Þjóðmál - 01.09.2018, Page 79
ÞJÓÐMÁL Haust 2018 77
Árið 1976 var Ólympíuskákmótið haldið í Haifa
í Ísrael. Þá mótmæltu flestar arabaþjóðir og
héldu sitt eigið Ólympíuskákmót í Trípólí sem
var lítið og fámennt. Það snerist svo við þegar
mótið var haldið í Dubai í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum árið 1986. Þá mættu Ísraels
menn ekki. Pólítík hefur því sett stóran svip á
Ólympíuskákmótin í gegnum tíðina. Armenar
mættu heldur ekki á Ólympíuskákmótið í
Bakú 2016 í Aserbaídsjan enda eiga þjóðirnar
formlega í stríði.
Allir eru velkomnir á Ólympíuskákmótið í
Batumi í Georgíu, nema þeir sem hafa komið
til SuðurOssetíu og Abkasíu, en þau héruð
voru hertekin af Rússum árið 2008. Þeir sem
hafa komið þangað geta verið handteknir við
komuna til Georgíu, sem lítur á þau sem sitt
landsvæði.
Ísland á Ólympíuskákmótum
í gegnum tíðina
Íslendingar hafa alls tekið þátt 37 sinnum
á Ólympíuskákmóti; fyrst á þriðja Ólympíu
skákmótinu árið 1930. Síðan 1952 hefur
Ísland ávallt tekið þátt. Þess fyrir utan tefldi
Ísland á hinu umdeilda Ólympíuskákmóti í
Þýskalandi nasismans árið 1936.
Íslandi hefur oftsinnis gengið vel á Ólympíu
skákmóti. Fræg er þátttakan á Ólympíuskák
mótinu í Buenos Aires 1939 sem fram fór í
stríðsbyrjun. Þá þurftu íslensku keppendurnir
að ferðast í þrjár vikur til að komast til baka!
Þá vann liðið bkeppnina og Copa
Argentinabikarinn, sem var mikið afrek.
Tímabilið 19841996 var sannkallað gullaldar
tímabil Íslands. Þá endaði íslenska liðið
aldrei neðar en í 22. sæti og þrívegis á topp
10. Besti árangurinn var í Dubai 1986 þegar
íslenska liðið endaði í fimmta sæti. Um það
afrek skrifuðu dr. Kristján Guðmundsson og
Jón L. Árnason stórgóða bók; Skákstríð við
Persaflóa.
Ísland hefur heldur gefið eftir á heimsvísu
þrátt fyrir að vera enn með sterkasta landslið
heims miðað við höfðatölu! Síðustu ár hefur
íslenska liðið endað í kringum í 40. sæti.
Kvennaliðið
Á Ólympíuskákmótum er teflt í opnum
flokki og kvennaflokki. Skákkonur geta teflt
í opnum flokki og gera það stundum. Judit
Polgar tefldi ávallt í opnum flokki fyrir Ung
verjaland.
Ísland sendi fyrst kvennalið til keppni árið
1978. Þá ætlaði Skáksambandið ekki að
senda lið. Birna Norðdahl, sem þá var ein
sterkasta skákkona landsins, barði þá í
borðið og sagði „Við förum samt“ og safnaði
sjálf fullum farareyri. Ísland sendi ekki lið á
árunum 19861998, enda voru þá afar fáar
konur teflandi hérlendis.
Síðan árið 2000 hefur íslenskt kvennalið
ávallt tekið þátt. Kvennaliðið hefur síðustu ár
verið í kringum 5060. sæti.
Ólympíuhópurinn 1978 fyrsta kvennaliðið
sem sent var. Birna Norðdahl lengst til vinstri.
Guðlaug Þorsteinsdóttir önnur til hægri.