Þjóðmál - 01.09.2018, Blaðsíða 12
10 ÞJÓÐMÁL Haust 2018
Ýmislegt sem sagt hefur verið í umræðum
um 3. orkupakkann minnir á frásagnir frá
útlöndum um plöntun falsfrétta eða skipu
legar upplýsingafalsanir til að knýja fram
niðurstöðu hagstæða þeim sem fyrir her
ferðinni stendur. Verði málið greint nánar
hlýtur að koma í ljós hver hefur helst hag af
því að spilla fyrir framgangi þessa máls eða
að nota það til að grafa undan EESaðildinni.
Um aðildina að EES var ályktað á landsfundi
sjálfstæðismanna í mars 2018 á þennan veg í
kaflanum um utanríkismál:
„Nú þegar aldarfjórðungur er liðinn frá
undirritun EES samningsins er tímabært
að gera úttekt á reynslu Íslands af honum.
Áríðandi er að haldið verði áfram að efla
hagsmunagæslu innan ramma EES og
tryggja að möguleikar Íslands til áhrifa á
fyrri stigum EES mála verði nýttir til fulls.
Sjálfstæðisflokkurinn gerir verulegar
athuga semdir við að tekin sé upp löggjöf
í EESsamninginn sem felur í sér vald
heimildir sem fellur utan ramma tveggja
stoða kerfis samningsins.“
Utanríkisráðherra hefur nú stofnað til úttektar
á EESsamningnum. Á henni að verða lokið
í byrjun september 2019. Að því er varðar
tveggja stoða kerfið svonefnda í EESsam
starfinu snýr það að því að tryggja sjálfstæði
EES/EFTAríkjanna (Íslands, Liechtensteins og
Noregs) að EESsamstarfi nu með sjálfstæði
stofnana á borð við Eftirlitsstofnun EFTA (ESA)
og EFTAdómstólsins.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis
flokksins, hefur helst varað við hættunum af
því að á hlut EES/EFTAríkjanna verði gengið
að þessu leyti. Raunar er grundvallaratriði
fyrir EESaðild Íslands að tveggja stoða kerfið
virki og tryggi að EESaðildin samræmist
íslensku stjórnarskránni. Þannig var um
hnúta búið við upphaf aðildar á sínum tíma
og hefur verið margítrekað síðan.
IV.
Á liðnu sumri birtust frásagnir af fimm málum
þar sem dómari, kærunefnd jafnréttis mála,
umboðsmaður alþingis og umboðsmaður
borgara komust að þeirri niðurstöðu að illa
hefði verið staðið að stjórnsýslu á vettvangi
yfirvalda Reykjavíkurborgar.
Borgarstjóri ber að sjálfsögðu lokaábyrgð á
stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Í skipuriti borgar
yfirvalda segir að skrifstofustjóri borgarstjóra
og borgarritara fari með yfirumsjón með stjórn
sýslu, miðlægri stoðþjónustu og samhæfingu
innan stjórnsýslu borgarinnar í samstarfi við
borgarritara.
Á tveimur mánuðum, frá byrjun júní til loka júlí
2018, féllu fimm áfellisdómar vegna þessarar
stjórnsýslu:
5. júní 2018:
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmir
Reykjavíkur borg til að greiða starfsmanni
Ráðhúss Reykjavíkur skaðabætur vegna
slæmrar framkomu skrifstofustjóra
skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.
2. júlí 2018:
Kærunefnd jafnréttismála telur
Reykjavíkur borg hafa brotið gegn 1. mgr.
26. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla við ráðningu
borgarlögmanns á árinu 2017.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur stofnað
til úttektar á EESsamningnum. Á henni að verða lokið í
byrjun september 2019.