Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Page 20
Múlaþing
fékk ég gert við annan skó minn og Jörgen
keypti sér skó til að ganga á það sem eftir
var leiðarinnar. Jörgen þekkti gestgjafann
þar á Höfn og gaf hann okkur kaffi. Kl. 6
héldum við svo áfiram austur. Við fórum
austur Almannaskarð, var yfir það bílfær
vegur og því gott að ganga. Við komum að
Syðra-Firði í Lóni kl. 9. um kvöldið og
fengum gistingu þar. Veðrið var gott í dag,
eftir að stytti upp í morgun, ofur lítil
suðaustan gola og þoka. Verst var að hafa
þokuna, því að hún byrgir allt útsýni
einkum til ijallanna.
3. júlí, miðvikudagur. Frá Firði að
Melrakkanesi í Alftaflrði
Við áttum mjög góða nótt í Firði, eins og
víðar, og lögðum af stað þaðan, vel mettir
kl. 7.55 í morgun. Við héldum stanslaust
áfram þar til við komum að Volaseli, sem er
næsti bær vestan við Jökulsá. Þar báðum
við um fylgd yfir Jökulsá, en fengum ekki,
fengum það svar, að héðan væri aldrei fylgt
yfir ána. Ekki leist okkur ráð að vaða ána og
snérum því til baka, vestur að Þorgeirs-
stöðum. Bóndinn þar ætlaði að fara að
smala, en kvað þó sjálfsagt að hjálpa okkur
yfir ána, en fyrst skildum við þyggja
góðgerðir. Jökulsá var vatnsmikil nokkuð.
Hún rann mjög dreift, en var ekki dýpri en í
kvið. Austur undir Lónsheiði er bærinn
Svínhólar. Þangað komum við Jörgen kl.
1.45, Við keyptum okkur þar skyr að éta og
lögðum svo á heiðina. Verið var að byggja
akveg á Lónsheiði. Þá var glaða sólskin og
hiti svo að Skaftafellssýslur kvöddu okkur
með hinni mestu blíðu. Aftur á móti
heilsuðu Múlasýslur með sinni hvers-
dagslegustu kveðju þokunni, hún mætti
okkur er við vorum komnir skammt niður af
heiðinni. Fyrsti bær í Suður-Múlasýslu, er
Starmýri. Við vorum komnir þar heim undir
kl. 5. Ekki þorðum við heim að Starmýri,
vegna innflúensu, sem þar var, en héldum
stanslaust áfram. Þegar kemur nokkuð
austur í Álftaíjörðinn, er Hofsá á leiðinni.
Við nenntum ekki að útvega okkur hesta
yfir hana, þótti krókur að koma til næstu
bæja og óðum því yfir. Áin var í klof og
straumhörð nokkuð. Inn úr Álftafirðinum
voru tveir dalir, kemur Hofsá fram úr þeim
vestari, en Geithellnaá úr þeim eystri. Við
Jörgen óðum einnig yfir Geithellnaá og var
hún svipuð að vatnsmagni en lygnari. Rétt
austan við ána, er bærinn Geithellar. Okkur
hafði verið sagt að þangað mundum við ná
um kvöldið. En þar sem veðrið var gott, við
rennblautir og ekki orðið mjög framorðið,
þótti okkur ráð að halda til næsta bæjar. Sá
bær er Melrakkanes. Þar komum við kl.
8.30 og fengum gistingu. Veðrið var ágætt í
dag, skiftist á þoka og sólskin, en alltaf var
logn. Það þótti okkur verst að fá ekki að sjá
Álftaíjörðinn, því að eftir því sem við
komumst næst álitum við að þar mundi
mjög fallegt. Einkum fannst okkur sjálfur
fjörðurinn og eyjarnar í honum, mjög
fallegur.
4. júlí, fimmtudagur. Frá Melrakka-
nesi að Hlíðarenda í Breiðdal
Það verð ég að segja, að á Melrakkanesi
líkaði okkur Jörgen verst að gista í allri
ferðinni. Ekki lögðum við af stað þaðan fyrr
en kl. 9.25 í morgun, vegna þess að okkur
þótti þunnt að fá ekki annað að éta en kaffi
áður en við legðum af stað. Yfirleitt þótti
okkur húsfreyja fremur kuldaleg í viðmóti,
en þrátt fyrir það leið okkur ágætlega um
nóttina. Þegar komið er skammt austur íyrir
bæinn á Melrakkanesi, beygir vegurinn inn
með Hamarsfirði. Innan við fjarðarbotninn
standa bæimir Bragðavellir og Hamar, sinn
hvom megin Hamarsár. Tvo tíma vomm við
að ganga inn að Bragðavöílum. Við
stönsuðum þar ekkert en héldum áfram út
18