Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Side 148
Múlaþing
Eiríkur Eiríksson bóndi á Vífilsstöðum.
Eigandi myndar: Ljósmyndasafn Austur-
lands.
Séra Einar var fæddur á Stóra-Steinsvaði
7. desember 1853. Hann settist í Reykja-
víkurskóla 1870 og útskrifaðist þaðan 28. júní
1876 með 1. einkun, 88 stigum. Síðan gekk
hann á Prestaskólann og tók þar forspjalls-
vísindapróf 1878 með 1. einkun, 45 stigum.
Embættispróf tók hann svo 23. ágúst 1879,
einnig með 1. einkun, 45 stigum. Hann fékk
Fell í Sléttuhlíð vorið 1879 og vígðist þangað
31. ágúst sama ár. A Felli var hann prestur í 6
ár en fékk svo Miklabæ í Blönduhlíð 13. apríl
1885 og var þar prestur 4 ár. Konungsveitingu
fyrir Kirkjubæ fékk hann síðan 24. janúar
1889. Hann var settur prófastur í Norður-
Múlaprófastsdæmi 1894 þegar Sigurður
prófastur Guðmundsson flutti frá Valþjófsstað
að Helgafelli, en séra Einar varð „virkilegur
prófastur" 3. júní 1896. Hann var alþingis-
maður Norðurmúlasýslu árin 1893, 1895,
1897, 1899 og 1901 og þótti jafnan
frjálslyndur á þingi. Hann var glímumaður
mikill og hlaut verðlaun fyrir þá íþrótt þegar
hann var í skóla. Séra Einar var fróðleiks-
maður mikill og ættfræðingur, átti hann
bókasafn gott og auðugt og hafði ritað
allmikið til þess á námsárum sínum í
Reykjavík en hann missti handrit sín öll og
alla lausa muni þegar allur bærinn brann hjá
honum til kaldra kola í Kirkjubæ 7. október
1897 og auk þess fjós með 7 kúm inni. Þar
brunnu og inni allmargar gamlar og merki-
legar prestsþjónustubækur ýmissa prestakalla
úr Múlaþingi sem Einar prófastur hafði dregið
að sér til ættfræðirannsókna og var það eitt hið
mesta bókatjón sem aldrei fæst bætt. Einar
prófastur hefúr ritað ýmislegt fróðlegs efnis,
þar á meðal: l.Æfi Péturs organista Guðjóns-
sonar, prentuð framan við Saungkennslubók
Péturs, Kaupmannahöfn 1878. 2. Æfisaga
Halldórs prófasts Jónssonar á Hofi, prentuð í
Andvara 12. árgangi, Reykjavík 1888. Mynd
séra Einars er prentuð í Sunnanfara III árgangi
8. tbl., Kaupmannahöfn 1894. Kona séra
Einars var Kristín Jakobsdóttir prests í
Glaumbæ Benediktssonar. Eitt bama þeirra
var Vigfús, fæddur á Felli í Sléttuhlíð 20.
september 1882, útskrifaður úr Reykjavíkur-
skóla 1903. Vigfús tók lögfræðipróf í
Kaupmannahöfn 1910 með II einkun,
trúlofaður 1914 Herdísi dóttur Matthíasar
Jochumssonar á Akureyri.
Séra Einar fékk Desjarmýri sumarið
1910 og var þeim hjónum þá haldin fjölmenn
skilnaðarveisla af Héraðsbúum er þau fluttu.
A þessa leið mælist Sighvati Borgfirðingi í
skrifum sínum um séra Einar. Ymsa
fróðleiksmola um ævi og feril þessa merkis-
manns er einnig að fínna í minningarriti
eftir Davíð Scheving Thorsteinsson er
birtist í Reykjavík árið 1935, fjórum árum
eftir lát séra Einars, 24. júlí 1931.4
4 Sjá einnig Mbl. 30. júlí 1931 og Prestafélagsritið, 13. árgang.
146