Þjóðmál - 01.09.2018, Page 70

Þjóðmál - 01.09.2018, Page 70
68 ÞJÓÐMÁL Haust 2018 Í útreikningum afkomuígildisstuðla er allur afli meðhöndlaður eins, hvort sem hann er meðafli eða ekki, þ.e.a.s. allur afli er látinn bera kostnað af veiðiferð í hlutfalli af aflaverðmæti. Það hefur t.d. þær afleiðingar að tegundir sem eru afar verðmætar en eru veiddar í litlu magni, og þá fyrir tilviljun, eins og t.d. túnfiskur, eru nær alltaf með neikvæða afkomu. Við útreikning á afkomuígildum er kostnaði fiskveiðitúrs deilt niður á nytjastofna sem voru veiddir í túrnum í hlutfalli við aflaverð­ mæti þeirra. Ef 30% af aflaverðmæti túrsins eru þorskur teljast þá 30% af kostnaði túrsins til þorsks. Í dæmi túnfisks er kostnaður við veiðar á honum oft ofreiknaður því aflaverð­ mæti túnfisksins er mikið og telst því óeðli­ lega stór hluti af kostnaði túrsins til túnfisks. Enn fremur er sjaldan, ef nokkurn tímann, farið í fisktveiðitúr með það að markmiði að veiða túnfisk og því er það með öllu handa­ hófskennt hvort hann er veiddur. Það er því ljóst að miðað við gildandi reiknireglur er ómögulegt að reikna út afkomuígildi fyrir túnfisk sem tekur mið af raunverulegri framlegð við veiðar. Útreikningur á þeim tegundum sem eru nær einungis veiddar sem meðafli verða því aldrei lýsandi fyrir sóknarkostnað við að veiða þær tegundir. Aftur á móti eru afkomuígildi nákvæmari fyrir tegundir sem eru veiddar meira, sérstaklega ef margar veiðiferðir eru farnar þar sem einungis einn nytjastofn er veiddur. Í þeim tilfellum telst allur sóknarkostnaður veiði­ ferðarinnar til þess nytjastofns. Til þess að leiðrétta þessa skekkju hafa Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi m.a. lagt til að tegundir sem sæta ekki takmörkuðum veiðum beri ekki veiðigjald. Byggir þessi tillaga á því að fjárhagsleg áhrif hennar væru óveruleg á ríkissjóð en einfaldi mjög, flýti fyrir og bæti vinnu veiðigjaldsnefndar, því þá þarf ekki að reikna veiðigjald á jafnmargar tegundir. Á sama grundvelli hafa Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi lagt til að tegundir sem eru lítið veiddar en eru kvótasettar beri 2% veiðigjald af aflaverðmæti. Byggir þetta á sömu hugsun, þ.e.a.s. að ekki sé bein sókn í þessar tegundir og því séu afkomuígildisstuðlar hlutað eigandi tegunda handahófskenndir. Þetta myndi leiða til þess að veiðigjald á lítið veiddar tegundir lækkaði umtalsvert. Sjávarútvegur þarf stöðugleika Ljóst er að ýmislegt þarf að taka til endur­ skoðunar í lögum um veiðigjald. Hvað ýmis atriði varðar ná lögin ekki markmiði sínu um að taka mið af afkomu í sjávarútvegi, en nauðsynlegt er að slíkur útreikningur sé sem nákvæmastur, því annars getur sú staða komið upp að veiðigjaldið verði óhóflegt og ósanngjarnt. Það væri mikil bót fyrir íslenskan sjávarútveg að fá stöðugleika varðandi skattlagningu á greininni, jafnvel þótt það þýði að skatturinn sé tiltölulega hár eins og raunin er í dag. Færa má öflug rök fyrir því að veiðigjald yfirstand andi fiskveiðiárs sé of hátt og er það m.a. bein afleiðing af ónákvæmni í útreikningi gjaldsins. Í fjármagnsfrekum rekstri er stöðugleiki gulls ígildi og sífelld pólitísk afskipti af skatt­ lagn ingu á greininni gera henni erfitt fyrir. Þess vegna er líklega besta leiðin að halda áfram að lagfæra núverandi fyrirkomulag við útreikning veiðigjalds í stað þess að leggjast í grundvallarbreytingar sem geta kallað á ófyrirsjáanlegar afleiðingar – sem svo kunna að kalla á enn frekari breytingar til ókominnar framtíðar. Út úr þeim vítahring er nauðsynlegt að losna, að gjaldtaka af sjávarútvegi sé eilíft þrætuepli stjórnmála­ manna með tilheyrandi óvissu fyrir þá sem starfa í sjávarútvegi. Höfundur er lögfræðingur og formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Greinin byggir á nýútgefinni meistara- ritgerð höfundar sem fjallar um lög um veiðigjald.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.