Þjóðmál - 01.12.2019, Page 32
30 ÞJÓÐMÁL Vetur 2019
Einkaaðilar komi að
innviðauppbyggingu
Önnur áskorun er að viðhalda öflugu
heilbrigðis kerfi. SA og ýmis aðildarfélög þess
hafa á liðnum árum látið sig heilbrigðismálin
varða, enda er heilbrigðiskerfið stærsti
útgjalda liðurinn.
„Ég hef lagt áherslu á að SA fjalli um hvernig
fjármagni hins opinbera er varið. Við þurfum
að vera samkvæm sjálfum okkur. Það birtist
meðal annars í því að við nálgumst heilbrigðis
kerfið og menntakerfið eins og þegar við
veltum fyrir okkur framþróun vinnu
markaðarins til lengri tíma,“ segir Halldór
Benjamín.
„Við hljótum að geta sameinast um að skilvirk
ráðstöfun opinbers fjár er forgangsmál til að
bæta lífskjör á Íslandi. Ef það þýðir að við
leyfum einkaaðilum að veita heilbrigðis
þjónustu – þá er það góð leið sem tíðkast í
flestum nálægum löndum. Það er blönduð
markaðs hagkerfisleið og felur ekki í sér
einka væðingu. Um þetta geta læknar,
heilbrigðis starfsmenn og leikmenn sameinast.
Þá skilgreinir ríkið verð, magn og gæði en
innan þess ramma getur heilbrigðisstarfsfólk
boðið upp á þjónustu og þannig nýtast kraftar
einkaframtaksins best. Þetta hefur gefist
mjög vel annars staðar á Norðurlöndunum
og við eigum að horfa þangað. Sem dæmi er
heilsugæslukerfið í Svíþjóð rekið á þessum
forsendum og um helmingur heilsugæslu
stöðva í Svíþjóð er einkarekinn af sjálfstætt
starfandi læknum. Sænska ríkið hefur sett
skýr viðmið um að veita skuli íbúum og
sjúklingum ákveðna þjónustu innan ákveðins
tíma. Þannig eiga allir að geta fengið tíma
hjá heilsugæslu innan sjö daga. Það markmið
næst með því að gera sjúklingunum kleift
að velja sér veitanda þjónustu óháð rekstrar
formi en að þeir séu ekki fastir á biðlistum í
boði ríkisins. Sænska ríkið lítur þannig á að
þetta sé hagkvæmari og skilvirkari leið en að
láta ríkið veita alla þjónustu. Ég tel að þetta
verði stór áskorun á næstu árum. Í Danmörku
er heilsugæslan í heild sinni einkarekin.
Sjúklingurinn verður að vera í fyrsta sæti.
Þetta ætti ekki að blandast í átök um hægri
og vinstri pólitík. Þetta eru skynsamlegar
meginlínur að norrænni fyrirmynd sem
Samtök atvinnulífsins tala fyrir.“
„Við eigum að þora að tala fyrir því að einkaframtakið komi að uppbyggingu
af þessum toga á næstu árum. Við þurfum að tala um einkaframkvæmdir og
einkarekstur af sannfæringu og af sjálfstrausti. Lausnin er ekki fólgin í því að
ríkið sé alltumlykjandi á öllum sviðum mannlegs lífs. Þarna hefur því miður
orðið afturför frá því á árunum fyrir hrun og nauðsynlegt að sækja fram."