Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Síða 29
Mjólkurbúið á Egilsstöðum
formaður og fulltrúi stjórnar K.H.B.,
Snæbjöm Jónsson frá Geitdal og Stefán
Sigurðsson frá Artúni.17
Mjólkursamlagið byrjar svo að starfa
eins og áður sagði 18. apríl 1959 á sama
tíma og Kaupfélag Hérðasbúa varð fimmtíu
ára en það var stofnað 19. apríl árið 1909.18
Starfsemin fyrstu árin
Fyrstu árin sem M.S.K.H.B. starfar eykst
innvegin mjólk mjög ört, jafnfram því að
markaður fyrir neyslumjólk fer vaxandi.
Arið 1960 er innvegin mjólk um 642 þús-
und lítrar en er komin upp í tvær milljónir
lítra árið 1965. Þetta þýddi náttúmlega að
starfsemin var búin að sprengja litla
rjómabúshúsið utan af sér og var byggt
þrisvar við það áður en yfir lauk. Árið 1964
er strax farið að ræða um teikningar og
staðsetningu fyrir nýja mjólkurstöð.19
Fyrstu árin eða til 1966 var nýmjólkur-
sala búsins 30% auk rjómasölu, á árunum
eftir 1970 fer þetta hlutfall yfir 50%.
Sölusvæðið á áttunda áratugnum náði frá
Héraði til Stöðvarfjarðar, að frátöldum
Norðfirði. Jafnvel kom fyrir að selt væri
srnjör til Norðfjarðar og rjómi tekinn þaðan
til vinnslu jafnvel þó þar væri starfandi
mjólkurbú.20
Tækjakostur og þróunin
Tækjakostur búsins fór ört vaxandi þessi ár.
Undirstaðan var tæki til gerilsneyðingar
mjólkur en svo bættust við tæki til kasein-
gerðar sem koma um 1960 og nýr strokkur
1964. 1966 var svo stigið stórt skref en þá
voru keyptar vélar til fitusprengingar og
pökkunar á mjólk en sú vél pakkaði
mjólkinni í poka.21
Eg spurði Guttorm Metúsalemsson um
þróunina í gegnum tíðina, en hann hefur
verið viðloðandi mjólkurbúið sem
starfsmaður síðan 1962:
Arið 1966 kom vél sem pakkaði mjólk og rjóma í
poka. Ljósmynd: Sæbjörn Eggerisson.
Það er kannski forvitnilegast og eftirminni-
legast, hvernig mjólkin fór á markað fyrstu
árin. Hún var send í 40-50 lítra brúsum nióur
á firði og úr þeim ausið í ílát sem fólk kom
með. Brúsamir komu svo til baka náttúrulega
óþvegnir, óskolaðir og í misjöfnu ásigkomu-
lagi. Þá þurfti að þrífa þá sem var bæði mikil
vinna og erfíð. Síðan var farið með slöngur og
tappað á brúsana aftur, þannig byrjaði það nú.
Þá var ekki framleitt neitt nema mjólk og
rjómi, engin léttmjólk, bara mjólk var mjólk
og rjómi var rjómi. Svo var náttúrulega
framleitt skyr og smjör. Þetta var nú
upphaflega framleiðslan á neyslumarkaðnum.
Þegar ég byrjaði að vinna hér var
nýbyrjað að framleiða svokallað kasein sem
var afgangsafurð úr þeirri mjólk sem fór í
venjulega neyslu en það var notað til
iðnaðarframleiðslu.
Árið 1966 kemur svo pökkunarvél, lítil
og nett en samt afkastamikil sem pakkaði í
líters plastpoka, reyndar var líka hægt að
pakka í 'A líters og % líters pakkningar en í
þær fór bara rjómi. Þetta var mjög sniðugt
tæki, tók lítið pláss og hafði ótrúlega mikil
27