Þjóðmál - 01.09.2018, Side 56
54 ÞJÓÐMÁL Haust 2018
Þó að markaður Evrópusambandsins muni
áfram skipta máli mun vægi hans halda áfram
að minnka. Eðlilega vaknar sú spurning hverju
sé fórnandi fyrir það að binda sig sífellt fastar
á klafa slíks markaðar eins og felst í EES
samningnum með sívaxandi kröfu um framsal
ríkisvalds og sífellt meira íþyngjandi regluverki
sem meðal annars þrengir svigrúm Íslands til
þess að semja um fríverzlun við önnur ríki sem
miklu fremur eru framtíðarmarkaðir.
Tímabært er að skoða það alvarlega og með
opnum huga að skipta aðild Íslands að
EESsamningnum út fyrir víðtækan og nútíma
legan fríverzlunarsamning líkt og ríki heimsins
eru að gera sín á milli í dag. Þar á meðal
stærstu hagkerfi heimsins eins og Banda
ríkin, Kína og Japan sem hafa mun flóknari
hags muni en við Íslendingar. Þá hvort sem
það væri í samstarfi við hin EFTAríkin eða
sjálfstætt. Það er ástæða fyrir því að ríki eru að
gera slíka samninga í dag en ekki samninga
eins og EESsamninginn og að brezkum
stjórnvöldum hugnast ekki aðild að honum
eftir að úr Evrópusambandinu er komið.
Víðtækir fríverzlunarsamningar snúast ekki
aðeins um vöruviðskipti eins og eldri frí
verzlunar samningar heldur einnig þjónustu
viðskipti og annað sem máli skiptir í
milli ríkja viðskiptum í dag.
Slíkir samningar fara enn fremur ekki gegn
ákvæðum stjórnar skrárinnar enda gera þeir
ekki kröfu um sívaxandi framsal ríkisvalds
til erlendra stofnana og einhliða upptöku
löggjafar eins og EESsamningurinn. Evrópu
sambandið hefur meðal annars lagt áherzlu
á slíka samninga í seinni tíð og samið um þá
til að mynda við Kanada og Japan og boðið
Bretlandi slíkan samning þar sem meðal
annars er gert ráð fyrir fullu tollfrelsi fyrir
sjávarafurðir sem ekki hefur verið í boði í
gegnum EESsamninginn.
Full ástæða er því til þess að skoða þennan
möguleika alvarlega.
Höfundur er sagnfræðingur og MA í
alþjóðasamskiptum.
Heimildir:
1. „Viðræður við Kínverja komnar á ís“, Morgunblaðið
13. nóvember 2009. https://www.mbl.is/greinasafn/
grein/1310201/
2. „Fríverslun rædd við viðskiptaráðherra Kína“, Mbl.is 24.
apríl 2012. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/04/20/
friverslun_raedd_vid_vidskiptaradherra_kina/
3. „Gengið til góðs. Skref í átt að bættri framkvæmd
EESsamningsins“, Stjornarradid.is apríl 2018 (bls.
13). https://www.stjornarradid.is/lisalib/getfile.
aspx?itemid=6d677b8559ed11e89429005056bc4d74
4. „Umsóknin ekki dregin til baka?“ Mbl.is 13. marz 2015.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/03/13/umsoknin_
ekki_dregin_til_baka/
5. „'Zou TTIP er onder Hillary Clinton wel snel komen?
Forget it'“, Financieele Dagblad. https://fd.nl/economie
politiek/1187776/zouttiperonderhillaryclintonwel
snelkomenforgetit
6. „Iceland: On the verge of withdrawing its EU accession
application?“, Europarl.europa.eu marz 2014. http://www.
europarl.europa.eu/RegData/etudes/briefing_note/
join/2014/522331/EXPOAFET_SP(2014)522331_EN.pdf
7. „Don't let the EU dictate Brexit if you want a speedy
US trade deal, Trump adviser warns UK“, Telegraph.co.uk
6. nóvember 2017. https://www.telegraph.co.uk/busi
ness/2017/11/06/dontleteudictatebrexituswarns
britain/
8. „Tollar og reglur ESB í veginum“, Mbl.is 14. janúar 2014.
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2014/01/14/tol
lar_og_reglur_esb_i_veginum/
9. „Hagkvæmara að flytja inn frá Evrópu“, Mbl.is 28. júní
2017. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/06/28/hag
kvaemara_ad_flytja_inn_fra_evropu/
10. „Reglur um merkingar stoppuðu Costco“, Mbl.
is 24. janúar 2015. https://www.mbl.is/vidskipti/fret
tir/2015/01/24/reglur_um_merkingar_stoppudu_costco/
11. „38% snyrtivara uppfylla ekki skilyrði“, Mbl.is 13. ágúst
2018. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/08/13/38_
prosent_snyrtivara_uppfylla_ekki_skilyrdi/
12. „Parliamentary questions“, Europarl.europa.eu 18. marz
2016. http://www.europarl.europa.eu/sides/getAllAn
swers.do?reference=E2015014997&language=EN
13. „Europe's glory days at an end, warns Juncker“,
Telegraph.co.uk 22. október 2015. https://www.telegraph.
co.uk/news/worldnews/europe/eu/11949038/Europes
glorydaysatanendwarnsJuncker.html