Þjóðmál - 01.12.2019, Síða 44

Þjóðmál - 01.12.2019, Síða 44
42 ÞJÓÐMÁL Vetur 2019 Krónan ekki ónothæf Útfærsla myntbandalagsins var því gölluð frá upphafi, eins og síðar hefur komið greinilega í ljós, og því væri ekki hyggilegt að taka upp evru á Íslandi að svo stöddu. Þó eru smáríki auðvitað oft í þeirri stöðu að þurfa að velja á milli mismunandi óákjósanlegra valkosta því krónan er auðvitað ekki gallalaus heldur. Óþarflega háir raunvextir, tilhneiging til verðbólgu og hærra verðlag rýra lífsgæði og óstöðugt gengi gerir fyrirtækjum erfiðara fyrir að skipuleggja fjárfestingar fram í tímann. Hærri verðbólgu má að hluta til rekja til óvenju ósamhverfra viðbragða við gengissveiflum, m.a. vegna minni samkeppni en æskilegt væri víða í hagkerfinu. Líklegt er að raunvextir á Íslandi þurfi alltaf að vera eitthvað hærri en í nágrannaríkjunum til að vega upp á móti þeirri gengisáhættu sem tengist krónunni. Þessi vaxtamunur milli Íslands og nágranna­ ríkjanna getur gert íslenskum fyrirtækjum erfiðara fyrir í alþjóðlegri samkeppni. Þó er íslenska hagkerfið þannig byggt upp, að stór hluti atvinnulífsins byggist á stað bundnum þáttum: stóriðjan byggist á ódýrri raforku, fiskveiðarnar á fiskstofnum í efnahags lögsögunni, ferðamannaiðnaðurinn á íslenskri náttúru og flugiðnaðurinn á hag­ felldri legu landsins á milli Evrópu og Ameríku. Að auki geta stærri útflutningsfyrirtæki almennt fjármagnað sig á alþjóðlegum fjármálamarkaði. Vaxtamunurinn hefur því líklega ekki jafn afgerandi áhrif á samkeppnis­ stöðu íslenskra fyrirtækja og ætla mætti. Á móti kemur að þau fyrirtæki sem eru fyrst og fremst á innlendum markaði, sem og sprota fyrirtæki, þurfa að sætta sig við hærri raunvexti og velta þeim að mestu út í verðlagið. Þó ber að hafa í huga að upptaka evru er engan veginn trygging fyrir því að vextir lækki til jafns við það sem lægst gerist á evrusvæðinu; vextir eru talsvert breytilegir milli landa. Ólíkt því sem sums staðar er haldið fram er það því ekkert náttúrulögmál að lítill gjald­ miðill hljóti sjálfkrafa að vera ónothæfur. Vandi krónunnar á sér ákveðnar orsakir, m.a. uppsafnað vantraust vegna þess að hagstjórn í landinu hefur lengi verið ábótavant. En það er hægt að endurheimta trúverðugleika og raunar bendir ýmislegt til þess, að núverandi aðstæður séu hagstæðar til að rétta stöðu krónunnar. Þar má nefna tiltölulega hagstæða ytri stöðu hagkerfisins og betra samkeppnis­ umhverfi með aukinni þátttöku erlendra fyrirtækja á íslenskum markaði. Sú staðreynd að gengið hefur haldist nokkuð stöðugt þrátt fyrir nýleg áföll í efnahagslífinu bendir til að trúverðugleiki hagstjórnarinnar hafi aukist. Sú reynsla sem hlaust af setningu fjármagns­ haftanna hefur aukið möguleika íslenskra yfirvalda til inngripa á gjaldeyrismarkaði ef þörf krefur. Með frekari aðgerðum ætti því að vera hægt að undirbyggja traust á gjaldmiðli­ num, auka stöðugleika og lækka raunvexti. Mikilvægasta verkefnið hlýtur að vera að endurskipuleggja og minnka bankakerfið enn frekar og koma í veg fyrir að það kyndi undir óstöðugleika, eins og gerðist fyrir hrun. Þá er einnig mikilvægt að takmarka flæði skammtímafjármagns inn í hagkerfið, sem verið getur mikil uppspretta óstöðugleika fyrir jafn lítinn gjaldmiðil og krónuna. Skoða mætti þann möguleika að taka upp skatt á ákveðnar fjármagnsfærslur til og frá landinu, eins og Frakkland og Bretland hafa að hluta til þegar gert. Slíkt fyrirkomulag mundi hefta innflæði fjármagns í leit að hærri skammtíma­ ávöxtun og gefa stjórnvöldum örlítið meira svigrúm til að stuðla að innra jafnvægi í hag­ kerfinu. Til þess að gera viðbrögð krónunnar við gengissveiflum samhverfari væri loks æskilegt að stuðla að samkeppni með því að auðvelda einstaklingum að stofna og reka fyrirtæki og halda uppi virku samkeppnis­ eftirliti.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.