Saga - 2016, Síða 98
1934 var haldið áfram að lýsa Ingólfi sem liðhlaupa á síðum blaðs -
ins.167
ef til vill hefur þessi málflutningur orðið til að efla harðlínu-
mennina í Ísafjarðardeildinni. Frekari hreinsanir í deildinni stóðu að
minnsta kosti fyrir dyrum. Þannig var samþykkt að reka einn félag-
ann úr deildinni, og þar með flokknum, í apríl 1934 fyrir „tækifær-
issinnað starf“.168 Á sama tíma var farið að kvarta yfir „starfsleysi“
Ingibjargar en útskýringar hennar virtust hins vegar hafa verið tekn-
ar gildar.169 kannski hefur hún einfaldlega vísað til þess að hún og
fjölskylda hennar myndu brátt flytja frá Ísafirði. Reyndar er frekar
ólíklegt að flokksdeildin hefði lagt í að reka hana. Staða hennar sem
kommúnista var nefnilega sterk í bænum, eins og kemur fram í
endur minningum Guðmundu elíasdóttur söngkonu (1920–2015)
þar sem hún rifjar upp æskuár sín á Ísafirði:
Heimsatburðir þrengdu sér inn í afskekktustu firði og tóku á sig undar-
legar myndir. Í augum okkar barnanna var fulltrúi rauðu hættunnar
Ingibjörg Steinsdóttir leikkona. Hún hafði dvalið í Rússlandi, en bjó nú
á Ísafirði ásamt eiginmanni og börnum í Neðstakaupstað. Okkur var
sagt að hún væri kommúnisti og hættuleg kona. Þegar hún kom í sjón-
mál okkar krakkanna, urðum við svo skelkuð að við tókum til fótanna
og linntum ekki hlaupunum fyrr en niðri í fjöru þar sem skektur lágu á
hvolfi. Við skriðum undir bátana og lágum þar dauðhrædd. Því miður
kynntist ég aldrei þessari sómamanneskju, en heyrði mikið um hana
síðar og iðulega vel af henni látið. en í augum barnanna á Ísafirði, sem
horfðu gegnum sál hinna fullorðnu, var hún alltaf Rússa kerl ingin.170
Þessi orð eru upplýsandi um stöðu Ingibjargar í hugum Ísfirðinga.
en fleira hefur ef til vill komið í veg fyrir brottrekstur hennar. Það
kann að vera að hún hafi verið orðin (sjálfs)gagnrýnni en áður í
afstöðu sinni til Ingólfs sem flokksmanns og að með aukinni gagn -
rýni hafi hún styrkt stöðu sína innan deildarinnar. Merki um slíka
afstöðu má að minnsta kosti greina í persónulegu bréfi, sem hún
skrifaði Steinþóri bróður sínum vorið 1934, þar sem hún fagnaði
ingibjörg sigurðardóttir og páll …96
167 „Starfsemi tækifærissinna“, Verklýðsblaðið 23. apríl 1934, bls. 2.
168 H.skj.Ísaf. Pk 1867/213. Ísafjarðardeild k.F.Í., febrúar 1933 – apríl 1934.
Fundar gerð frá 17. apríl 1934.
169 H.skj.Ísaf. Pk 1867/213. Ísafjarðardeild k.F.Í., febrúar 1933 – apríl 1934.
Fundar gerð frá 20. apríl 1934.
170 Ingólfur Margeirsson og Guðmunda elíasdóttir, Lífsjátning. Endurminningar
Guðmundu Elíasdóttur söngkonu (Reykjavík: Iðunn 1981), bls. 24–25.
Saga vor 2016.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:09 Page 96