sé„æskilegt að menn hafi á tilfinningunni að það séu einhver önnur sjónarmið, sem ráði stefnu banka, en almenn arðsemissjónarmið, eins og einhverjir þröngir hagsmunir ráðandi hóps," sagði Davíð í viðtali við Morgunblaðið 8. ágúst 1998. Hann taldi að 3-8% hlutur væri hæfilegur. Síðartalaði hann um 5% eignarhlut. Ótti Davíðs Oddssonar við að önnur sjónarmið réðu ferðinni í rekstri banka en „almennt arðsemissjónarmið''ef ekki væri hægt að tryggja dreifða eignaraðild er merki- legur í Ijósi þess sem síðar gerðist. Réttu ári eftir að Davíð Oddsson sagði rétt að huga að lagasetningu til að tryggja dreift eignarhald og setja hámark á eignarhlut einstakra aðila í bönkum var tilkynnt um að eignarhaldsfélagið Orca SA hefði keypt 26,5% hlut í Fjárfestingabanka atvinnulífsins [FBA] af Scandinavian Holdings SA, sem var í eigu Kaupþings og nokkurra sparisjóða. Þá var í undirbúningi að selja 51% hlut ríkisins í FBA. Davíð tók þessum fréttum illa enda sann- færður um að með þessu væri Kaupþing að gera tilraun til þess að koma í veg fyrir að hægt væri að klára einkavæðingu á Fjárfest- ingarbanka atvinnulífsins með þeim hætti sem hann hafði séð fyrir sér, þ.e. með dreifðu eignarhaldi.1 í fyrstu var leynd yfir því hverjir væru á bakið við Orca. Félagið var erlent og skráð í Lúxemborg.2 Um miðjan ágúst 1999 var greint frá því að fjórir hópar fjárfesta 1 Þrátt fyrir að Davíð væri forsætisráðherra og sagður ráða því sem hann vildi, varð hann að láta eftir gagnvart Framsóknarflokki og raunar einnig gagnvart eigin þingmönnum og áhrifamönnum innan Sjálfstæðisflokksins. Rétt er að taka fram sá sem þetta skrifar taldi á þessum tíma að hug- myndin um dreifða eignaraðild væri rómantísk, en óraunhæf. 2 Morgunblaðið birti frétt um hluthafa Orca 4. ágúst en þar sagði meðal annars:„Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru helztu eigendur Orca S.A. eða væntanlegir eigendur, þar sem í sumum tilvikum hefur ekki verið gengið endan- lega frá eignaraðild, Samherji hf. á Akureyri eða helztu forsvarsmenn þess, Jón Ólafsson, stjórn- arformaður Norðurljósa hf., Pétur Björnsson, fyrrverandi aðaleigandi Vífilfells hf., Jón Ásgeir Jóhannesson og Jóhannes Jónsson, helztu hluthafar í Baugi hf., og fleiri aðilar." Pétur Björns- son sendi frá sér sérstaka yfirlýsingu þar sem því var hafnað að hann ætti aðild að Orca-hópnum. Frétt Morgunblaðsins var hins vegar rétt að öðru leyti en í stað Péturs var Eyjólfur Sveinsson og hópurfjárfesta, meðal eigenda Orca. 40 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2016

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.