Þjóðmál - 01.12.2019, Side 52

Þjóðmál - 01.12.2019, Side 52
50 ÞJÓÐMÁL Vetur 2019 200 ára hagsæld að baki Í stað þess að einblína á leiðir sem auka hagvöxt á heimsvísu virðast skýrsluhöfundar Oxfam haldnir þeirri þráhyggju að frekar þurfi að skipta auðæfum heimsins niður. Kakan stækkar ekki á meðan og eina leiðin til að skipta auðæfum heimsins er sem fyrr segir að gera það með valdi. Sú aðferð hefur hvergi reynst vel í sögunni og leiðir þvert á móti af sér kapphlaup á botninn, þar sem allir eru jafnari á marga vegu – allir yrðu að lokum jafn fátækir, jafn óhamingjusamir og jafn settir gagnvart þeim hagvexti sem aldrei varð. Það er nákvæmlega það sem gerðist í Venesúela. Hagsæld síðustu 200 ára hefur verið keyrð áfram af frjálsu markaðshagkerfi, kapítalisma. Hið frjálsa markaðshagkerfi hefur ýtt undir frjáls viðskipti, aukin alþjóðatengsl, aukna menntun, jafnrétti, nýsköpun og tækniþróun, framfarir í heilbrigðismálum og þannig mætti áfram telja. Aldrei fyrr í sögunni hefur mannkynið haft það betra en í dag. Þegar iðnbyltingin og fyrsta frjálsa markaðsbyltingin hófust upp úr 1820 voru um 84 prósent íbúa alls heimsins undir nútímalegri skilgreiningu á fátæktarmörkum (að raungildi). Þeir voru, á þeim tíma, dæmdir til að lifa máttlausu, grimmu og stuttu lífi. Þó svo að þessi jákvæða þróun í mannkyns­ sögunni hafi byrjað fyrir um 200 árum hefur hún aldrei verið hraðari en síðustu 30 ár. Árið 1990 var meira en þriðjungur heimsins enn undir fátæktarmörkum (þénaði minna en 1,9 bandaríkjadali á dag). Í dag er innan við 10% mannkyns undir þeim mörkum og á síðustu 30 árum hafa um 1,2 milljarðar manna brotist úr fátækt. Það vegur vissulega þungt að mestu framfarirnar hafa orðið í Kína og á Indlandi, sem saman telja um þriðjung mannkynsins. Indland og Kína verða seint talin frjálslynd ríki og hagkerfi þeirra eru ekki frjáls, í það minnsta eins og þau eru skilgreind á Vestur­ löndum. Þrátt fyrir það hafa þau stigið stór skref í rétta átt, með góðum árangri í efna­ hagslegu tilliti; lækkað skatta og tolla, afnumið reglugerðir, hleypt inn erlendri fjárfestingu og einkavætt ríkisfyrirtæki. Frá iðnbyltingunni og síðar með auknum alþjóðaviðskiptum hefur ríkjum þar sem stjórnvöld hafa minnkað hindranir á atvinnu­ lífið, staðið vörð um eignarréttinn og lækkað tolla almennt vegnað vel. Hagvöxtur og velmegun ráðast síðan af því hversu frjáls þau eru. Það er þó ekki þar með sagt að það sé engin fátækt í heiminum. Hagvöxtur þróaðra ríkja leysir einn og sér ekki þann vanda. Það þarf að brjóta á bak aftur þær viðskiptahindranir sem til staðar eru í heiminum og hvetja ríki heims til að taka upp frjáls markaðshagkerfi. Enn eru þó ýmsar áskoranir og hindranir við frekari framþróun, allt frá spilltum stjórn­ völdum víða um heim sem hirða til sín fjár­ magn úr alþjóðakerfinu og setja í eigin vasa til þeirra tollamúra sem Evrópusambandið hefur reist á liðnum árum. Hlaðborð hugmynda um skattahækkanir Hér á landi sjáum við umræðuna þróast í sömu átt. Þess má vænta að Oxfam gefi út nýja skýrslu um mánaðamótin janúar/febrúar 2020 og þá förum við aftur í Groundhog day. Fullir af réttlátri reiði munu fulltrúar vinstri­ flokkanna hefja upp raust sína um óréttlætið, ekki bara í heiminum heldur hér á Íslandi. Þess verður krafist að hinir ríkari greiði meira til samfélagsins eins og það er gjarnan orðað – sem er snyrtilegt orðalag yfir hærri skatta og stærra ríkisvald. Sjávarútvegurinn liggur alltaf vel við höggi þegar þessi umræða fer af stað. Einhverjir munu benda á að veiðigjöldin þurfi að vera hærri og þeir sem ganga lengra munu tala um að sjávarútvegsfyrirtækin (og eigendur þeirra) hafi hagnast á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar – með öðrum orðum; grætt á kostnað okkar hinna. Umræðunni er alla jafna beint í þá átt að ríkið þurfi að taka meira til sín og þannig megi bæta hag þeirra sem minna hafa á milli handanna.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.