Þjóðmál - 01.12.2019, Page 75
ÞJÓÐMÁL Vetur 2019 73
Í lokaköflum bókarinnar ræðir Rajan leiðir til
að færa fólki aukið vald yfir samfélagi sínu.
Hann telur lykilatriði að ríki leyfi byggðar
lögum að vera ólík hvert öðru en banni þeim
þó að vera einangruð og hindra fólk í að
flytjast í þau og úr þeim. Hann ræðir í þessu
sambandi um slæmar afleiðingar þess að
skipulag byggða útiloki að þar búi saman
fólk úr ólíkum stéttum, til dæmis með því að
útiloka byggingu ódýrs húsnæðis. Þótt Rajan
ætli grenndarsamfélögum mikið vald yfir
eigin málum vill hann nýta ríkisvaldið til að
takmarka möguleika þeirra til að vera lokuð
öðrum en útvöldum.
Meira vald til byggðarlaga og meiri samstaða
nágranna segir Rajan að sé leiðin til að varð
veita það góða við markaði og lýðræðisleg
ríki. Þessa stefnu sína kallar hann „inclusive
localism“. Hann hefur enga töfralausn og
gerir ekki ráð fyrir að sömu aðferðir henti alls
staðar. En hann bendir á vandann og skýrir
hvers konar lausnum ætti að leita að. Hann
bendir líka á að tilhneiging ríkja nútímans
til að leysa öll möguleg vandamál með
regluverki og lagasetningu sé vafasöm og
hefur enn fremur efasemdir um yfirþjóðlegt
regluverk hvort sem það er á vettvangi
Evrópusambandsins eða alþjóðastofnana.
Ólíkir staðir þurfa ólíkar lausnir og best er
að hver byggð fái að finna eigin leiðir innan
ramma laga sem tryggja meðal annars rétt
fólks til að koma og fara.
Bók Rajans er merkilegt innlegg í stjórnmála
umræðu samtímans. Hún inniheldur athyglis
verðan skilning á nútímanum. Bókin er líka
yfirveguð og hófstillt vörn fyrir lýðræði og
markaðsbúskap. Þessi vörn er færð fram af
manni sem þorir að horfast í augu við vanda
málin sem valda því að fleiri og fleiri snúa
baki við frjálslyndi og alþjóðahyggju. Síðast
en ekki síst býður bókin lesendum sínum
að leita að uppbyggilegum lausnum sem
eru öllum til góðs fremur en að heillast af
lýðskrumi eða stinga hausnum í sandinn og
afneita vandanum.
Höfundur er heimspekingur og dósent við
Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Rit
Atli Harðarson. (2019). Rökræða um frjálslyndi: Umsögn
um bækurnar Radical Markets eftir Eric Posner og E. Glen
Weyl og Why Liberalism Failed eftir Patrick J. Deneen.
Þjóðmál, 14(3), 8995.
Deneen, P.J. (2018). Why Liberalism Failed. New Haven,
CT: Yale University Press. [Kindle DXútgáfa]. Sótt af
https://www.amazon.com/
Dewey, J. (1984). John Dewey: The Later Works, 1925
1953: Volume 2, Essays, Reviews, Micellany, The Public and
its Problems, ritstjóri Jo Ann Boydston. Carbondale, IL:
Southern Illinois University Press.
Fukuyama, F. (1995). Trust: The Social Virtues and The
Creation of Prosperity. New York: The Free Press. [Kindle
DXútgáfa]. Sótt af https://www.amazon.com/
Hegel, G.W.F. (1978). Hegel’s Philosophy of Right (ensk
þýðing T.M. Knox). Oxford: Oxford University Press.
Rajan, R. (2019). The Third Pillar: How Markets and the
State Leave the Community Behind. New York: Penguin
Press. [Kindle DXútgáfa]. Sótt af https://www.amazon.
com/
Scott, J.C. (2012). Two Cheers for Anarchism: Six Easy
Pieces on Autonomy, Dignity, and Meaningful Work and
Play. Princeton, NJ: Princeton University Press. [Kindle DX
útgáfa]. Sótt af https://www.amazon.com/
Scott, J.C. (2017). Against the Grain: A Deep History of
the Earliest States. New Haven, CT: Yale University Press.
[Kindle DXútgáfa]. Sótt af https://www.amazon.com/