Saga - 2016, Qupperneq 30
að karlmennirnir hugsuðu töluvert og gerðu allt. en eftir að ég gerðist
aukameðlimur kvenstúkunnar Ársól nr. 136, varð mér fyrst fullljóst,
hversu mikið kvenfólkið getur gert, bæði fyrir bindindismálið og
annað.42
Gunnþórunn var ein örfárra kvenna sem skrifuðu í ritið út frá eigin
reynslu. Sú staðreynd endurspeglar vel kynjaáherslurnar sem fundar -
gerðabækur stúkna birta, þ.e. hlédrægni kvennanna. Af orðum
Gunnþórunnar má ráða að einhverjar stúkukonur hafi upplifað það
svo að stúkurnar veittu þeim takmarkað athafnarými. Stofnun
kvennastúkunnar Ársólar nr. 136 í Reykjavík má ennfremur hafa til
marks um þessa reynslu stúkukvenna en hún var stofnuð í febrúar
1907, mánuði eftir tilkomu kvenréttindafélags Íslands, og í nýju
stúkunni voru einnig konur úr því félagi.43 Önnur kvennastúka var
svo stofnuð ári síðar á Ísafirði, stúkan Hulda nr. 156, en hún starfaði
einungis skamma hríð.44 Ársól var ætlað að vera „friðaður sólskins-
blettur“ þar sem konur störfuðu ekki í skugga karlanna heldur gætu
óheftar „lýst upp starfsþrek sitt … og hlúð að sínum andlegu kröft-
um“. kvenréttindaumræðan hafði þarna skilað sér í aðgerðum
stúkukvenna — „peðanna“ á taflborði stúkukarlanna, eins og ein
þeirra líkti þeim við.45 Stúkan Ársól svaraði sýnilega ákveðinni eftir -
spurn því í febrúar 1912 var hún orðin sjötta fjölmennasta stúkan í
landinu með 94 meðlimi.46 Í stofnun Ársólar fólst því einskonar
uppreisn stúkukvenna gegn viðhorfi karlanna, yfirgangi þeirra og
fyrirferð.
Óhætt er að fullyrða að stúkur svöluðu félagslegri þörf kvenna
sem virðist hafa verið rík. konur sóttu í stúkurnar í leit að félagslífi
og tilbreytingu — af hégóma eins og karlarnir gagnrýndu þær fyrir.
Stúkustarfið gaf fordæmi fyrir almennri félagsþátttöku kvenna
innan um karla. Stúkurnar veittu því konum reynslu af félagsstörf-
um sem varð þeim veganesti inn í slík störf á öðrum vettvangi. Það
nanna þorbjörg lárusdóttir28
42 Tuttugu og fimm ára. Minningarrit, bls. 172.
43 Ásamt Gunnþórunni voru Sigurborg Jónsdóttir, Vilborg Guðnadóttir og að lík-
indum Margrét Guðmundsdóttir meðlimir Ársólar, einnig meðlimir kRFÍ.
44 „Nýja stúkan“, Templar 21:40 (október 1908), bls. 158; „Úr bænum og grend-
inni“, Vestri 7:36 (júní 1908), bls. 137.
45 Sigurborg Jónsdóttir, „Ræða“, Templar 21:11 (mars 1908), bls. 42.
46 Fjölmennari voru þá einingin og Verðandi í Reykjavík, Morgunstjarnan í
Hafnarfirði, Báran í Vestmannaeyjum og Nanna á Ísafirði: „Félagatal undir-
stúkna á Íslandi“, Templar 25:9 (júní 1912), bls. 34–35.
Saga vor 2016.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:09 Page 28