Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Side 78

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Side 78
Múlaþing Stikuþvottur á Öxi. Eigandi myndar: Bryndís Jóhannsdóttir. tíma, sagði við konuna sem færði honum skreytinguna: „Þetta er það eina sem minnir á jólin hjá mér.“ Árið 1995 tók félagið að sér litla stúlku á Indlandi, hún var þá fímm ára. Höfum við kostað uppeldi hennar og skólagöngu. Núna á þessu ári 2008 er hún 18 ára og hefur lokið námi, þannig að nú getur hún séð fyrir sér sjálf. Við höfum fylgst með henni gegnum árin þannig að við höfum fengið bréf og teikningar einnig ljósmyndir einstöku sinnum. Við sendum henni líka smá gjafir stöku sinnum en það var frekar erfitt því það þurfti að vera eitthvað sem öll börnin á heimilinu hennar, ,J.itlu ljósunum“ gátu notið, ekki mátti taka eitt bam út úr og gefa því gjafir. Við Vökukonur höfum verið duglegar við að halda námskeið. Sýnir það vilja okkar til læra eitthvað. Hafa það bæði verið sauma- og prjónanámskeið, einnig nokkur matreiðslu- og bakstursnámskeið. Við höfum líka verið duglegar við margskonar handavinnu- og föndumámskeið I mörg ár komu konumar saman eitt kvöld fyrirbolludag og útbjuggu bolluvendi sem voru svo seldir sunnudaginn fyrir bolludag. Fljótlega var svo farið að selja bollukaffi þennan dag og þá vom vendimir seldir þar. Þetta gekk mjög vel í nokkuð ár. Eftir það var farið að baka bollur og selja í fyrirtækin og gengur það alltaf mjög vel. Til félagsins var mikið leitað á tímabili til að sjá um bakstur og kaffisölu við alls konar tækifæri og var þetta oft geysileg vinna fyrir konurnar, því að oft voru aðstæðurnar mjög erfiðar þegar verið var að vinna þetta í húsnæði þar sem ekki var neitt til neins. En alltaf tóku konumar að sér að sjá um veislurnar þegar þær voru beðnar. Margt fleira hafa konumar gert til að afla peninga sem ekki verður talið hér. Þó langar mig að minnast á síðasta stóra verkið sem við tókum að okkur sumarið 2007, en það var að þvo stikur á Öxi, í botni Berufjarðar báðum megin fjarðar, einnig allan Hamarsfjörð austan megin þetta gerðum við þrisvar sinnum yfir sumarið og ein ferð var farin og þvegnar allar stikur í Skriðdal þar sem ekki er bundið slitlag. Einnig tókum við að okkur stikuþvottinn 2008. Margir hafa hugsað hlýtt til kvenfélags- ins og sýnt það í ýmsu, til dæmis með því að taka litla eða enga leigu fyrir húsnæði sem við höfum þurft á að halda við hin margvíslegu störf okkar. Nokkrir hafa gefið okkur gjafir. Stærsta og rausnarlegasta gjöfin er sumarbústaðurinn Selgrund, sem Þorsteinn Sveinsson sem var kaupfélagsstjóri hér á Djúpavogi í 20 ár og síðan á Egilsstöðum, gaf kvenfélaginu árið 1981 í minningu um konu sína Ástu Magnúsdóttur. Þorsteinn byggði þennan bústað í Hofsdal í Álftafirði í landi Bjöms Jóns- sonar á Hofi. Þetta var afskaplega fallegur staður og hafði verið plantað trjám við bústaðinn, en þangað var oft erfitt að komast því það var ekki fært fyrir alla bíla. 76
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.