Þjóðmál - 01.12.2019, Page 74

Þjóðmál - 01.12.2019, Page 74
72 ÞJÓÐMÁL Vetur 2019 1970 en markaðsvæðing eflst á síðustu fjórum eða fimm áratugum. Eins og hann segir söguna urðu bæði ríkisvæðing fyrir 1970 og markaðsvæðing síðustu áratuga til þess að veikja grenndarsamfélög víða um heim. Annar hluti bókarinnar fjallar nánar um það hvernig jafnvægið milli höfuðskepnanna þriggja hefur riðlast á síðustu árum þar sem ríki og markaðir hafa tekið ráðin af almenningi og fólk er meira og meira undir hælnum á stjórnvöldum og stórfyrirtækjum. Þriðji og síðasti hlutinn er um hvernig hægt er að endurheimta jafnvægið með því að auka vald grenndarsamfélagsins og setja um leið skorður við ríkis­ og markaðs væðingunni. Eftir því sem Rajan segir þarf almenningur vald til að njóta góðs af markaðnum. Þetta vald er ekki aðeins atkvæðisréttur borgara í lýðræðisríki heldur líka vald fólks yfir eigin lífi á vettvangi byggðarlaga sem eru að nokkru sjálfstæð gagnvart ríkinu. Sterk grenndar­ samfélög eru því að hans mati forsendur vel heppnaðs markaðar. Þau eru líka forsendur þess að ríkið sé í raun réttri lýðræðislegt. Í þessu sambandi minnir hann á að samstaða innan byggðarlaga og smærri samfélaga er eitur í beinum ólýðræðislegra stjórnvalda. Alræðisstjórnir fasista og kommúnista á síðustu öld reyndu því að láta þjóðernis­ vitund eða stéttarvitund koma í staðinn fyrir samstöðu nágranna og vina. Svar við þjóðernishyggju samtímans Eftir því sem Rajan segir er hluti af ógöngum nútímaríkja að Jörmungandur og Jötnarnir virðast saman í liði og fámenn yfirstétt orðin ansi voldug. Hann nefnir í þessu sambandi að í Bandaríkjunum voru tekjur ríkasta eina prósentsins 8% af tekjum allra landsmanna 1970 en 18% árið 2010. Þetta er, segir hann, nokkurn veginn sama sagan víðar, til dæmis á Bretlandi. Hann tengir þessa samþjöppun auðs lögum um einkaleyfi sem hann segir að veiti eigendum þeirra of mikil völd og hindri ný fyrirtæki og einyrkja í að koma ár sinni fyrir borð. Gagnrýni hans á einkaleyfi og hugverkarétt er með skemmtilegustu hlutum bókarinnar. Henni verða þó ekki gerð skil hér enda efni í aðra grein. Annað umfjöllunarefni sem væri efni í aðra grein er það sem Rajan segir um flutning verkafólks milli landa. Hann bendir á að innflytjendur séu bráðnauðsynlegir sam­ félögum sem eru að eldast vegna minnkandi barneigna. Hugmyndir um að ríki séu fyrir einsleitar þjóðir verða að hans dómi sífellt óraunhæfari. Samt er þjóðernishyggja í sókn. Rajan skýrir þetta með vísun í valdaleysi grenndarsamfélagsins og segir að þegar það gefur fólki ekki kost á að tilheyra hópi reki firringin og einmanaleikinn það til að ímynda sér að þjóðin sé, eða geti verið, það sem hverfið, þorpið, sveitin og stórfjölskyldan eitt sinn voru. Stjórnmálaflokkar sem halda ákafast fram þjóðernishyggju grafa í senn undan markaðsbúskap og lýðræði, en eiga engin svör við vandamálum samtímans, segir Rajan. Hann viðurkennir samt að það þurfi að mæta vöntuninni sem þjóðernishyggjan og lýðskrumið þrífast á. En hann rökstyður að farsælast sé að gera það eftir allt öðrum leiðum en þeim sem hægri þjóðernissinnar og vinstri róttæklingar vilja fara. Rajan dregur enga dul á að vöntun á samstöðu og samhug í ríkjum nútímans tengist alþjóðavæðingu, fjölgun innflytjenda og menningarlegum margbreytileika. Hann ræðir í þessu sambandi rannsóknir sem sýna að mjög sundurleit samfélög hafa að jafnaði veikari velferðarkerfi en þau einsleitu. Samstaða krefst trausts sem byggist oftast á kunnug leika. Það er samt með öllu óraun­ hæft að bakka út úr alþjóðavæðingu og draga úr hreyfanleika fólks yfir landamæri. Raunhæfu leiðirnar eru, segir hann, að eftir­ láta grenndarsamfélögum félagslega sam­ hjálp í auknum mæli. Á þeim vettvangi þekkjast menn þótt þeir séu af ólíkum uppruna. Þar er innflytjandinn ekki nafnlaus fulltrúi framandi siða og hátta heldur skólafélagi, nágranni eða samstarfsmaður.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.