Þjóðmál - 01.12.2019, Page 67

Þjóðmál - 01.12.2019, Page 67
ÞJÓÐMÁL Vetur 2019 65 Hljómgrunnur Þótt ekki hafi þessi nálgun hlotið hljómgrunn í kosningunum hefur Andri Snær haldið ótrauður áfram. Sífellt færist meiri þungi í umræðuna um loftslagsbreytingar og þær aðgerðir sem grípa þurfi til í því skyni að sporna við þeim. Skýrasta dæmið um þessa þróun er sú frægð sem unglingsstúlkan Greta Thunberg hefur hlotið á undra skömmum tíma og skipað henni í hóp áhrifamestu aðgerðasinna í heimi. Fyrir rúmu ári vissu fáir hver hinn ungi eldhugi var en nú í desember var hún útnefnd maður ársins af Time maga- zine. Og bókin hefur tekið flugið, líkt og Greta (jafnvel þótt hún neiti að fljúga). Hún hefur fengið gríðarlega umfjöllun í fjölmiðlum og augljóst að margir hafa gefið sér tíma til þess að kynna sér efni hennar. Athyglin er verðskulduð og kemur það til af nokkrum ástæðum. Í fyrsta lagi brennur málefnið á mörgum, í öðru lagi er Andra Snæ einkar lagið að koma hugsunum sínum á framfæri með frumlegum hætti og þá skemmir alls ekki fyrir að bókin er snotur, fer vel í hendi og hönnunin er á heimsmælikvarða. Síðastnefnda atriðið kemur ekki á óvart. Hönnun bókarinnar var í höndum Barkar Arnarsonar og Einars Geirs Ingvarssonar en sá síðarnefndi hefur hlotið mikið lof fyrir hönnun bóka ljósmyndarans RAX á síðustu árum. Sérstök ástæða er til að nefna myndirnar sem birtar eru í bókinni. Fram­ setningin er óvenjuleg en mjög áhrifamikil, þekur ávallt opnu í senn, allar myndir svart­ hvítar og ekki endilega lögð áhersla á mynd­ gæðin heldur þau hughrif sem þær kalla fram í samhengi við textann sem þær fylgja. Þar er mjög vel að verki staðið. Villur Að öðru leyti er frágangur texta í nokkuð góðu horfi, letrið læsilegt og passlega stórt. Verkið líður hins vegar fyrir að það er ekki nægilega vel yfirlesið og á allnokkrum stöðum má sjá innsláttarvillur eða að orð hafi fallið brott eða þeim ofaukið (dæmi má sjá um þetta á s. 66, 107 og 211). Þetta er í raun talsverður ágalli á verkinu sem skrifað er á kynngimögnuðu og góðu nútímamáli og gefur lesandanum óþægilega tilfinningu fyrir því að ekki hafi verið vandað nægilega til verka, að minnsta kosti í frágangi, jafnvel öðru. Þegar ráðist er í útgáfu bókar af þessu tagi, þar sem búist er við miklu af höfundi, má prófarkalestur ekki bregðast. Áður en orðum er vikið að innihaldi bókar­ innar er nauðsynlegt að nefna eitt atriði umfram önnur sem vanda hefði mátt betur til. Á nokkrum stöðum í bókinni, nánar tiltekið sjötíu og fjórum, notast höfundur við aftanmálsgreinar til þess að gera lesandanum kleift að átta sig á því hvert tilteknar beinar tilvitnanir eða þekkingaratriði eru sótt. Það á við um skýrslur, fréttir, heimasíður, blaða­ greinar o.fl., tímarit og bækur. Þótt halda verði vísunum af þessu tagi innan eðlilegra marka er þó nauðsynlegt að gæta samræmis, ekki síst þar sem um beinar tilvitnanir eða vísanir í rannsóknir er að ræða. Þar verður höfundi oftar en ekki fótaskortur á svellinu, m.a. þar sem vitnað er til ummæla Roberts Oppenheimer í „einhverju“ viðtali (s. 126) og eins þar sem fjallað er um hvernig jöklar í Alaska hafa hopað á síðustu árum (s. 180). Það dregur úr vigt textans að ekki sé gætt að þessu atriði.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.