Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Page 101
Helgi Hallgrímsson
Unamál
Af Una danska og ömefnum honum
tengdum
Sagan af Una Garðarssyni í Landnámu,
sem ýmist var kallaður Uni danski
eða Uni óbomi, er næsta einstæð í
þessari merkilegu bók. Samkvæmt henni
sigldi Uni til íslands í þeim tilgangi að
leggja það undir Harald hárfagra, Noregs-
konung. Hann tók land í Selfljótsósi við
austanverðan Héraðsflóa og nam stóran
hluta Héraðs, en lenti fljótlega í erjum við
Austfirðinga og hraktist suður í Skóga-
hverfí á Síðu, þar sem hann fékk veturvist
hjá Leiðólfi kappa, náði þar ástum dóttur
hans og gat henni bam, en flýði svo frá öllu
saman og var að lokum drepinn af Leiðólfi
í bræði. Það er ekki að ófyrirsynju að
Ármann Halldórsson líkir Una við hala-
stjömu. í þjóðsögum segir nánar af þessum
hrakfömm Una og tengjast þær ýmsum
Una- eða Unu-ömefnum á Héraði. Saga
Una danska er ævintýraleg og ekki sérlega
trúverðug. Hún er full af mótsögnum og
ýmislegt bendir til að hún sé ættuð úr týndri
sögu af Hróari Tungugoða, syni hans, og
hafi ekki verið í frumgerð Landnámu
(Melabók). Engu að síður er sagan athyglis-
verð og varpar ef til vill ljósi á pólitískar
aðstæður 13. og 14. aldar á íslandi. Gegnir
furðu að enginn skuli enn hafa lagt í að rita
bitastætt skáldverk um Una danska.
Af Una danska í Landnámu
í Landnámabók er nokkuð ýtarleg sagt frá
Una Garðarssyni landnámsmanni, næstum
samhljóða í báðum aðalgerðum hennar:
Sturlubók (um 1275) og Hauksbók (um
1300):
Uni son Garðars, er fyrst fann Island, fór til
íslands með ráði Haralds konungs hárfagra og
ætlaði að leggja undir sig landið, en síðan
hafði konungur heitið honum að gera hann jarl
sinn. Uni tók land þar sem nú heitir Unaóss,
og húsaði þar; hann nam sér land til eignar
fyrir sunnan Lagarfljót, allt hérað til
Unalækjar. En er landsmenn vissu ætlan hans,
tóku þeir að ýfast við hann og vildu eigi selja
honum kvikfé og vistir. og mátti hann eigi þar
haldast.
Uni fór í Alftafjörð enn syðra; hann náði
þar eigi að staðfestast. Þá fór hann austan með
tófta mann og kom að vetri til Leiðólfs kappa
í Skógahverfi; hann tók við þeim. Uni þýddist
Þómnni dóttur Leiðólfs, og var hún með bami
um vorið. Þá vildi Uni hlaupast á braut með
sína menn, en Leiðólfur reið eftir honum, og
fúndust þeir hjá Flangastöðum og börðust þar,
því að Uni vildi eigi aftur fara með Leiðólfi;
þar féllu nokkrir menn af Una, en hann fór
affur nauðugur, því að Leiðólfúr vildi að hann
99