Þjóðmál - 01.12.2019, Qupperneq 56

Þjóðmál - 01.12.2019, Qupperneq 56
54 ÞJÓÐMÁL Vetur 2019 Það er ekki eingöngu skattaumhverfið sem grefur undan samkeppnishæfni fjármála geirans. Þannig eru gerðar mun hærri eiginfjárkröfur á íslenska banka en í nágranna löndunum. Kröfur um eiginfjárauka eru með hæsta móti hér á landi auk þess sem viðbótareiginfjárkröfur eru hærri hér en annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu. Þetta er raunin þrátt fyrir að íslenskir bankar beiti ekki innri módelum við að meta áhættu­ vogir líkt og flestir stærri bankar í Evrópu og notist við varfærnari staðalaðferð. Þetta gerir að verkum að vogunarhlutfall íslenskra banka er að jafnaði þrefalt hærra en gengur og gerist meðal evrópskra banka. Undanfarin ár hefur það verið frá 15­20% hjá íslensku bönkunum en er að meðaltali ríflega 5% hjá evrópskum bönkum. Fjármálafyrirtæki og vátryggingafélög gegna grundvallarhlutverki í efnahagslífinu. Hlutverk þessara fyrirtækja er að umbreyta sparnaði í fjárfestingu, dreifa áhættu og tryggja skilvirka miðlun fjármagns. Það er mikilvægt að átta sig á kostnaðinum sem fylgir þessum séríslensku útfærslum og gera sér grein fyrir að þær leiða til hærri fjármagnskostnaðar sem dregur úr samkeppnishæfni atvinnulífsins og bitnar á hagvexti. Það er því afar brýnt að fram fari upplýst umræða um hvaða rök liggi að baki því að skapa séríslenskt rekstrar­ umhverfi fyrir íslensk fjármálafyrirtæki og hver fórnarkostnaðurinn af því er. Vátrygginga félögin lifa einnig og hrærast í þessu erfiða umhverfi sem tekur lítið tillit til smæðar fyrirtækjanna. Sjónarmiðin, sem þarna togast á, eru annars vegar varúðar­ kröfur og neytendavernd og hins vegar starfsumhverfi sem styður við hagvöxt í landinu. Við þurfum ávallt að spyrja okkur þeirrar spurningar hvar þessi jafnvægis­ punktur eigi að liggja. Um þessar mundir liggur hann töluvert frá því sem gerist í nágrannalöndunum og á, ásamt hærri stýrivöxtum, stóran þátt í að skýra hærra vaxtastig hérlendis. Þessi umræða snýst öðrum þræði um alþjóðlega samkeppnis­ hæfni Íslands. Þróunin fram undan Það eru miklar breytingar að eiga sér stað á fjármálamörkuðum. Fjártæknibyltingin er að umbreyta fjármálaþjónustu. Aðildarfélög SFF hafa verið í fararbroddi í þeirri byltingu. Nú geta viðskiptavinir sinnt nánast öllum sam­ skiptum sínum við fjármála­ og vátrygginga­ félög með stafrænum hætti. Gildir þá einu hvort um er að ræða endurnýjun trygginga, umsókn um lánafyrirgreiðslu og allt þar á milli. Þessi þróun hefur verið hröð og byggist hún meðal annars á vel heppnaðri innleiðingu rafrænna skilríkja sem SFF stóðu að ásamt stjórnvöldum. Kosturinn við rafrænu skilríkin er að þau gefa færi á rafrænni undirskrift sem jafngildir því að pappírsgögn séu undirrituð eigin hendi. Þau eru meðal annars forsenda þess að innan skamms verður hægt að þinglýsa skjölum með rafrænum hætti sem á eftir skila miklum sparnaði og hagræði fyrir neytendur og auka réttarvernd. Mikilvægt að samhliða verði umgjörð annarra rafrænna fjármálagerninga færð til nútímans. Þar má m.a. nefna reglur um beina aðför á grundvelli rafrænt skráðra skuldagerninga. Fjöldi skráðra einkahlutafélaga hér á landi er tæplega 40.000. En vegna þess að þau félög eru í lagalegum skilningi lausafé og veðtaka í hlutafé þeirra er erfiðleikum bundin sem og fullnusta, þá eru bankar tregir til að gefa því hlutafé trygginga virði. Slíkt gerir minni félögum erfiðara um vik að fjármagna sig og þar með vaxa. Löggjafinn ætti að opna á þann möguleika að einkahlutafélög gæfu út rafrænt skráð hlutafé og þau rafbréf hefðu sömu eiginleika hvað varðar fullnustu og vernd veðréttinda og rafrænt skráð hlutafé hlutafélaga. Fjártæknin mun skapa fjölmörg tækifæri til að gera fjármálaþjónustu skilvirkari – neytendum til hagsbóta. Þess vegna er mikil­ vægt að stjórnvöld hafi skýra stefnu í þessum efnum. Brýnt er að umgjörð þessarar þróunar sé með þeim hætti að tryggt sé að viðskipta­ vinir fjármálafyrirtækja njóti góðs af og að hún fullnýti þá hagræðingu sem er innan seilingar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.