Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Page 122

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Page 122
Múlaþing virkjunar Búðarár allt að kr. 90.000.00 til 30 ára. Fundinn sátu 79 þorpsbúar og greiddu allir atkvæði með heimildinni nema tveir. Tæpum tveimur mánuðum síðar eða 21. júlí barst hreppsnefndinni eftirfarandi skeyti frá Líftryggingafélaginu Thule: „Lún fœst gegn ábyrgð ríkisins og sýslusjóðs.“ Því næst var gengið frá lántökunni og verkið boðið út. Lægsta tilboðið átti Rafmagn hf. í Reykjavík kr. 96 þúsund í allt verkið, en heimamenn skyldu sjá um allan ílutning að stíflu í Búðará og gröft fyrir þrýstileiðslu og stöðvarhús. Þessi vinna var öll unnin af Reyðfírðingum í sjálfboða- vinnu, og sýnir það áhuga manna og eindrægni í þessu mikla framfara- og hagsmunamáli Reyðfírðinga. Þegar gengið hafði verið frá samningum við Rafmagn h/f, var þegar hafist handa við að panta vélar, þrýstivatnsrör og annað, sem til þurfti, svo sem staura og vír og einangrara í línur frá rafstöðinni, sem voru í rauninni tvær. Önnur fyrir þorpið fyrir framan hæð eins og sagt var, en hin fyrir utan hæð. I daglegu tali var talað um útlínu og framlínu. Til gamans má geta þess, að gildleiki víranna í þessum línum var 95 fermillimetrar í aðaltaugunum, en 35 í miðtauginni. í ágústmánuði kom Höskuldur Bald- vinsson raffræðingur, sem þá var yfirmaður hjá Rafmagni h/f, ausúir á Reyðarfjörð til að stjóma öllum framkvæmdum við þetta verk. Þá var byrjað á að leggja bílfæran veg upp að stíflunni í Búðará. A sama tíma var einnig byrjað á byggingu stöðvarhúss og lagningu þrýstivatnspípu. Öllum þessum framkvæmdum var lokið fyrir jól og raunar allri útivinnu nema vinnu við raflínur frá stöðinni, enda hafði tíð verið eindæma góð þetta haust. Um veturinn var svo unnið að línu- lagningum og raflögnum í hús, en Rafmagn h/f hafði einnig tekið að sér í ákvæðisvinnu að leggja allar raflagnir í hús Reyðfirðinga fyrir kr. 17.50 á hvert ljósastæði, en kr. 24.00 fyrir eldavélar og ofna. Hinn 12. september 1929 samþykkti hreppsnefndin að tilhlutan rafnefndar að útvega kr. 10.000.00 lán til að gera þorpsbúum kleift að komast yfir innlagningartæki eins og segir í fundargerð. Hér er átt við ljósastæði, ofna og eldavélar, en þá var vart um að ræða önnur rafmagnstæki á heimilum nema vera skyldi straujám, en þá vom tæki eins og ísskápar og þvottavélar óþekkt hér á landi að minnsta kosti. Þessi tæki vom pöntuð frá Noregi og hétu Rex og löngu seinna og raunar allt þar til þau urðu úrelt, þegar skipt var um spennu með tilkomu nýju riðstraumsvélanna, var talað um Rex eldavélar og Rex ofna, enda voru þetta afburða vönduð og endingargóð tæki og vom öll komin áður en rafmagninu var hleypt á kerfið. Stífla og þrýstivatnspípa I aðalatriðum er virkjun Búðarár þannig, að áin er stífluð með steinsteyptri stíflu í mynni Svínadals, sem er hallalítill, en með talsvert stórt vatnasvæði. Sumarið 1929 var mjög þurrviðrasamt, en þó mældist vatnið í Búðará 230 sekúndulítrar, sem er nægilegt til að framleiða 300 hestöfl við 130 metra fallhæð. Stíflan er 5,5 metrar á hæð og við ytri enda hennar er inntaksþróin. Fyrir opi hennar er jámrist og önnur fyrir þrýstivatns- pípunni. Þessar ristar em til þess, að ekki komist aðskotahlutir inn í rörin, svo sem ísmolar, spýtur og annað því um líkt. Þegar frost vom mikil og krapamyndun í ánni, vildi oft frjósa í þessum ristum, einkanlega þó, ef lítið vatn var í ánni og ristamar voru að hluta til upp úr vatninu. Þetta dró úr vatnsrennsli til vélanna og afköstum þeirra. 120
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.