Þjóðmál - 01.12.2019, Blaðsíða 13
ÞJÓÐMÁL Vetur 2019 11
6
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmála
ráðherra sagðist við atkvæðagreiðsluna ekki
sitja undir ásökunum um að ætla að veikja
eftirlitsstofnanir. Síðustu ár hefðu „gríðarlegir
fjármunir“ runnið til að efla þær eftirlits
stofnanir sem nú væru nefndar til sögunnar.
Rakti hún síðan ráðstöfunarheimildir
ráðherra samkvæmt lögum um opinber
fjármál. Yrði unnt að bregðast við óvæntum
útgjöldum reyndist þess þörf vegna ásakana
á hendur Samherja og öðrum.
Tveimur dögum fyrir atkvæðagreiðsluna um
fjárlögin mánudaginn 25. nóvember gekk
Bjarni Benediktsson, fjármála og efnahags
ráðherra, út af þingfundi til að mótmæla
fundarstjórn Guðjóns S. Brjánssonar (Sam
fylkingu), fyrsta varaforseta alþingis, sem gaf
flokkssystkinum sínum svigrúm til að vega
að ráðherranum með ásökunum um lögbrot.
Hann ætlaði ekki að beita sér fyrir auknum
fjárheimildum til rannsóknarstofnana heldur
þjóna hagsmunum Samherja með skorti á
fjárveitingum til innlendra rannsóknaraðila.
Þetta gerðu þingmennirnir undir dagskrár
liðnum „fundarstjórn forseta“. Forseti maldaði
í móinn en stýrði ekki fundinum. Guðjón S.
Brjánsson afsakaði dugleysi sitt með því að
ekki hefði verið vegið að æru Bjarna heldur
störfum hans sem fjármálaráðherra. Þessi
skýring dugar ekki. Forsetinn var einfaldlega
sáttur við það sem á borð var borið. Alþingi
setti niður þennan dag vegna þess hve illa
forseti þingsins hélt á stjórn mála. Hann sýndi
hvorki óhlutdrægni né myndugleika.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti alþingis,
gagnrýndi fyrsta varaforseta sinn undir rós í
deilu við Píratann Hrafn Helga Gunnarsson
um fundarstjórn forseta þriðjudaginn 10.
desember þegar hann sagði:
„Það er ævagömul venja hér að láta þing
menn ekki vanvirða dagskrána með þeim
hætti að grauta saman umræðum um mál
sem þegar eru á dagskrá fundar og taka
þau undir öðrum liðum. Forverar mínir hafa
hér mann fram af manni haldið mönnum
við efnið í þessum efnum. Það þori ég að
ábyrgjast með minni þingreynslu. Forseti er
ekki að gera neitt annað en það sem fellur
undir þá skyldu hans að halda góðri reglu á
fundum.“
Þessi áminning forseta alþingis var tímabær.
Vonandi tekst honum að fá þá sem sitja með
honum í forsætisnefndinni til að virða hana
og sýna þann myndugleik á forsetastóli sem
dugar til að halda þingmönnum við efnið
samkvæmt dagskrá þingsins.