Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Page 113

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Page 113
Unamál Garðarsson hafi verið til og komið hingað á Landnámsöld, og jafnvel numið hér land án þess að byggja það. Hugsanlega hefur hann gert kröfu til réttinda fram yfir aðra landnámsmenn, vegna þess að faðir hans fann landið, og Haraldur konungur verið með í ráðum, til að afla sér áhrifa í hinu nýja landi. Aðrar sögur af ásælni Noregskonunga Sigurður Líndal telur þá hugmynd snemma hafa vaknað með Noregskonungum, að þeim bæri með nokkrum hætti réttur til að ráða löndum, sem numin hefðu verið frá Noregi. Eru ýmsar heimildir um, að Noregskonungar hafi haft í hyggju að leggja ísland undir sig, fleiri en ofangreind sögn Landnámabókar um Una danska.28 Alkunn er sagan í Heimskringlu um fyrirætlan Haralds Gormssonar Danakóngs að herja á Island. Tilgangur var sagður að hefna níðs, sem Islendingar höfðu ort um konung, en ástæðan fyrir níðinu var sú, að bryti Haralds hafði rænt fé íslendinga, en konungur ekki viljað bæta ránið. Fyrst bauð Haraldur fjölkunnugum manni að fara hamfórum til íslands í hvalslíki, en sá komst hvergi að landi fyrir landvættum sem gættu allra fjórðunga: bergrisa á Suður- landi, griðungs á Vesturlandi, risafugls á Norðurlandi og dreka á Austurlandi, og varð því frá að hverfa. Þessar landvættir urðu síðan merkisberar í skjaldarmerki Islendinga, og breytir þá litlu þótt rekja megi fyrirmyndir þeirra til Biblíunnar.29 í Landnámu er sagt frá Hrollaugi Rögnvaldssyni sem nam gríðarstórt land, allan Homaíjörð og Suðursveit, og „fór til Islands með ráði Haralds konungs.“ Hrollaugur var sonur Rögnvaldar jarls á Mæri, síðar Orkneyjajarls og bróðir Göngu- Hrólfs er vann Nomandí. Hann bjó fyrst „undir Skarðsbrekku í Homafirði, en síðan á Breiðabólsstað í Fellshverfi“, og hafði þá selt allan Homaljörð og Mýrar. „Hrollaugur var höfðingi mikill og hélt vingan við Harald konung, en fór aldri utan.“ Haraldur sendi honum gjafír góðar, þar á meðal ölhom er síðar átti Kolur Síðu-Hallsson, og sá Kolskeggur fróði Landnámuhöfundur það.30 Þetta varð Halldóri Stefánssyni tilefni umþenkinga, að kannski hafi Hrollaugi verið ætlað sama hlutverk og Una, að leggja undir sig landið. Ólafur Tryggvason (d. árið 1000) og Ólafur helgi Haraldsson (d. 1030) höfðu vissa tilburði að ná áhrifum á íslandi, einkum í sambandi við kristnitökuna. Frægust er sagan af Þórarni Neljólfssyni, hirðmanni Ólafs helga, sem Snorri segir að hann sendi á Alþing með beiðni urn að sér yrði gefín Grímsey, „og vill þar í mót leggja gæði þau af sínu landi, er menn kunnu honum til að segja.“ Ymsir höfðingjar voru meðmæltir því en þá hélt Einar Þveræingur sína frægu ræðu, sem oft er vitnað til síðan, svo ekki varð af gjöfínni.31 Það var svo loks á 13. öld að Noregskonungar náðu ítökum á Islandi, vegna óeirða innanlands, sem lauk með sáttmála við Hákon gamla 1262. Svikarinn Allar þessar fornu sögur um ásælni Noregskonunga hafa varðveist í ritum þeirra frændanna, Snorra Sturlusonar (ca. 1178-1241) og Sturlu Þórðarsonar (1214- 1284), sem báðir voru virkir þátttakendur í innanlandsdeilum 13. aldar, höfðu náin kynni af konungum Noregs á þeim tíma, rituðu konungasögur fyrir þá, og léku iðulega tveim skjöldum í hinni pólitísku baráttu, sem leiddi til þess að Snorri var myrtur. Þeir máttu því trútt um tala af eigin reynslu. Það er vel þekkt úr mannkynssögunni að þjóðir þurfa að eiga sína ,föðurlands- II!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.