Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Page 169

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2009, Page 169
„Örlög kringum sveima“ sótt. Beinin voru jarðsett í kirkjugarðinum að Ási 30. október 1972. Þá voru liðin tæp 93 ár frá því Guðrún Magnúsdóttir kvaddi heimilisfólkið í Fjallsseli og lagði á Fljótsdalsheiði til fundar við unnusta sinn. En að lokum nokkur orð um Þorstein Jónsson unnustann. Hann var Þingeyingur, fæddur í Holtakoti í Kinn 21. júlí 1850. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum á Hriflu í Ljósavatnsskarði. Þegar hann hafði aldur til fór hann í vinnumennsku og lá leiðin um Vopnaljörð að Hnefilsdal vorið 1880 og fór þaðan að Eyjólfsstöðum á Völlum 1881. Árið eftir kemur hann að Fjarðarkoti í Mjóafirði, þar bjó þá ekkjan Ingibjörg Einarsdóttir, tæplega fertug en átti þó á eftir að sjá tveimur mönnum. Hjá Ingibjörgu voru þá fimm bama hennar og Eiríks Isfeld. Þorsteinn og Ingibjörg giftust 7. júli 1884. Tveimur ámm seinna fluttu þau til Ameríku og eiga þar stóran afkomendahóp. Sonur þeirra var Ólafur Steingrímur einn þekktasti tónlistannaður af íslenskum ættum í Nýja-íslandi. Eftir hann er m.a. Gimlivalsinn, sem er í miklum metum hjá íbúum við Islendingafljót. Þorsteinn kallaði sig Mjófjörð eftir að hann kom til Ameríku. Ingibjörg andaðist 17. apríl 1925 og Þorsteinn 15. júní 1929. Hér mun ég leitast við að lýsa afdrifum Guðrúnar Magnúsdóttur og þeirri dulúð, sem varð við hvarf hennar. Teknir verða upp kaflar úr fyrri frásögnum frá hvarfi hennar og ýmsum staðháttum lýst. Er hér fyrst vitnað í frásögn í Anstfirðingaþáttum Gísla Helgasonar í Skógargerði (Mál og mynd, árið 2000), er ber yfirskriftina, Ekki verður feigum forðað , bls. 147: 1879 var vinnukona í Fjallsseli í Fellahreppi sem Guðrún Magnúsdóttir hét... Um þetta leyti bjó i Fjallsseli Jón Jóhannesson hins stóra og Jón Þorkelsson sonarsonur hans. Guðrún, elsta bam Jóns Þorkelssonar,var þá 5 ára gömul er saga þessi geróist, en hún er nú aðalheimildarmaður minn þótt ég heyrði á yngri árum oft um þennan atburó talað... Veturinn 1879-1880 var einmuna góður svo elstu menn nú (1946) muna engan betri. Þá segja þeir að folgað hafi aðeins tvisvar í lágsveitum: Um jólaleytið og svo aftur rétt fyrir eða um páskana. Á aðfangadag ætlaði Guðrún norður en þá var rytjugarri norðaustan og gekk á með dimmum éljum en birti nokkuð á milli. Guðrún vildi ekki láta þetta aftra sér og sagðist vel geta ratað þótt ryk þetta væri og hún yrði ekki lengi að skjótast yfir heiðina enda var hún talin rösk til gangs. Leiðin þama yfir heiðina að Skeggjastöðum á Dal, sem er næsti bær við Hnefilsdal, mun vera um fjögra tíma gangur. Nú var allt gert, sem hægt var, til þess að fá Guðrúnu að fresta ferðinni fram yfir jólin og bauð Jón Jóhannesson að láta fylgja henni norður eftir jólin. Lét Guðrún þá sefast í svipinn en klifaói þó jafnan á því að fara og sér væri það alveg óhætt. Svona leið nú fram yfir hádegið. Þá birti dálítið í lofti milli élja og Guðrún blossaði upp að nýju og nú dugðu engar fortölur. Hún týjaði sig í snatri tók kútholuna og rauk af stað hvað sem hver sagði. Karlmenn vom þá útivið svo eigi var hægt að hindra för hennar með valdi en það segja menn að ekkert annað hefði dugað til að koma í veg fyrir þetta feigðarflan. Auðvitað gekk brátt yfir él aftur og var nú sýnu meira og dimmra en áður og fór nú bráðum að bregða birtu. Hún hefir ekki haft bjart nema rétt upp fyrir brúnina. Uppi á brúnunum mætti Guðrún tveimur mönnufn sem komu norðan af dal. Þeir sögðu fullkominn byl á heiðinni og hið mesta óráð fyrir hana að halda áfram. Hún mundi villast og verða úti þar sem nú væri tekið að dimma. Hún kvað það engu gegna og lét þeirra fortölur ekkert á sig fá. Sáu þeir að þeir mundu verða að beita valdi til að fá hana með sér ofan 167
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.