Saga - 2016, Page 7
F O R M Á L I R I T S T J Ó R A
Fyrsta grein þessa vorheftis Sögu er eftir Nönnu Þorbjörgu Lárusdóttir og er
afrakstur rannsókna hennar á sögu Góðtemplarareglunnar á Íslandi. Í
greininni rekur Nanna uppgang hreyfingarinnar fram á miðja 20. öld og
viðhorfsbreytingar Íslendinga til áfengismála. Saga hreyfingarinnar snertir
þó fleiri þætti í sögu þjóðarinnar en áfengismál, því eins og Nanna sýnir
fram á hafði starfsemi góðtemplara mikil áhrif á íslenska verkalýðshreyf -
ingu, réttindabaráttu kvenna og ýmsa þætti í menningarlífi landsins, eink -
um leiklist. Tveir félagar Góðtemplarareglunnar í Reykjavík, sem létu ein -
mitt að sér kveða í verkalýðspólitík og leiklist, voru hjónin Ingibjörg Steins -
dóttir og Ingólfur Jónsson, en þau eru viðfangsefni næstu greinar þessa
heftis. Höfundar hennar eru þau Ingibjörg Sigurðardóttir og Páll Björnsson.
Í greininni segir frá þátttöku hjónanna innan hreyfingar íslenskra komm -
únista og innanflokksátökum sem tengdust pólitísku starfi þeirra. Grein
þeirra Ingibjargar og Páls er persónusaga um íslensk stjórnmál sem beinir
sjónum að minna þekktum leikendum á því sviði, en hún er líka óvenjuleg
að því leyti að persónur hennar eru hjón og skilnaður þeirra órjúfanlegur
hluti af pólitískri þátttöku þeirra. Þriðja og síðasta grein heftisins er eftir
Guðmund J. Guðmundsson og fjallar um íslenska innflytjendur í englandi
á 15. og 16. öld, en ekki hvað síst um nýlegan gagnagrunn sem geymir upp -
lýsingar um þessa Íslendinga, og möguleikana á frekari rannsóknum á
forvitnilegri sögu þeirra.
Þá eru það andmælaræður við doktorsvörn í sagnfræði. Höfundar þeirra
eru þau Hrefna Róbertsdóttir og Davíð Ólafsson en vörnin var Vilhelms
Vilhelmssonar, sem lagði fram doktorsritgerð sína Sjálfstætt fólk? Vald og
andóf á Íslandi á tímum vistarbands. Ítardómar Sögu eru tveir. Þar fjalla tvær
konur um tvær bækur eftir konur um konur. elsa Ævarsdóttir skrifar um
bók í ritstjórn Halldóru Arnardóttur, Kristín Guðmundsdóttir. Híbýlafræð ingur,
en Æsa Sigurjónsdóttir um verk Hrafnhildar Schram um Nínu Sæ munds -
son myndhöggvara. Lestina reka að venju ritdómar um nýleg verk á sviði
sagnfræði og skyldra greina. en fyrst er það forsíðan: fordjörfun Íslands.
Sigrún Pálsdóttir
Saga vor 2016.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:09 Page 5