Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Síða 158

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Síða 158
Múlaþing horfa með öruggri von til Hans í Jesú nafni á dauðastundinni og hafa vandað allt sitt ráð í lífmu eptir mætti - því skyldu þeir ekki vera sælir? Fyrirheitið sem þeir eiga í vændum að uppfyllt verði er þetta: „Komið blessuð börn míns föður og eignist það ríki, sem yður er fyrirbúið frá upphafi veraldar." Og hvað er sæluefni ef ekki það? Sæll er því hann sem hjer er nú liðinn, því vissulega er hann einn af þeim, sem í Drottni eru dánir. Og eigi er hann að eins í Drottni dáinn, heldur var hans lif guðrækilegt og gagnlegt líf. Og þegar vjer minnumst þess, hversu ötullega hann vann, og hversu mikla reynslu hann hafði gengið í gegnum sem róleg, kristileg hetja og hversu þreyttur hann var orðinn af ýmislegu stríði þessa lífs, sjer í lagi af heilsuleysinu að síðustu. Ekki var það svo, að hann kvartaði yfir því stríði sem hann fjekk að ganga í gegnum í þessu lífi. Hann var fyrir löngu búinn að læra þá kristilegu íþrótt að beygja sig undir Guðs góða vilja og fela Honum alla sína hagi, og bíða svo og bíða rólegur þess er fram kæmi, - leggja að eins stund á að gjöra skyldu sína eptir þeim kröptum er hann hafði til og sem lengi voru svo miklir, og fela svo Guði árangurinn. En fyrir löngu var hann í hjarta sínu farinn að þrá hina eilífu hvíld. Gjaman vildi hann geta fengið líkamsböl sitt ljett og þess vegna leitaði hann sjer að síðustu lækningar, sem fyrir hann 71 árs gamlan, slitinn og þreyttan, var samfara talsvert mikilli hættu. En hann trúði því, að yrði hún ekki lækning til þessa lífs, þá yrði hún lækning frá öllu stríði og þjáningum þessa lífs í heild sinni, og hann vissi, að tíminn, sem hann átti eptir í þessu lífi gat ekki orðið langur hvort sem var, sökum eðlis sjúkdómsins. Eptir að hann svo hafði ráðfært sig við Guð í himnum, og við þá sem honum þótti þá vert að ræða um það við, rjeðst hann í að láta framkvæma hina tvísýnu lækningu og fól sig í Drottins hendur. Aðgerðir hins samviskusama læknis heppnuðust sjálfar vel og allt sýndist ætla að ganga heppilega. En læknirinn allra meina á himnum greip fram í á annan hátt. Það var eins og Hann segði: „Hjer er það jeg einn sem vil lækna. Hinn líðandi skal ekki líða meira á þessari jörð. Stundin er komin að veita honum hina eilífu hvíld og lausn frá öllum meinum og öllu stríði.“ Það leit nálega svo út, að þegar hinn mannlegi læknirinn sýndist ætla að fá frelsað hann frá hinu þunga líkamsmeini til þessa lífs, þá vildi hinn himneski læknirinn eigi láta það verða, að hann ætti hjer enn eptir að líða á einhvem annan hátt. Og svo svæfði Hann hann rótt og blítt hinum síðasta svefni, til að hvíla hann til fulls. Og frelsarinn sagði sitt náðarorð: „Kom þú blessað bam míns föður og gakk inn í fögnuð herra þíns.“ Og fagnandi mundi hinn guðhræddi ástvinur taka því boði og fela sinn anda í föðurins hönd í Jesú nafni og þiggja eilífðarinnar sælu fyrir jarðarinnar stríð. Og svo varð lækningaförin að eins til þess að votta að nýju þann sannleika að „enginn dauðanum ver“ þó að hinn besta vilja hafi og hina mestu hæfileika til að ljetta mannanna mein. En hún varð einnig til þess ósjálfrátt, að láta fleiri en heimilismenn hans og nágranna fá að kynnast hans trúarömgga hugsunarhætti og hans rólega kristilega framferði. Fyrir yður, heiðraði læknir, sem urðuð að líða, að Drottinn tæki af yður ráðin, og yður, heiðmðu hjón, sem tókuð hinn sjúka til hjúkmnar og reyndust honum öll svo vel, mun hinn liðni ætíð standa sem trúarörugg háttprúð hetja, sem með rósemi felur Guði sitt líf, og óttast jafnvel ekki sjálfan dauðann. Góður Guð launi yður það gott sem þjer hafið veitt honum, alla hina góðu hjúkrun og aðhlynning og ánægju, sem þjer kostuðuð kapps um að veita honum svo lengi af heilsufarsins stríði, þá segjum vjer með heilagri gleði, þó að vjer söknum hans sárt: 156
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.