Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Síða 117
Jón Frímannsson
Agrip af sögu
Rafveitu Reyðarfjarðar
Varla verður saga Rafveitu Reyðar-
tjarðar skráð af nokkru viti nema
reynt sé að gera sér grein fyrir
ástæðum þess, að menn fara að velta fyrir
sér virkjun Búðarár, en svo einkennilegt
sem það nú er, þá er ekki feitan gölt að flá,
þegar leitað er heimilda um þetta merkilega
mál.
Þó er vitað, að skömmu eftir heims-
styrjöldina fyrri gengust þeir Rolf Johansen
og Sigurjón Gíslason fyrir því, að Halldór
Guðmundsson, raffræðingur í Reykjavík,
yrði fenginn til þess að athuga Búðarána
með tilliti til virkjunar til ljósa, hitunar og
eldunar fyrir Búðareyri eins og segir í ágripi
af sögu Rafveitu Reyðarfjarðar, sem Jón
Kjerúlf er sennilega höfundur að, en hann
sat um tíma í stjóm Rafveitunnar.
Niðurstöður Halldórs voru þær, að
virkjunarskilyrði væra góð, en virkjunin
mundi verða nokkuð dýr. Ekkert varð úr
framkvæmdum að sinni.
Athugunum og mælingum í ánni var þó
haldið áfram og ýmsum öðrum undir-
búningi í virkjunarmálum Reyðfirðinga.
Þetta framtak þeirra félaga er fyrir margra
hluta sakir ákaflega merkilegt og ber vott
um framsýni þeirra og trú á, að þessi
framkvæmd ætti eftir að verða þorpinu og
íbúunum þess notadrjúg þegar rafmagnið
færi að lýsa upp heimili þeirra og létta þeim
störfm auk þess að skapa möguleika fyrir
ýmsan áður óþekktan atvinnurekstur í
þorpinu.
Eins og áður er vikið að eru nákvæmar
heimildir um stofnun og byggingu Rafveitu
Reyðarfjarðar af skornum skammti og
fundargerðabækur hennar frá þessum árum
því miður glataðar, en þó er hægt að átta sig
nokkuð á ýmsum öðrum gögnum, svo sem
áður nefndu ágripi Jóns Kjerúlf og ýmsum
skjölum, sem voru í vörslu Frímanns
Jónssonar og eftir rninni þess, sem þetta
ritar og segja má, að hafi frá blautu
bamsbeini og fram yfír fermingu alist upp á
rafstöðinni og að miklu leyti hlotið sína
rafvirkjamenntun þar hjá foður sínum, sem
þó varð að láta af störfum allt of snemma
vegna heilsubrests.
Fyrirtæki K.H.B. kölluðu á stærri
virkjun
Eins og allir, sem til þekkja vita, var
Kaupfélag Héraðsbúa langstærsti atvinnu-
rekandi á Reyðarfírði á þessum árum og
hefur verið lengst af og meðal annars
starfrækt þar sláturhús og verslun og
vafalaust var það þessi atvinnurekstur
Kaupfélagsins, sem flýtti mjög fyrir því að
ráðist var í virkjun Búðarár árið 1929. Það
115