Þjóðmál - 01.09.2018, Síða 72

Þjóðmál - 01.09.2018, Síða 72
70 ÞJÓÐMÁL Haust 2018 Bandaríski rithöfundurinn og samfélags­ rýnirinn Caitlin Flanagan skrifaði í byrjun ágúst áhugaverða grein um Jordan Peterson og viðbrögð vinstrimanna við orðræðu hans á vef tímaritsins The Atlantic. Flanagan segir frá því að fyrir um tveimur árum hafi sonur hennar, sem þá var á unglingsaldri, verið að horfa á það sem henni fannst undarlegt YouTube­myndband í sjónvarpinu. Þegar hún spurði hann hvað þetta væri útskýrði hann fyrir henni að þetta væri sálfræðiprófessor við Háskólann í Toronto að tala um nýsett lög þar í landi. Flanagan taldi að drengurinn væri nú kominn að endalokum internetsins og þetta væri það eina sem væri eftir. Sonur hennar reyndi þó síðar um kvöldið að útskýra boðskap Peterson fyrir móður sinni en fyrir henni var það bara suð í eyrum og hún vildi frekar tala um eitthvað áhuga verðara. Þó kom brátt í ljós að margir vina hans – sem líkt og hann voru framsæknir Demókratar sem aldir voru upp á frjáls lyndum heimilum í Los Angeles og höfðu samfélagsstöðu samkvæmt því – höfðu horft á myndbönd Peterson og ræddu töluvert um það sín á milli. Að loknu grunnskólanámi (e. high school) hélt vinahópurinn í háskóla þar sem þeir voru útsettir fyrir þeirri pólitískri umræðu sem einkennir háskólasamfélagið vestanhafs um þessar mundir. Þeir rugguðu þó ekki bátnum og tóku ekki þátt í pólitískri umræðu í skólanum. Þess í stað hlustuðu þeir á þennan mann, Jordan Peterson, hvar sem þeir gátu; í herbergjum sínum, í rútunni á leið á leiki, í ræktinni o.s.frv. Í framhaldinu fóru þeir að hlusta á önnur hljóðvörp (e. podcast), s.s. Sam Harris, Dave Rubin og Joe Rogan. „Það sem þeir fengu út úr þessum fyrir lestrum og umræðum, sem oft voru langar og flóknar, voru mögulega einu rökin sem þeir höfðu nokkurn tímann heyrt gegn auðkennis­ stjórnmálum (e. identity politics) á ævi sinni,“ segir Flanagan. Flanagan segir að með því að ýta staðal­ ímyndum auðkennisstjórnmála út af borðinu hafi skapast svigrúm til að ræða alls konar málefni – trú, heimspeki, sögu og goðsagnir – á annan hátt en áður. Þannig gefist svigrúm til að móta sína eigin afstöðu til hugmynda; afstöðu sem byggist á reynslu og þekkingu en er ekki miðlað af fyrir fram ákveðinni hugmyndafræði. Án þess að gera sér grein fyrir því voru þessir ungu menn að taka þátt í stórri bylgju bandarískra háskólanema sem hlustuðu á Peterson, beint fyrir framan nefið á þeim fræðimönnum sem hafa það hlutverk að mennta ungt fólk og hafa talað með allt öðrum hætti en Peterson hefur gert. Flanagan segir að þar sem þetta hafi átt sér stað með þöglum hætti, þ.e. boðskapur Peterson verið sóttur í gegnum gervihnött og streymt í gegnum heyrnartól í stað þess að fara fram á svokölluðum fræðasvæðum – þar sem hægt var að fylgjast með honum, hrópa hann niður og tilkynna til viðeigandi yfir valda –hafi vinstrimenn verið seinir að átta sig á því hversu erfiður þessi boðskapur ætti eftir að reynast þeim. Að sögn Flanagan voru þetta þó ekki bara háskólanemar, þvert á móti. Úti um allt land var fólk að hlusta á hljóðvörpin. Þáttur Joe Rogan, með fjölbreyttri samblöndu af gestum og viðfangsefnum, var vettvangur þar sem hugmyndir Peterson fengu reglu lega hljómgrunn – ýmist af honum sjálfum eða öðrum hugsuðum sem hann var lauslega tengdur. Hljóðvarpi Rogans er hlaðið niður af milljónum einstaklinga í hverjum mánuði. „Hvað sem var að gerast, þá var það að gerast á mælikvarða og hraða sem var umfram getu þess sem hinn hefðbundni menningarmaður getur höndlað,“ segir Flanagan í grein sinni. „Þegar vinstrið áttaði sig á þessu var það um seinan, þeir hefðu allt eins getað reynt að tæma Kyrrahafið með skeið.“ Flanagan segir að viðvörunarbjöllurnar hafi þó farið af stað þegar Peterson gaf út metsölubók sína, Tólf lífsreglur: Mótefni við glundroða, vegna þess að bækur eru nokkuð sem vinstrið viðurkennir sem drifkraft menningar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.